Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Page 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Page 18
*Heilsa og hreyfingFlugfreyja stekkur út úr flugvélum í frístundum. Erfðabreytt matvæli eiga að vera sérmerkt »20 Öll dreymir okkur um að synda með höfr- ungum. Eða hvað? Það er alltént eitt af vinsælustu atriðunum á svokölluðum bucket-listum sem fólk keppist við að setja saman víðsvegar um heim. Allir eru með slíkan lista, allt frá fimmtán ára stúlkunni sem hvarf með stærðfræðikennaranum sínum til Jane Fonda og Bills Clintons. Ætli þetta með vindilinn hafi verið á lista þess síðastnefnda? Á bucket-listum eru hlutir sem fólk telur sig verða að upplifa áður en það deyr og meðan það hefur þrek og heilsu til. Oftar en ekki hverf- ast þessir hlutir um ögranir en annað vinsælt at- riði á listum þessum er fallhlífarstökk. Breska dag- blaðið The Guardian velti þessu með höfrungana sérstaklega fyrir sér í vikunni og vitnaði til sállækn- is sem er viss um að það sé ekki sprottið af þörf- um fólks, heldur sé það ein mesta kynning- arbrella allra tíma af hálfu einhvers sædýrasafns. EITTHVAÐ SEM ALLIR VERÐA AÐ GERA Að synda með höfrungum Höfrungar eru svaðalegar dúllur sem okkur dreymir langflest um að kynnast betur. AFP F rystur íslenskur barnamatur úr alíslensku græn- meti, Kátir kroppar, er að koma í allar helstu verslanir hérlendis um þessar mundir. Fjórar tegundir eru í boði, gulrætur, gulrætur og steinselja, gulrófur og loks spergilkál og blómkál. Ákveðið var að hafa vöruna frosna til að tryggja sem best varðveislu næringarefna í matnum og í maukinu eru engin aukaefni. Upphaf verkefnisins má rekja til þess þegar Guðrún Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur var í fæðingarorlofi og maukaði sjálf barnamat fyrir son sinn. „En þar sem hann var að byrja að borða í desember/janúar var lítið um íslenskt ferskt grænmeti. Ég fékk því þá hugmynd að gera barnamat úr fersku íslensku grænmeti sem væri seldur frosinn,“ segir Guðrún. Hún nefndi þessa hugmynd við nokkrar vinkonur og þar á meðal Þórdísi Jóhannsdóttur sem hafði áhuga á að fylgja hugmyndinni eftir. Þær stöllur fóru meðal annars í tilraunaframleiðslu í samstarfi við Matís á Höfn í Hornafirði og í kjölfarið ákvað Þórdís að vinna lokaverkefni sitt í iðnrekstr- arfræði um barnamatinn. „Það var ómetanlegt að kom- ast á Höfn. Þarna voru öll tæki og tól. Svo komum við heim með fullan bíl af mat og sendum í örveru- og efnamælingar hjá Matís. Það kom vel út svo við héldum ótrauðar áfram,“ segir Þórdís. Í kjölfar prófana kom Sölufélag garðyrkjumanna í samstarf með þeim stöllum en dótturfélagið Í einum grænum sér um framleiðslu og dreifingu.Guðrún Stefánsdóttir og Þórdís Jóhannsdóttir eru konurnar á bak við barnamatinn sem þróaður var með aðstoð frá Matís. Morgunblaðið/Ómar FRYSTUR ÍSLENSKUR BARNAMATUR Kátir kroppar ÝMSAR HUGMYNDIR KVIKNA Í FÆÐING- ARORLOFI. GUÐRÚNU STEFÁNSDÓTTUR FANNST VANTA BARNAMAT ÚR ÍSLENSKU GRÆNMETI Í HILLUR VERSLANA OG HEFUR NÚ BÆTT ÚR ÞVÍ Í SAMSTARFI VIÐ ÞÓRDÍSI JÓHANNSDÓTTUR OG SÖLUFÉLAG GARÐ- YRKJUMANNA Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Að grípa með sér óholla skyndibita og gosdrykki í amstri dagsins er algengt í lífi vinnualkans. Auðvelt er að kenna löngum vinnudegi um en eftirfarandi ráð gætu reynst vel: * Athugaðu á mánudagsmorgni hvað þú getur haftmeð þér hollt í vinnuna. Taktu til nokkra ávexti, hnetupoka, rúsínur, dökkt súkkulaði og settu í skrifborðsskúffuna. * Fáðu þér morgunmat, einfaldur hafragrautur tekurekki nema nokkrar mínútur í framleiðslu en dugir lengi. * Athugaðu hvort er ísskápur á vinnustaðnum ogkomdu þar fyrir einhverju sem geymist út vikuna. Jógúrt, skyri, flatbrauði með osti og slíku. * Ef þú ert í símtali gakktu þá um vinnustaðinn meðanþú nýtir tímann til að tala. * Farðu út þegar tækifæri gefst og dragðu andanndjúpt til að fá súrefni.Á mánudagsmorgni er gott að setjahollan millibita í skrifborðsskúffuna. Morgunblaðið/Árni Sæberg MATARRÁÐ FYRIR ÞÁ STRESSUÐU Heilsa vinnualkans

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.