Morgunblaðið - 22.09.2012, Síða 60

Morgunblaðið - 22.09.2012, Síða 60
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 266. DAGUR ÁRSINS 2012 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 699 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Innlit í eldhús Bjarna Ben. 2. 4-6 sinnum hærri laun í Noregi 3. Biður sjúklingana afsökunar 4. Guðlaugur hættir í bæjarstjórn  Hilmar Örn Hilmarsson er til- nefndur til norrænu Hörpu- kvikmyndatónlistarverðlaunanna sem afhent verða 6. október í Hörpu. Hilmar er tilnefndur fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Andlit norðursins. Hilmar Örn tilnefnd- ur til verðlauna  Hljómsveitin Menn ársins ætlar að senda frá sér eitt lag á mánuði ńæstu 12 mánuði og á endanum verður lagasafnið að breiðskífu. Hægt verður að fylgjast með af- rakstrinum á Facebook-síðu hljóm- sveitarinnar. Lag septembermánaðar heitir „Morgundagurinn“ og í því syngur Jónas Sigurðsson með hljóm- sveitinni. Menn ársins senda frá śér eitt lag á mánuði  Berndsen & The Young Boys, með tónlistarmanninn Berndsen í farar- broddi, halda tónleika í kvöld á rokkbarnum Ellefunni og verður húsið opnað kl. 21. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Tónlist Berndsens er undir miklum áhrif- um frá popptónlist níunda áratugar- ins og má því gera ráð fyrir síðrómantíkur- stemningu. Berndsen & The Young Boys á Ellefu FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan og austan 5-10 m/s á morgun og áfram vætusamt, en úrkomulítið N-lands. Hiti 7 til 13 stig. Á sunnudag Austlæg átt, 8-13 m/s. Talsverð rigning á SA-landi og A-fjörðum og dálítil væta í öðrum landshlutum. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast N-lands. Á mánudag Austan og norðaustan 5-13 m/s, hvassast með SA-ströndinni. Skýjað og úr- komulítið á A-verðu landinu, en bjartviðri á SV- og V-landi. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast SV-til. Haukar þykja geysilega sigurstrang- legir á Íslandsmóti karla í handbolta sem hefst á mánudagskvöldið. Þeir hafa fengið góðan liðsauka en fjórir leikmenn hafa snúið heim úr atvinnu- mennsku. Matthías Árni Ingimarsson, varnarjaxl í liði Hauka, segir þó að sér virðist sem mótherjarnir séu að reyna að taka pressuna af sjálfum sér og setja á Haukana. »4 Mótherjarnir setja pressu á Haukana Ólafur Björn Loftsson, kylf- ingur úr Nesklúbbnum, verður á meðal keppenda á 1. stigi úrtökumótanna fyrir PGA-mótaröðina í golfi ásamt Birgi Leifi Hafþórs- syni úr GKG. Ólafur vann sig upp úr forkeppni í Dallas í Texas í gærkvöldi. Ólafur lék 54 holur á tveimur yfir pari samtals en lokahring- inn lék hann á 67 höggum sem er frábær árangur ». 1 Ólafur komst áfram í Dallas Ingvar Þór Kale, markvörður Breiða- bliks, er leikmaður 20. umferðarinnar í Pepsi-deild karla í fótbolta. Hann segir að sem betur fer þurfi Blikar bara að treysta á sjálfa sig í harðri baráttunni um Evrópusæti í loka- umferðunum. Fyrst þurfi þeir þó að sigra Keflavík á morgun áður en þeir geti farið að huga að úrslitaleik í síð- ustu umferðinni. »2-3 Mjög gott að þurfa bara að treysta á sig sjálfa Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Bjartmar Freyr Jóhannesson, íbúi í Hafnartúni í miðbæ Selfoss, fékk nýverið leyfi hjá bæjarráði Árborg- ar til að