SunnudagsMogginn - 16.09.2012, Side 41
16. september 2012 41
LÁRÉTT
1. Rekald af sjávardýri færir mat. (8)
4. Ax eitt fær erfðaefni í vorlok af vopnunum. (7)
7. Tákn sem lýsir kjökri og hljóði þess. (10)
8. Svo kemur blaðsíðan. (5)
9. Huglaust erfiði með ílát. (8)
13. Sá sem veldur veikindum greinarmerkis er af ætt-
kvísl gerla. (11)
14. Gríp um orku hjá Jesús. (7)
15. Öfugt við litinn á líkamshlutunum að sögn. (8)
17. Sleip slátri kind sem er kölkuð. (10)
19. Altært er að flækjast fyrir aukvisa. (8)
21. Valda vegna kaosar. (6)
23. Sýnið að ég hörfa með afkvæmi geitar að sögn.
(6)
24. Almennur Úgandamaður tapar innihaldi við að
verða lágt settur einstaklingur. (11)
28. Hafði í hyggju að matarhæf dragi að. (6)
30. Sá sem líkist klukkutíma er jarðneskur. (10)
31. Mundaði engu taði. (5)
32. Helst ágengast. (7)
33. Bræðið ljá í geðveikinni. (9)
34. Loftstraumsventlarnir hjá hverflyndu mönnunum.
(12)
LÓÐRÉTT
1. Tákn á undan með skilyrði. (8)
2. Kona skín með straumum af eindum. (11)
3. Fljót ávítar stuttar (9)
4. Tómt elliheimili á svæði sem ekki hefur fennt á.
(3,5)
5. Spyr Ými um pláss. (8)
6. Sú sem létt er að brjóta flækist um hjá aðilunum.
(8)
10. Djúp úr rúðu færir okkur seiði. (7)
11. Vegna grasafróðs tapar góð spori. (7)
12. Geri mörk norðar en skeleggar. (11)
16. Tekst í ellefu að búa til hlut gerðan úr vefjarefni að
sögn. (7)
18. Elskuleg hjá handriði í blíðunni. (9)
20. Veitti og sá að abstrakt er komið að einum. (10)
22. Afsegi leiður á hátíðartímabili. (9)
25. Blanda af homo sapiens og ovis aries skapar fólk
jarðar. (8)
26. Aginn fær fær flækt net frá umboðsmanninum. (8)
27. Það arðbærasta ber greinilega munstrað. (8)
29. Höfnuðum af hvorugu tveggja. (7)
Verðlaun eru veitt fyrir
krossgátu vikunnar. Senda
skal þátttökuseðilinn í um-
slagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádeg-
ismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn
krossgátu 15. september
rennur út á hádegi 21. sept-
ember. Vinningshafi kross-
gátunnar 9. september er Jóhannes Sigmunds-
son, Syðra-Langholti, 845 Flúðum. Hann hlýtur í
verðlaun bókina Fantasíur í ritstjórn Hildar Sverr-
isdóttur. Forlagið gefur bókina út.
Krossgátuverðlaun
Armenar eru ólympíumeistarar í
opnum flokki og Rússar í
kvennaflokki. Þetta eru helstu
niðurstöður 40. ólympíumótsins
sem lauk í Istanbul í Tyrklandi
um síðustu helgi. Báðar sigur-
sveitirnar unnu gullið á stiga-
mun. Í opna flokknum hlutu
Rússar jafn mörg stig og Armen-
ar og í kvennaflokki fengu kín-
versku stúlkurnar jafn mörg stig
og Rússar. Þetta er í þriðja sinn á
sex árum sem Armenar verða ól-
ympíumeistarar.
Keppnin ár var geysispenn-
andi en fyrir lokaumferðina
stóðu Kínverjar best að vígi, en
töpuðu fyrir Úkraínumönnum
sem náðu í bronsið. Rússar urðu
að láta sér lynda 2. sætið en
höfðu um tíma tveggja stiga for-
skot eða þar til þeir mættu
Bandaríkjamönnum og töpuðu 1
½ : 2 ½.
