SunnudagsMogginn - 16.09.2012, Side 2
2 16. september 2012
Við mælum með
Alþjóðleg barna-
bókmenntahátíð verð-
ur haldin 15.-17. sept-
ember í Norræna
húsinu í tengslum við
Reykjavík bókmennta-
borg Unesco. Þar verð-
ur sjónum beint að mat
og matarmenningu í
barnabókmenntum.
Dagskráin saman-
stendur af upplestrum,
smiðjum, sýningum og
spjalli, auk fræðilegrar
dagskrár fyrir full-
orðna.
Þemasýning stendur nú yfir í Norræna húsinu á myndlýs-
ingum úr íslenskum bókmenntum.
Matur út
í mýri
4-8 Vikuspeglar
Skattar og gjöld hækka, bólusetning getur fækkað tilfellum legháls-
krabbameins og lygar lögreglunnar um hörmungarnar á Hillsborough.
14 Stærsti marbletturinn á þjóðinni
Baltasar Kormákur ræði Djúpið sem frumsýnd verður í vikunni,
stórmyndina 2 Guns, væntanleg verkefni og líf á ferð og flugi.
20 Eykur öryggi og magnar ljós í
myrkri
Nætursjónaukar Landhelgisgæslunnar skiptu sköpum við lífsbjörg
á eyri í Jökulsá í Lóni. Árni Sæberg fylgdist með slíku flugi.
24 Mynda mannlíf hér á landi –
hver á sinn hátt
Fjölbreytileiki er allsráðandi í nálgun nemenda á al-
þjóðlegu ljósmynda- og kvikmyndanámskeiði hér á landi.
28 Saga sem má ekki
gleymast
Magnea Henný Pétursdóttir hefur safnað saman skjölum
og bréfum sem tengjast fjölskylduharmleik í seinni heims-
styrjöldinni.
32 „Ég á mér ekki drauma,
ég hef plön“
Katrín Ísleifsdóttir Everett sigldi umhverfis jörðina á skútu
með eiginmanni sínum og ekki alltaf lygnan sjó.
36 Undraveröld hins nýja eldhúss
Ferran Adria gerði El Bulli í litlu þorpi á Spáni að besta veitingastað heims
með byltingarkenndum aðferðum, sem hann kallar hið nýja eldhús.
Lesbókin
42 Wittgenstein hugsar á Íslandi
Austurríski heimspekingurinn Ludwig Wittgenstein kom til Íslands í sept-
ember 1912 og ferðaðist um landið.
18
Ljósmynd/Þorvaldur Örn Kristmundsson
13
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Kjartan Þorlbjörnsson af Baltasar Kormáki.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Árni Matthíasson, arnim@mbl.is, Einar Falur Ingólfsson,
efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Krist-
insdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir og Skapti Hallgrímsson
Augnablikið
Það færist í vöxt að skóla-hópar komi til landsinsvíðsvegar að úr heim-inum í ferðir til að
kynnast íslenskri náttúru og
menningu. Og nú þegar skólarnir
eru að hefjast má búast við að
vertíðin byrji. Þannig var um
krakka sem komu frá Cornwall,
syðsta odda Bretlands, í vor, en
þeir leggja stund á jarðfræðinám.
„Þetta var hálfgerð skemmti-
ferð,“ segir Anna Kristín Ás-
björnsdóttir sem var leið-
sögumaður í ferðinni á vegum
Íslenskra fjallaleiðsögumanna.
„Þau komu auðvitað til að kynna
sér jarðfræði Íslands, en ekkert
síður í skemmtiferð. Og það sem
þau elskuðu mest var að vera í
sundi.“
Hún segir að veðrið hafi verið
frekar leiðinlegt, en krakkarnir
hafi kunnað betur að meta heita
vatnið fyrir vikið og hvernig er að
baða sig í því. „Og svo fannst
þeim æðislegt að koma í Hellis-
heiðarvirkjun og í Raufarhólshelli í Leitahrauni. Það var ótrúleg upplifun og stórkostleg ískerti í botn-
inum. Hellirinn var erfiður yfirferðar, en allir voru með brodda á skónum, hjálma og ljós. Svo slökktum
við ljósin og vorum með 30 sekúndna þögn og það fannst þeim áhrifamikil stund.“
Þá er bara spurning hvort gert sé nógu mikið af því að fara með íslenska skólakrakka í ferðir um land-
ið. Fá þau ekki örugglega að kynnast íslenskri náttúru og menningu?
pebl@mbl.is
Skólaferðir um Ísland
Horft yfir Kerið. Hópurinn í Reynisfjöru.
Við heita lækinn í Reykjadal.
Ljósmyndir/Anna Kristín Ásbjörnsdóttir
Í skóginum
stóð kofi einn
Sýning á aðal-
safni Borgar-
bókasafns,
Tryggvagötu 15, á myndum úr
þýsku barnabókinni Í skóginum
stóð kofi einn, eftir Jutta Bauer.
Höfundurinn leiðir gesti í gegn-
um sýninguna með dansi og
söng. Bókin byggist á vísunni
um héraskinnið
og veiðimann.
Útgáfutónleikar
Ásgeirs Trausta
á Græna hatt-
inum á Ak-
ureyri, föstu-
daginn 14. september klukkan
22. Hann mun leika lög af fyrstu
plötu sinni, Dýrð í dauðþögn,
sem inniheldur meðal annars
smellina Sumargestur og
Leyndarmál.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
I0
4
3
2
5
9
568 8000 | borgarleikhus.is
Stein
unn Á
sa,
Með o
kkar
augu
m
4 sýn
ingar
að eig
in val
i
Áskri
ftar-
kortið
mitt