Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Qupperneq 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Qupperneq 51
komið eftir að ég byrjaði að starfa við þetta.“ Þörf fyrir náttúru Kolfinna er hálfgerð sveitastelpa. Hún ólst upp í Vestmannaeyjum og viðurkennir að það sé dálítið öfgakennt að dvelja í stærstu borgum heims í endalausu mannhafi eftir að hafa alið manninn að mestu leyti í litlu sjávarplássi. Kolfinna ber taugar til Eyja sem hún segir þó hafa verið afar sérstakan stað til að alast upp á. Umhverfið hafi ver- ið öruggt en þorpið hafi þó verið helst til of lítið fyrir hana. „Ég var í Eyjum stærst- an hluta lífs míns en þegar kom að því að fara í framhaldsskóla flutti ég til Reykja- víkur. Í mér er þó mjög sterk þörf fyrir náttúruna. Ég þarf helst alltaf að vera um- kringd landslagi og það var því hálfgert menningarsjokk fyrir mig, sérstaklega þar sem ég er úr Vestmannaeyjum, að flytja til New York. Líklega hefur þetta verið eitt það skrýtnasta við þennan tíma, að hafa ekki víðáttuna sem ég er svo vön. Hins vegar hef ég fundið mér staði eins og ótrú- legt svæði fyrir utan borgina, Upstate- skógana, sem er eitt það fallegasta sem ég hef séð og ég þarf reglulega að komast að- eins út úr borginni.“ Þó að Kolfinna hafi eytt mestum tíma í New York er ekki hægt að tala um fastan dvalarstað nema upp að einhverju marki. Hún flýgur á milli stórborga, stundum oft í mánuði. Ferðalögin geta tekið á en inni á milli geta komið dagar þar sem hægt er að hvílast og „gera ekki neitt“. Úti býr hún með öðrum fyrirsætum sem vinna líka fyrir Next en vinnudagurinn getur verið allt frá klukkan fimm að morgni þar til síðdegis. „Það er ekkert til sem heitir hinn hefð- bundni vinnudagur. Einn daginn er ég kannski að vinna frá fimm um morguninn og fram á kvöld og næsta dag er ég flogin til London þar sem ég er í tvo daga og svo kannski beint frá London til Mílanó þar sem ég er kannski í viku. Ég er hætt að hafa tölu á því hvað ég hef oft flogið til London út af vinnunni en ég hef mest ver- ið á ferðalögum milli London, New York, Mílanó og París og svo hef ég farið Stokk- hólms. Maður veit aldrei með morgundag- inn.“ Kolfinna í eftirlæti hjá Wang Það kemur fyrir að fatahönnuðir falli fyrir ákveðnum fyrirsætum og slíkt getur komið fyrirsætum rækilega á kortið. Þannig hefur það líklega haft mikið að segja að Alexand- er Wang hefur haft dálæti á Kolfinnu. Hönnun sína, stígvél, nefndi hann eftir fyr- irsætunni og hönnuðurinn MarcJacobs fékk Kolfinnu til að loka sýningu sinni í New York en það er mikil upphefð fyrir fyr- irsætur að fá að ganga pallinn síðastar. Kolfinna sýndi báðar fatalínur hönnuðarins, Marc by Marc Jacobs og Marc Jacobs. „Ég er búin að vera í ýmsu en myndi nú segja að forsíðan á i-D væri toppurinn, ég hefði ekki getað ímyndað mér að komast þangað. Í þessu öllu hefur skipt máli að vera sveigjanlegur. Sumum tískuhönnuðum kynn- ist maður nánar en öðrum og það er bara mismunandi eins og hönnuðirnir eru marg- ir. Þetta fer líka eftir því hversu lengi maður er að vinna með þeim. Þegar ég vann fyrir Versace í fjóra til fimm daga í Mílanó kynntist ég til dæmis Donatellu Versace aðeins betur,“ segir Kolfinna. „Nei, ég veit ekki af hverju Alexander Wang nefndi stígvélin eftir mér en það var mjög gaman en kom mér jafnframt virkilega á óvart. Hann er mjög indæll og líklega hef ég unnið mest með honum þann tíma sem ég hef verið í þessum geira.