Íslenska liðið bætti örlítið ætl-
aðan árangur, varð í 47. sæti af
150 þátttökuþjóðum en var í
upphafi raðað í 51. sæti. Menn
höfðu gert sér vonir um talsvert
betri árangur. Jákvæður þáttur
var góð frammistaða Þrastar
Þórhallsson sem hlaut 7 ½ vinn-
ing af 10 mögulegum. Hjörvar
Steinn stóð fyrir sínu en Hannes
Hlífar og Henrik Danielsen virk-
uðu á köflum óöruggir. Dagur
Arngrímsson kom inn í liðið með
litlum fyrirvara og hefði þurft
meiri tíma til undirbúnings. Ís-
lenska sveitin var sein í gang en
undir lokin var eins og menn
væru að nálgast eðlilegan styrk.
Hvað keppnisfyrirkomulagið á
ólympíumótum áhrærir þá hefur
umferðum verið fækkað úr
þrettán í ellefu og stigakerfi tekið
upp. Það er að margra áliti skref
aftur á bak. Miklar tilviljanir réðu
röðun fyrir hverja umferð.
Þokkalegar sveitir, eins og sú
danska, tefldu við mun lakari
sveitir mestallt mótið og þó
sumir sveitarmeðlimir næðu háu
vinningshlutfalli lækkuðu þeir
flestir á stigum. Gamla vinn-
ingakerfið skipti yfirleitt mótinu
betur upp og lokaniðurstaðan
var meira í takt við skákgetu.
Margir glæstir sigrar unnust í
Tyrklandi og fylgir hér besta
skák Hannesar Hlífars:
Hannes Hlífar Stefánsson –
Maghami Ghaem (Íran)
Spænskur leikur e4 e5 2. Rf3
Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O
Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 O-O
9. h3 Rb8 10. d4 Rbd7 11. Rbd2
Bb7 12. Bc2 He8 13. Rf1 Bf8 14.
Rg3 g6 15. b3 c6 16. Bg5
Breyer-afbrigðið á alltaf sína
fylgismenn. Fischer beitti 16.
leiknum í fyrstu skákinni í end-
urkomueinvíginu við Spasskí ár-
ið 1992.
16. … Bg7 17. Dd2 De7 18. Bh6
Bxh6 19. Dxh6 c5 20. Had1 Hac8
21. Bb1 Rf8?
Íraninn viðist hafa vanmetið
næsta leik Hannesar. Öruggara
var 21. .. Df8.
22. Rh4! R6d7 23. Rhf5!
Þessi leikur lá í loftinu. Hvítur
gefur tvo létta fyrir hrók og tvö
peð.
23. … gxf5 24. Rxf5 Df6 25.
Dxf6 Rxf6 26. Rxd6 cxd4 27.
cxd4 Hb8 28. Rxe8 Hxe8 29. dxe5
Hxe5 30. f4 He7 31. e5 Rd5 32. f5!
Það er afar mikilvægt að svart-
ur nái ekki að skorða peðin.
Hannes hafði séð fyrir 34. leik-
inn.
32. … Rc3 33. Hd8! Rxb1
- sjá stöðumynd -
34. He3!
Hér er kominn kjarni flétt-
unnar. Hvítur skilur riddarann
eftir en hótar 35. Hg3+ og mátar.
34. …. f6 35. e6! Kg7 36. Hg3+
Rg6 37. fxg6 hxg6 38. Hd7! Kf8
39. Hxg6 Be4
Skárra var 39. … Bc6 en eftir
40. Hxf6+ Kg7 eða 40. .. Ke8 41.
Hd6 o.s.frv. 41. Hf7+ Hxf7 42.
Hxf7 Kg6 43. Hf8! og 44. e7 vinn-
ur hvítur.
40. Hd8+ He8 41. Hg8+! Kxg8
42. Hxe8+ Kg7 43. Hc8
- og svartur gafst upp.
Um frammistöðu kvenna-
sveitarinnar verður fjallað í
næsta pistli.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Armenar og Rússar hrepptu gullið
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta