Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Page 56
Alexandra og gjafabækurnar sem hún hannaði. „Ég þarf að vera hugmyndarík og vona að ég
sé það. Ég er alltaf að reyna að koma með eitthvað nýtt.“
F
yrir sjö árum flutti Alexandra Buhl,
grafískur hönnuður, frá Þýskalandi
til Íslands ásamt íslenskum eig-
inmanni sínum. Síðustu fjögur árin
hefur Alexandra starfað sem bókahönnuður
hjá Forlaginu. Nýlega hannaði hún einkar
fallegar kápur á fjórar nýjar bækur í gjafa-
seríu, Íslensk kvæði, Íslensk orðsnilld, Ást-
arljóð Davíðs Stefánssonar og Gæfuspor –
gildin í lífinu.
„Útgáfustjóri Forlagsins, Jóhann Páll
Valdimarsson, hefur lengi viljað gefa út
gjafaseríu eins og þessa,“ segir
Alexandra. „Hann sagði að
nú væri kominn tími til
að byrja, ég skyldi
gera það sem mér
dytti í hug
og taka mér
góðan tíma. Ég
fikraði mig áfram
og gerði prufur og
þetta var útkoman.
Ég er hrifin af efni sem
gaman og gott er að
snerta, þannig að mað-
ur finni fyrir munstr-
inu. Fyrir nokkrum ár-
um kom út Íslensk
sjónabók og þar eru
alls kyns íslensk
munstur. Ég leitaði í
þessa smiðju við
hönnum á bókunum.
Bókakápurnar fjórar
sýna allar ólík íslensk
munstur.“
Alexandra telur líklegt að
framhald verði á þessari fallegu
útgáfu. „Það væri hægt að
gera hundrað gjafabækur
í þessum sama flokki í
viðbót því það er nóg
til af íslenskum munstrum.“
Kápur bókanna eru litríkar og
Alexandra segist hafa lagt
mikið upp úr litavalinu
og hafði litaspjald
frá Ítalíu til hlið-
sjónar. „Vinnan við
útlit þessara bóka
tók sinn tíma en
ég er mjög
ánægð með út-
komuna,“ segir
Alexandra. „Ég
vildi að útlitið
yrði hæfilega
klassískt en um
leið nútímalegt.“
Alexandra sér um skreytingar á íslenska
bókabásnum á bókasýningunni í Frankfurt
sem hefst í október og sýnir þar einstakt
hugmyndaflug. Hún tók gamlar bækur og
bjó til úr pappírnum alls kyns skraut og
munstur sem fest verður á veggi í sýning-
arbásnum. Þetta eru skreytingar sem munu
örugglega vekja mikla athygli. „Ég vildi gera
eitthvað sem vekti forvitni og skapaði stemn-
ingu og væri jafnvel þannig að fólk vildi
þreifa á því.“
Alexandra hannar um tuttugu bókakápur
fyrir Forlagið um þessi jól. „Það er nóg að
gera,“ segir hún. „Ég þarf að vera hug-
myndarík og vona að ég sé það. Ég er alltaf
að reyna að koma með eitthvað nýtt.
Mitt markmið er að gera fallega gripi sem
vekja athygli. Mér finnst skipta máli að
bókakápur séu flottar og grípandi. Fólk
missir svo oft áhugann á að lesa bók ef káp-
an höfðar ekki til þess eða er beinlínis ljót.
Ef kápan er falleg opnar fólk bókina fullt af
tilhlökkun og byrjar að lesa.“
VIÐTAL
Ég vil gera fallega gripi
Morgunblaðið/Kristinn
ALEXANDRA BUHL HEFUR
HANNAÐ FALLEGAR GJAFABÆKUR
OG SÉR UM SKREYTINGAR Í
ÍSLENSKA BÁSNUM Á BÓKA-
STEFNUNNI Í FRANKFURT
Sýnishorn af skreytingum Alexöndru sem
verða í bókabásnum í Frankfurt.
Sumar sögur eru þannig að maðurgetur ekki hugsað sér að lesa þæraftur, jafnvel þótt manni þyki þær
verulega vel heppnaðar.