halda hænur í garðinum hjá sér. Bjartmar og fjölskylda hans hafa reyndar verið með hæn- ur í garðinum í þrjú ár en Árborg breytti reglum sínum á þá leið að sækja þarf um leyfi fyrir öllu dýra- haldi í þéttbýlinu, hvort sem það eru hænur, hundar eða kettir. „Það eru rúm þrjú ár síðan við fengum nokkur egg og úr þeim komu fimm hanar og þrjár hænur. Við héldum eftir tveimur hönum en losuðum okkur fljótlega við annan þeirra. Samkvæmt samþykkt bæjarráðsins þurfum við nú að losa okkur við hinn,“ segir Bjartmar. Bæjarráð veitti honum leyfi til eins árs til reynslu til að halda allt að sex landnámshænur en gaf ekki leyfi til að halda hana. Bjartmar segir það skiljanlegt, hanagal geti verið til óþæginda. Reyndar hefur hann ekki fengið eina kvörtun um gal í þau þrjú ár sem hann hefur haldið hana. „Nágrannarnir hafa ekki kvartað undan hanagalinu, þeir hafa frekar komið og lýst yfir ánægju sinni með það. Það sé skemmtilegra en hundsgelt og ró- andi að heyra hanagal í þéttbýl- inu.“ Éta alla afganga Bjartmar og kona hans, Berglind Þorsteinsdóttir, eiga þrjú börn og sér öll fjölskyldan um að sinna hænunum. Í sumar fengu hæn- urnar að liggja á og eru nú með nokkra unga. Þrjár hænur úr þeim hópi fá að lifa og verða þær þá sex tals- ins. Er það stofn- stærðin sem Bjartmar stefndi á að koma sér upp. Haninn hafi verið í hópnum til að þau gætu ræktað sínar eigin hænur, en hanann þarf til að frjóvga eggin svo úr þeim klekist ungar. Nú hefur hann lokið því hlutverki og því í lagi að hann fái að fljúga á vit feðra sinna. Upphafið að hænsnahaldinu má rekja til áhuga Bjartmars á land- námshænunni, einnig sé þetta gert ánægjunnar vegna og til að fá egg- in. „Svo étur þetta alla matar- afganga þannig að ekkert fer til spillis á heimilinu,“ bætir Bjartmar við. Hann segir nokkra halda hæn- ur á Selfossi og það hafi orðið vin- sælla eftir efnhagshrunið. „Þá var eins og fólk þyrfti að komast nær upprunanum og hafa eitthvað til að hugsa um.“ MHanagalið ekki verra… » 16 Grannarnir ánægðir með galið  Fékk leyfi til að halda sex hænur en ekki hana Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson Félagar Bjartmar Freyr Jóhannesson og sonur hans, Benedikt, sem heldur á hananum Úrsusi. Að baki þeim er af- girt hólf sem hænurnar spígspora í yfir daginn. Hænsnakofinn er í bakgarðinum á heimili Bjartmars á Selfossi. Haninn í hænsnahópnum heitir Úrsus og Bjartmar segir hann standa undir nafni; hann sé stór og stæðilegur eins og kraftakarl- inn Hjalti Úrsus Árnason sem hon- um er gefið nafn eftir. Bjartmar segir Úrsus einstaklega fallegan hana með tvöfaldan kamb sem er ekki al- gengt. „Þetta er gæfur og gáfaður hani. Hann gal- ar ekki mikið, ég hleypi honum út um hádegi og þá galar hann aðeins í smátíma og svo er það búið. En þegar eitthvað vantar í hænsnakofann, eins og vatn eða mat, galar hann stanslaust þangað til þeim er gefið, þá steinþagnar hann. Hann er bara að láta vita og að passa upp á sinn hænsnahóp.“ Að beiðni bæjarráðs þarf Bjart- mar að losa sig við Úrsus. Hann segir örlög hanans vera ráðin; hann verður stoppaður upp og fær veglegan sess á heimilinu. Haninn Úrsus er stæðilegur PASSAR UPP Á SINN HÆNSNAHÓP Úrsus Glæsilegur hani. VEÐUR » 8 www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.