SunnudagsMogginn - 16.09.2012, Blaðsíða 6
6 16. september 2012
Í samtali við Morgunblaðið í vik-
unni sagði Höskuldur Þórhalls-
son, fulltrúi Framsóknarflokksins
í fjárlaganefnd, að hagvöxtur væri
knúinn áfram af einkaneyslu sem
samanstendur að mestum hluta
af úttekt á séreignarsparnaði og
yfirdráttarlánum. Hann sagði
vanda heilbrigðiskerfisins óleyst-
an og ekki boðlegt að fjórar heil-
brigðisstofnanir hefðu þurft að
leita til banka til að fjármagna
rekstur sinn. „Mér sýnist rík-
isstjórnin ætla enn á ný að ýta
vandanum á undan sér,“ sagði
Höskuldur sem benti einnig á að
markmið ríkisstjórnarninar um
jöfnuð í fjármálum stæðust ekki.
Innistæðulaus hagvöxtur
Markmið ríkisstjórnarinnar að ná jöfnuði í ríkisfjármálum fyrir árin 2009
til 2013 hafa ekki staðist að mati Höskuldar Þórhallssonar.
Morgunblaðið/Eggert
Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar semOddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra lagðifram í liðinni viku er gert ráð fyrir því aðheildarútgjöld ríkissjóðs verði 573,1 milljarður
króna sem er hækkun um 34 milljarða frá fjárlögum
yfirstandandi fjárlagaárs en þó ekki nema 13,7 millj-
arðar frá endurskoðaðri áætlun um útkomu rík-
isfjármálanna fyrir árið 2012. Þá er gert ráð fyrir 2,8
milljarða halla á ríkissjóði þrátt fyrir að ríkisstjórnin
hafi í hyggju að innheimta 29 milljarða meira í skatt
á næsta fjárlagaári eða 508,8 milljarða í heildina.
Gangi spá fjármálaráðherra eftir verður halli rík-
issjóðs á kjörtímabilinu, sem lýkur í vor, 380,6
milljarðar króna.
Skattahækkanir og eignasala
Aukning á skatttekjum um 29 milljarða verður að
mestu sótt með hækkun á veiðigjaldi en það mun
skila rúmum 15 milljörðum króna í ríkissjóð. Þá
verður virðisaukaskattur á hótel- og gistiþjónustu
hækkaður úr 7% í 25,5% og er áætlað að sú breyting
skili 2,6 milljörðum króna. Hækkun vörugjalda á
matvæli mun skila ríkissjóði 800 milljónum. Tób-
aksgjald verður hækkað um 15% og vörugjald á nef-
tóbak verður hækkað um 100% og munu þær
hækkanir skila nærri því 1 milljarði króna. Þá verð-
ur almennt tryggingagjald hækkað um 0,3% til að
mæta auknum vexti útgjalda í almannatrygg-
ingakerfinu. Sú hækkun mun skila 3,3 milljörðum.
Bilið milli útgjalda og tekna ríkissjóðs verður ekki
bara brúað að hluta með skattahækkunum því áætl-
að er að sala eigna skili rúmum 8 milljörðum króna.
Sjónarspil og blekkingarleikur á kosningavetri
Í vikunni gagrýndu þingmenn stjórnarandstöð-
unnar fjárlagafrumvarpið sem margir þeirra segja
að sýni ekki rétta stöðu ríkissjóðs. „Það hefði gefið
réttari mynd af stöðu ríkissjóðs ef gert væri t.d. ráð
fyrir þeim fjármunum sem ríkið þarf að öllum lík-
indum að greiða inn í Íbúðalánasjóð til þess að
mæta kröfum um 5% eiginfjárhlutfall,“ segir Ragn-
heiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins. Væntanleg greiðsla ríkisins inn í Íbúða-
lánasjóð er að sögn Ragnheiðar á bilinu 10 til 14
milljarðar. „Þetta er upphæð sem forstjóri Íbúða-
lánasjóðs upplýsti þingmenn um á fundi vel-
ferðanefndar í vikunni og fjármálaráðuneytið er
búið að vita að lægi fyrir a.m.k. frá því í apríl. Þetta
er aðeins eitt dæmi og sýnir vel að fjárlaga-
frumvarpið er sjónarspil og blekkingarleikur á
kosningavetri.“
Að mati Ragnheiðar hefur efnahagsstefna ríkis-
stjórnarinnar siglt í strand. „Á sama tíma og álögur
eru stöðugt hækkaðar á almenning hefur enn ekki
náðst jafnvægi á ríkisfjármálunum. Og ef menn
færðu bókhaldið eins og á að færa það sæist að stað-
an er ekki góð og miklu verri en menn vilja vera
láta,“ segir Ragnheiður sem telur brýnt að tekið
verið á vandanum í stað þess að fegra hann og fela.
„Við þurfum að greiða niður skuldir og ná niður
vaxtakostnaði ríkisins, auka hagvöxt og er-lenda
fjárfestingu t.d. með lækkun skatta ekki hækkun
þeirra og við eigum ekki að færa skuld-irnar yfir á
börnin okkar og barnabörn.“
Skattar og gjöld
hækka á næsta ári
Áætlað að taka 29 milljörðum
meira í skatt á næsta ári
Vikuspegill
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Alls 573.145,00 milljónir króna
Fjármálafrumvarp 2013
Framlög til ráðuneyta í milljónum króna
Velferðarráðuneyti
Vaxtagjöld ríkissjóðs
Menntamálaráðuneyti
Innanríkisráðuneyti
Fjármálaráðuneyti
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
Utanríkisráðuneyti
Umhverfisráðuneyti
Iðnaðarráðuneyti
Efnahags- og viðskiptaráðuneyti
Æðsta stjórn ríkisins
Forsætisráðuneyti
233.557,40
88.097,00
66.273,90
66.088,80
62.823,80
20.057,30
11.051,30
8.894,80
7.411,80
4.198,90
3.649,60
1.040,40
Stærsti einstaki útgjaldaliður
íslenska ríkisins eru vaxta-
greiðslur sem nema 88 millj-
örðum samkvæmt fjárlaga-
frumvarpinu. Aðeins útgjöld
velferðarráðuneytisins eru
hærri en þau skiptast niður á
marga þætti svo sem lífeyr-
istryggingar, Landspítalann,
Sjúkratryggingar, atvinnuleys-
istryggingasjóð o.fl.
Vaxtagreiðslur
88 milljarðar
Við bjóðum eigendur Marina Apartments
velkomna í hóp ánægðra viðskiptavina
Hver sér um þína heimasíðu?
www.tonaflod.is Sími 553 0401
www.marinaapartments.is