Um daginn las ég mikla lofrullu í
Sunday Times um bresku skáldkonuna
Elizabeth Taylor, alnöfnu leikkonunnar
frægu. Pistlahöfundur sagði að Taylor
væri furðulega vanmetinn höfundur og
það væri hægt að lesa bækur hennar aft-
ur og aftur, svo
góður skáld-
skapur væri þar
á ferð. Þá rifj-
uðust upp kynni
mín af smásögu
eftir Elizabeth
Taylor. Ég hef
sennilega verið
um tvítugt þeg-
ar ég las smá-
söguna The Flypaper og varð svo skelf-
ingu lostin að ég hét því að lesa þessa
sögu aldrei nokkurn tímann aftur. Ég hef
staðið við það. Þetta er saga sem mikið
lof hefur verið borið á enda meistaraleg í
hryllingi sínum. Þar segir af ungri stúlku
sem ókunnur maður gefur sig á tal við.
Stúlkan veit að morðingi gengur laus í
bænum en lík ungrar stúlku hafði fundist
skömmu áður. Unga stúlkan hræðist
manninn og leitar ásjár hjá vinalegri
eldri konu sem býður henni í heimsókn.
Þegar stúlkan gengur inn í eldhúsið situr
ókunni maðurinn við eldhúsborðið. „Vina-
lega“ konan er í vitorði með manninum.
Stúlkan er fórnarlamb þeirra og lesand-
anum er ljóst að hún mun ekki fá að lifa.
Meinlög örlög, smásaga eftir Somer-
set Maugham,
er sömuleiðis
saga sem ég las
einu sinni og
mun aldrei lesa
aftur. Hún segir
frá breskum
manni í Indóne-
síu sem er ný-
kvæntur breskri
konu sem hann
kynntist í sumarfríi og er ákaflega ham-
ingjusamur. Kona hans, sem hafði flutt
frá Bretlandi til að búa með honum kemst
að því að á yngri árum eignaðist hann
börn með innfæddri konu og konan og
börnin búa í námunda við þau. Hún fyllist
hryllingi og yfirgefur eiginmanninn, sem
lesandinn veit að mun ekki finna ham-
ingjuna eftir það. Ein af síðustu setn-
ingum bókarinnar er: „Heit tár hrundu
niður góðlegt, rauðflekkótt og og kringlu-
leitt andlit hans.“
Þetta fannst mér á sínum tíma sorgleg-
asta saga sem ég hafði lesið.
Sumar sögur koma manni í slíkt upp-
nám að maður getur ekki lesið þær aftur
af ótta við að þær séu enn sorglegar.
Orðanna hljóðan
ALDREI
AFTUR
Elizabet
Taylor
Somerset
Maugham
Það er freistandi að nefna Leitina að
landinu fagra eftir Guðberg Bergsson eða
Hundrað ára einsemd eftir Gabriel
Garcia Marquez sem uppáhaldbækur því
þær voru áhrifamikil lesning á mótunartíma
mínum sem listamanns.
Þó finnst mér að það sé skáldsagan Að-
venta eftir Gunnar Gunnarsson sem gæti
verið leiðarljós fyrir nútímann, sagan af
smalaferð Fjalla-Bensa sem fer í mikla
háskaför til að bjarga fénaði samborgara
sinna með aðstoð hundsins Leós og for-
ystuhrútsins Eitils sýnir hann mikla óeig-
ingirni og væntumþykju til sköpunarverksins
og víða lýsir höfundurinn á hárfínan hátt
hvernig það skiptir meira máli hvað þú ert
en hvernig þú lítur út í augum samborg-
aranna. Ég les mikið af ljóðum en það form
gefur lesandanum oft andrúm til eigin sköp-
unar. Ég les líka bækur sem tengjast Sahaja-
yoga sem ég stunda. Ég er nýbúinn að lesa
Nýja testamentið sem ég mæli einnig
sterklega með.
Í UPPÁHALDI
Daði Guðbjörnsson telur
að Aðventa sé leiðarljós
fyrir nútímann.
DAÐI
GUÐBJÖRNSSON
LISTMÁLARI
Gabriel Garcia
Marquez
Gunnar
Gunnarsson
BÓK VIKUNNAR Allir rithöfundar vilja semja tíma-
mótaverk og Guðbergi Bergssyni tókst það þegar hann skrif-
aði Tómas Jónsson Metsölubók, sem nú er komin út í kilju.
Bækur
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR
kolbrun@mbl.is
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. 09. 2012