Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Side 4
Ekki þarf að orðlengja að þaðbreytir yfirbragði Samfylk-ingarinnar þegar Jóhanna Sigurðardóttir víkur sæti eftir 35 ára þingsetu. Enda er líklegt að krafa fylgi um kynslóðaskipti, kannski nýjar áherslur. „Ég held að áhrifin verði eins og bresti klakabönd,“ segir áhrifamað- ur innan flokksins. „Lítil umræða hefur verið í flokknum, ekkert mátt segja við Jóhönnu eða um hana.“ Skoðanir eru skiptar og margir hafa orð á að hún hafi unnið þrek- virki. En sumir þeirra hrósa henni í sömu andrá fyrir að þekkja sinn vitjunartíma, eins og einn þingmað- ur flokksins orðaði það: „Nú fær hún litmynd af sér í Íslandssög- unni.“ Ólympíulágmarkið Um leið er Jóhanna gagnrýnd fyrir að hafa gefið út mikið af ein- hliða yfirlýsingum, unnið með boð- valdi og notað vald formannsins, án þess að sækja umboð til flokks- manna, t.d. hvað varðar aðild að ESB, stjórnarskrána, rammaáætl- unina og hvaða kosti í ríkisstjórn flokkurinn á að hafa eftir næstu kosningar. „Nú geri ég ráð fyrir að það verði umræða en ekki einræða eins og vr í þrjú og hálft ár,“ sagði einn viðmælandi. Og rekur það til þess að Jóhanna hafi alltaf skírskotað til þess að hún hafi verið beðin um að taka að sér formennskuna í flokknum og því haft friðhelgi, nokkuð sem eigi sér ekki fordæmi í íslenskum stjórnmálum. „Það hefur verið farið um hana mýkri höndum og engar kröfur til hennar gerðar.“ Prófkjörin í haust verða forleikur að formannsslagnum í febrúar. „Ég myndi orða það þannig að menn þyrftu að ná ólympíulágmarkinu og það ræðst af prófkjörunum í haust,“ segir þingmaður Samfylkingarinnar. „Þeir sem ná efstu sætunum hafa þar með náð lágmarkinu.“ Útlit er fyrir að slagur sé í upp- siglingu í Suðvesturkjördæmi á milli Árna Páls Árnasonar, sem hefur um nokkurt skeið haft hug á formanns- framboði, og Katrínar Júl- íusdóttur sem tekur við sem fjár- málaráð- herra á mánudag eftir fæðing- arorlof, en hún er einnig orðuð við formanninn og útilokar ekkert í þeim efnum. Hún tilkynnir á mánu- dag í hvaða sæti hún gefur kost á sér í kjördæminu, en Árni Páll hef- ur þegar gefið út að hann stefni á efsta sætið. Þá gæti Lúðvík Geirsson blandað sér í baráttuna, en hann hefur enn ekki sagt á hvaða sæti hann stefnir og raunar ekki útilokað formanns- framboð. Hann horfir eflaust til þess að fái hann sterka kosningu eigi hann möguleika á formanns- stólnum í framhaldi af því. Það vakti deilur er Árna Páli var ýtt úr ríkisstjórn. Fyrir vikið segja sumir hann hafa skírskotun út fyrir flokksraðirnar. Ef til vill er það vís- bending um styrk hans að meiri- hluti kjördæmisráðs hafi ákveðið að halda opið prófkjör, þrátt fyrir að stjórnin legði til að það yrði ein- ungis opið flokksmönnum. En það verða átök í fleiri kjör- dæmum. Horft hefur verið til Guð- bjarts Hannessonar velferðar- ráðherra sem formannsefnis, einn sveitarstjórnarmaður líkir honum við „líflandið“, en óumdeilt er að staða hans veiktist mikið með deil- unum um launamál forstjóra Land- spítalans. Ólína Þorvarðardóttir hef- ur ákveðið að fara gegn honum í fyrsta sætið í Norðvesturkjördæmi. Ný andlit Í Norðausturkjördæmi gefa þing- mennirnir Kristján L. Möller, Sig- mundur Ernir Rúnarsson og Jónína Rós Guðmundsdóttir kost á sér. En fleiri eru orðaðir við framboð, m.a. Kristrún Heimisdóttir, Erna Indr- iðadóttir og Helena Þ. Karlsdóttir. Logi Már Einarsson ætlar ekki fram, en hann er oddviti flokksins í bæjarstjórn á Akureyri. Á Suðurlandi er talað um að ráð- herrann Oddný G. Harðardóttir stefni á fyrsta sæti, Björgvin G. Sigurðsson haldi áfram og að vara- þingmaðurinn Anna Margrét Guð- jónsdóttir hyggist blanda sér í slag- inn. Að síðustu kann að vera að Dag- ur B. Eggertsson, varaformaður flokksins og oddviti í borgarstjórn, ákveði að flytja sig um set yfir í landsmálin. Hann segist þó ekki „á neinum framboðsbuxum“. Og fleiri en einn þingmaður telja raunar lík- legt að hann fái á sig mótframboð sem varaformaður. Morgunblaðið/Kristinn Eins og bresti klakabönd ALLT ER OPIÐ UPP Á GÁTT Í FORMANNSSLAGNUM INNAN SAMFYLKINGARINNAR EFTIR AÐ JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR TILKYNNTI AÐ HÚN GÆFI EKKI KOST Á SÉR. ÚTLIT ER FYRIR AÐ TÓNNINN VERÐI GEFINN Í PRÓFKJÖRUM Í NÓVEMBER. ÞAR ERU MARGIR KALLAÐIR. STORKAÐI FORYSTUNNI Í borginni var eftir því tekið þegar Sigríður Ingibjörg Inga- dóttir bauð sig fram í annað af tveim efstu sætunum og storkaði Össuri Skarphéð- inssyni og Jóhönnu Sigurð- ardóttur, sem þá hafði ekki tilkynnt að hún hygðist hætta. Sigríður útilokar ekki for- mannsframboð og ekki held- ur Helgi Hjörvar, sem vonast eflaust til að marka sér stöðu í prófkjörinu í Reykjavík sem verður að líkindum um miðj- an nóvember. Eini þingmaðurinn í Reykja- vík sem óljóst er hvort gefi kost á sér er Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Al- þingis. Róbert Marshall ætlar sér fram í Reykjavík. Þá mun Anna Pála Sverrisdóttir vara- þingmaður velta fyrir sér að sækjast eftir þingsæti og einn- ig Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Björk Vilhelmsdóttir og Teit- ur Atlason. * „Þegar svona stór steinn losnar þá fer margt af stað.“Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra Þjóðmál PÉTUR BLÖNDAL pebl@mbl.is 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. 09. 2012 Össur Skarphéðinsson stefnir á fyrsta sæti í Reykjavík, en ekki formennsku. „Það endurtekur enginn söguna,“ sagði hann í fyrradag. Morgunblaðið/Kristinn Jóhanna Sigurð- ardóttir hefur lengi verið undir smásjá fjölmiðla.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.