“ Bikiní að vetri og ull á sumrin Tröllasögur ganga stundum um hinar skrýtnustu staðsetningar og aðstæður í myndatökum og þar hefur Kolfinna prófað ýmislegt. Fyrir i-Dstóð hún uppi á hinum frægu og snarbröttu White Cliffs í Eng- landi þar sem ljósmyndarinn Boo George myndaði hana. „Ég gerði forsíðu á Teen Vogue með Boo George og það var í fram- haldi af þeirri vinnu býst ég við sem þau höfðu samband við mig fyrir i-D. En hvað tökur varðar hef ég prófað allt mögulegt og ómögulegt. Þar sem sumarlínur eru myndaðar að vetri til og öfugt skapast oft vandræði. Ég hef verið í bikiníi að vetri til, með hitapoka á bakinu. Þetta er mjög erf- itt en myndirnar við þessar aðstæður verða afar flottar. Það sama má segja um sumr- in, þá hef ég legið á brennheitri gangstétt í 25 stiga hita í leðurkápu frá Alexander Wang, tveimur ullarpeysum, þykkum bux- um og uppháum stígvélum. Manni er yf- irleitt of kalt eða of heitt.“ Eins og myndatökur geta verið fjöl- breyttar eru sýningar Kolfinnu líka að skapi þar sem hægt er að fá öflugt adr- enalínkikk. „Nei, ég er nú lítið að spá í hvaða frægðarfólk situr þarna fremst. Anna Wintour er auðvitað alltaf á sýningunum og kemur gjarnan baksviðs en maður er orð- inn vanur því að sjá henni bregða fyrir.“ Kolfinna segir erfitt að svara því hvað framtíðin beri í skauti sér. Í heimi fyr- irsætunnar er slíkt oft ekki ljóst fyrr en á síðustu stundu. Hún hefur þó ákveðið að hvað sem fyrirsætuferlinum líður ætli hún í nám. „Áhugasvið mitt er mjög vítt. Ég teikna mikið og listir hafa alltaf heillað en ég er með smá valkvíða því það er svo margt sem ég hef áhuga á. Það er kannski eitt af því sem ég kann betur að meta hér heima eftir að ég fluttist út fyrir utan nátt- úru landsins og víðáttu en það er fjölskylda mín. Ég tek hana ekki lengur sem sjálf- gefna.“ Kolfinna hefur þá sérstöku og skemmtilegu sögu að segja að lokum að þegar fjölskyldan hittist til að borða saman er Kolfinna „höfð með“. Það er segja, við borðið er Kolfinna í raun þátttakandi í matarboðinu með því að vera í sambandi í tölvu á borðstofuborðinu á Skype. „Þá hef- ur systir mín leyft mér að vera einskonar þátttakandi í partíum með því að hafa mig með í símanum allan tímann. Það hefur gefið mér heilmikið.“ * „Þetta með aðfyrirsætur og þeirsem eru í þessum geira hafi ekkert milli eyrn- anna er tóm þvæla.“ 30. 09. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 Kolfinna hefur verið afar eftirsótt hjá ritstjórum tískutímarita síðasta árið. Fyrirsætan hefur birst á for- síðum blaða, allt frá Kína til Am- eríku. Nýjasta afrekið er eins konar aðgangspassi í það að teljast ofur- fyrirsæta en forsíða tímaritsins i-D sem sést hér lengst til hægri er ekki í boði nema þú teljist með „þeim heitustu“. Einn virtasti ljósmyndari tísku- geirans, Boo George, myndaði Kolfinnu í þeirri töku en mynda- takan var afar strembin þar sem myndað var við hina gullfallegu en stórhættulegu White Cliffs við ensku strandlengjuna. Að sjálf- sögðu voru miklar öryggisráðstaf- anir gerðar. FORSÍÐUR KOLFINNU Forsíða Vision-tímaritsins en Kolfinna segir for- síðumyndatökur mikinn skapgerðarleik. Kolfinna sjálf segir forsíðu i-D hápunkt ákveð- inn hápunkt á annars glæstum ferli.Kolfinna á forsíðu Russh frá því fyrr í sumar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.