Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Side 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Side 22
*Heimili og hönnunInnlit í stórglæsilegt einbýli á Álftanesinu þar sem sjávarútsýnið fær að njóta sín »24 F jölhæfu arkitektarnir Árný Þórarinsdóttir og Helga G. Vilmundardóttir, sem sam- an mynda hönnunarteymið Stáss eru alltaf að fást við eitthvað nýtt. Hilla sem Stáss frumsýndi á hönnunarvikunni í Stokkhólmi og hefur verið að þróa síðan er nú komin í sölu í Netagerðinni, sem er bækistöð Stáss, og Epal. „Við köllum hana „Fold“ því hún er svona brot. Hún er sniðug til dæmis í forstofu, fyrir blöð og lykla. Hún er líka hentug í svefn- herbergi fyrir smádótið og bæk- urnar eða jafnvel sem náttborð,“ útskýrir Árný. Handrenndar skálar úr beyki Tvö efni kallast skemmti- lega á í hönnuninni. „Þarna er samspil tveggja efna, dufthúðað ál er í hillunni og beyki og skálarnar eru hand- renndar. Við erum spenntar að halda áfram að vinna með þessi tvö efni,“ segir hún en hillan kemur bæði í þessum túrkisgræna lit sem sést á myndinni og steingráum. Stáss hlaut Skúlaverðlaunin fyrir hitaplatta sem ber nafnið Torfbær- inn á sýningunni Handverk og hönnun í fyrra. Skúlaverðlaunin eru veitt fyrir besta nýja hlutinn meðal þátttakenda. Plattinn fór strax á markað en tvíeykið hefur nú þróað nýjar umbúðir sem Torf- bærinn er nú búinn að klæða sig í. „Hann er úr krossvið sem er meðhöndlaður með hitaþolnu efni,“ segir hún en það skemmtilega við þennan platta er að hann saman- stendur af mörgum hlutum sem hægt er að raða upp eftir þörfum. Íslensk framleiðsla „Plattinn er framleiddur hérna heima,“ segir Árný en fyrr- nefnd hilla er sömuleiðis íslensk framleiðsla. „Það er gaman að geta unnið með framleiðendum að svona hlutum. Það eru ákveðnar hömlur hér en þetta er líka áskorun,“ segir hún. Stærsta verkefni Stáss sem stendur er þó af allt öðrum toga. Tvíeykið er að hanna útiæf- ingasvæði við höfnina á svæðinu milli Sjóminjasafnsins og gamla slippsins. Verkefnið er að frum- kvæði Reykjavíkurborgar og Faxa- flóahafna og verður framkvæmt í samvinnu við Mjölni. „Við höfum reynt að endurnýta og glæða gamla hluti nýju lífi,“ segir Árný en það verður spennandi að sjá út- komuna þegar svæðið verður tilbú- ið á næstu vikum. „Við viljum ekki festa okkur í einhverju einu,“ segir Árný um fjölbreytta verkefnavalið og virðist það harla ólíklegt á þess- ari stundu. Hillan nýtist til dæmis vel undir smáhluti, skart og bækur. Hún fæst einnig í steingráum lit. Leiðbeinandi verð 29.000 kr. STÁSS HANNAR ALLT FRÁ HILLUM OG HITAPLÖTTUM YFIR Í ÚTIÆFINGASVÆÐI Púðar eru á með- al þess sem Stáss hefur fengist við að undanförnu. Leiðbeinandi verð 5.500 kr. Hitaplattinn Torfbærinn er úr nokkrum mis- munandi ein- ingum sem hægt er að raða sam- an á ýmsa vegu. Leiðbeinandi verð 5.000 kr. Samspil tveggja efna ARKITEKTARNIR ÁRNÝ ÞÓRARINSDÓTTIR OG HELGA G. VILMUNDARDÓTTIR HAFA UNNIÐ SAMAN FRÁ ÞVÍ Í OKTÓBER 2008 UNDIR NAFNINU STÁSS OG FENGIST VIÐ SÉRLEGA FJÖLBREYTT VERKEFNI. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Þetta nýja bjöllulaga ljós frá hinu þekkta danska hönn- unarfyrirtæki Normann Copenhagen hefur fengið góðar viðtökur og er sem stendur uppselt á heimasíðu fyrirtæk- isins. Ljósið kallast einfaldlega „Bell“ en hönnuðir þess eru Andreas Lund og Jacob Rudbeck og hafa þeir þetta að segja um bjölluna sína. „Oftast er snúran og það sem teng- ir snúruna við ljósið aukaatriði í hönnun ljósa. Þetta er meira eitthvað sem er nauðsyn. Í Bell ertu með ljós þar sem þessi tenging er augljós. Ljós safnar saman fólki og í sögulegu samhengi hafa bjöllur verið notaðar til að kalla fólk saman,“ segja þeir en ljósið er einmitt kjörið til að hengja fyrir ofan eldhúsborð þar sem fólk safnast einmitt gjarnan saman. ingarun@mbl.is Bjallan kemur í tveimur litum og tveimur stærðum. Hægt er að nota nokkrar saman. Bjartur bjölluhljómur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.