Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Side 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Side 46
uð til viðbótar og ég fann að minni högg á höfuðið eins og bara að skalla boltann í hornspyrnum og þess háttar höfðu meiri áhrif og ég varð slappari. Eftir á að hyggja var þetta ekki mjög gáfulegt,“ útskýrði Guðrún. Í framhaldinu tók við tímabil þar sem Guðrún var með stanslausan höfuðverk en hún bjóst ekki við öðru en að það myndi lagast á nokkrum mánuðum. Hún var því ekkert að velta því fyrir sér hvort fótbolta- ferlinum væri lokið. „Meiðsli eins og þessi eru erfið. Það getur verið um smá blæðingu utan á heila að ræða, mar í rauninni, og það sést oft ekki á myndum. Ég fór til lækna bæði hér heima og í Svíþjóð en fékk misvísandi svör. Það var erfitt að finna rétt- an aðila. Ég þurfti að finna lækni sem hafði þekkingu á höfuðmeiðslum og að sama skapi gat sett sig inn í hvaða áhrif áfram- G uðrún var um langt skeið fastamaður í landsliðinu sem ís- lenska þjóðin hefur fylgst svo grannt með á undanförnum árum. Hún lék með liðinu í lokakeppni Evr- ópumótsins í Finnlandi sumarið 2009 en þar má segja að örlögin hafi tekið í taumana. Guðrún fékk höfuðhögg í fyrsta leiknum á móti Frökkum sem dró dilk á eftir sér. Næstu mánuðina ríkti óvissuástand um hvort og hvenær hún næði fullri heilsu og knattspyrnuferillinn fékk á vissan hátt sorg- legan endi. Morgunblaðið fékk að forvitnast um þessa reynslu Guðrúnar sem virðist hafa tekið þessum skakkaföllum með jafnaðargeði þrátt fyrir allt. „Ég lenti í því að fá höfuð- högg þarna í fyrsta leiknum og oftast sem betur fer hafa svona högg í fótbolta litlar afleiðingar. Ég hélt bara áfram og spilaði allar mínúturnar í leikjunum þremur í Finn- landi. Ég taldi ekki að þetta væri neitt al- varlegt enda hjálpar adrenalínið til þegar maður spilar svona mikilvæga leiki “ sagði Guðrún sem fyrr um árið hafði gerst at- vinnumaður hjá Djurgården í Stokkhólmi. Þar mætti henni lítill skilningur að mótinu loknu í Finnlandi. Meiðsli sem sjást ekki á myndum „Ég ætlaði að fá að hvíla aðeins eftir keppnina enda var ég hundslöpp þegar ég kom til baka. En ég var náttúrlega atvinnu- maður og þjálfarinn sagði einfaldlega að fyrst ég spilaði alla leikina með landsliðinu þá hlyti ég að geta spilað með Djurgården. Þá var ég strax sett í fullar æfingar en var alls ekki í standi til þess. Ég keppti í mán- haldandi íþróttaiðkun hefur á þau. Á end- anum fór ég til íslensks læknis í Svíþjóð, Ólafs Sveinssonar. Hann greindi strax hvað var að og gat gefið mér ráðleggingar því hann hafði sinnt fleirum í sömu sporum. Það var samt sem áður ekki hægt að segja hversu langan tíma það tæki að ná bata því það er ólíkt eftir einstaklingum,“ sagði Guð- rún og fyrir hana var hughreystandi að Ólafur hafði alltaf trú á því að hún næði fullum bata. Tilhugsunin um að vera með höfuðverk til æviloka hljómar ekki vel. „Vandinn er sá að það er ekki há pró- senta af þeim sem fá höfuðhögg sem lenda í þessu. Það er mjög erfitt að vera í ástandi sem maður veit ekki hvernig á að vinna sig út úr. Þetta var auðvitað ekkert auðvelt. Ég sökkti mér þó ekki í þunglyndi og var ekki að leiða hugann að því hvort þetta gæti orð- ið til frambúðar. Ég hugsaði með mér að Viðtal 46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. 09. 2012

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.