Morgunblaðið - 27.10.2012, Page 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2012
Þjóðlegt og alþjóðlegt er yfirskrift
tónleika í 15:15 tónleikasyrpunni
sem fram fara í Norræna húsinu á
morgun kl. 15:15. Þá leika kín-
verski píanóleikarinn Liwen Huang
og Sigurður Halldórsson sellóleik-
ari Tilbrigði við stef frá Slóvakíu
eftir Bohuslav Martinu, Sónötu í d
moll eftir Claude Debussy og Són-
ötu op. 19 í g moll eftir Sergei Ser-
gei Rachmaninoff . „Tónverkin eru
öll frá fyrri hluta 20. aldar en
spanna þrjá af helstu tónlistar-
stefnum þess tímabils, síðrómantík,
impressionisma og nýklassík,“ seg-
ir m.a. í tilkynningu.
Alþjóðlegt
á 15:15
tónleikum
Dúett Sigurður og Liwen Huang.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þetta er enginn skáldskapur heldur
allt sannar frásagnir,“ segir Kristinn
G. Harðarson myndlistarmaður þar
sem við göngum um sýningu hans,
Mæting, sem verður opnuð í öllum
sölum Gerðarsafns í Kópavogi í dag
kl. 15.
Sýningin varpar ljósi á þætti sem
hafa verið mest áberandi í verkum
Kristins á síðustu tveimur áratugum,
einskonar endurspeglun hvers-
dagleikans og upplifana listamanns-
ins á ferðalagi hans um lífið. Kristinn
er einn athyglisverðasti myndlist-
armaður sinnar kynslóðar hér á
landi. Hann beitir ýmsum miðlum,
hvert verk kallar á sína úrlausn,
hvort sem hún byggist á málverki,
ljósmyndum, teikningum, sam-
klippum eða myndböndum, en bak
við öll þessi verk er einhver texti, oft-
ast í formi dagbókar, og afrakstr-
inum má líkja við ljóðræna og
raunsæislega endurspeglun daglegs
lífs listamannsins.
Raunsæ lýsing á umhverfinu
„Þesi verk hafa velflest verið sýnd
áður, sum á samsýningum en önnur á
einkasýningum hér heima og erlend-
is,“ segir Kristinn þar sem við göng-
um um salina. Í efri sölunum snúast
verkin um staði og ferðir og segir
listamaðurinn ýmsa kollega vera
meðal áhrifavalda, nefnir Ásgrím
Jónsson, John Constable og Richard
Long, og svo eru það ferðabókahöf-
undar.
„Það mætti segja að þetta sé
raunsæ lýsing á umhverfi mínu,“ seg-
ir hann. „Ég reyni að fjalla um það
sem ber fyrir augun og segja frá því
sem fyrir ber í daglegu lífi.“
Hann segir að hver frásögn kalli á
sinn miðil. „Mörk verkanna eru unn-
in upp úr dagbókarefni, textum og
ljósmyndum, sem ég hef skrifað eða
myndað í dagsins önn. Sum eru unn-
in sérstaklega fyrir ákveðnar sýn-
ingar og aðstæður sem þeim tengj-
ast, en önnur beint úr þessu
dagbókarefni án þess að ég sé nokk-
uð að hugsa um eitthvað sem kalla
mætti listrænt gildi.“
Dæmi um þetta má sjá í röð ljós-
mynda sem sýna verk sem Kristinn
setti upp fyrir nokkrum árum með-
fram göngustíg fyrir ofan Laug-
arvatn, og í veggverki sem hann vann
fyrir tímabundna sýningu í leikskól-
anum Tjarnarborg. Á því eru hvers-
dagslegar ljósmyndir og textabrot
frá ferðalagi um Austfirði.
„Textinn kemur oft fyrst og mynd-
irnar eru þá eins og myndskreyting,“
segir Kristinn þar sem við göngum
að sjö landslagsmálverkum á vega-
vinnubúkkum fyrir miðjum sal, með
þeim hanga teikningar á snúru; þetta
er verkið Mæting sem sýningin er
kennd við.
„Þetta verk var unnið fyrir ákveð-
in stað, sem það var sýnt upphaflega
á,“ – það var í malargryfju á Skarðs-
strönd á sýningunni Dalir og hólar
fyrir nokkrum árum. „Þetta er ferða-
saga, myndir málaðar eftir ljós-
myndum sem ég tók á ferð um
Skarðsströnd. Ég bauð konu minni,
Helgu Hansdóttur, að gera teikn-
ingar og hún gerði myndir af okkur
fjölskyldunni að dunda í sveitinni.
Þetta eru ekki miklar hetjuferðir,
þetta er ekkert Alpaklifur,“ segir
Kristinn brosandi, „en þetta eru ferð-
ir hér á Íslandi og erlendis, til dæmis
í Hamborg.“ Þar gerði Kristinn verk
sem byggðist á því að hann valdi fyr-
irfram 50 km leið um borgina, gekk
hana, tók myndir og skráði upplifanir
sínar. Afraksturinn var bók- og vef-
verk sem sjá má á vef listamannsins,
www.kgh.is, en þar má sjá nokkur
verk sem eru hluti sýningarinnar.
Minnkar áherslu á málverkið
Áhersla er á ferðir og dagbækur á
efri hæð Gerðarsafns, aftur á móti
eru persónulegar teiknimyndasögur
á þeirri neðri. Kristinn segir mörg
þessara verka unnin undir áhrifum af
bandaríski raunsæishefð, en hann
var búsettur þar í landi í sex ár á tí-
unda áratugnum. Auk teiknimynda-
sagnanna má nefna málverk af versl-
unarglugga í borginni New Britain,
sem hann bjó í, og önnur af hvers-
dagslegum stöðum sem „gætu verið
hvar sem er“ á Nýja-Englandi.
„Ég hef texta við hlið málverk-
anna, til að minnka áhersluna á mal-
eríið sjálft,“ segir Kristinn um þessi
áhugaverðu verk. „Ég vil að lýsingin
í textanum komi fyrst en er ekkert að
pæla í stöðu málverksins.“
„Ekki miklar hetjuferðir,
þetta er ekkert Alpaklifur“
Morgunblaðið/Einar Falur
Dagbókarverk Kristinn G. Harðarson við verk sem byggist á bakpokaferðalagi sem hann fór um Ísland árið 1983.
Kristinn G. Harð-
arson sýnir verk 20
ára í Gerðarsafni
LornaLAB
stendur fyrir
málþingi um
notkun ný-
legra tækni-
lausna í nú-
tímatónlist á
morgun í Hafnarhúsinu milli kl. 13-
16. Tilefni málþingsins er Sláturtíð,
þ.e. nýafstaðin tónlistarhátíð sem
S.L.Á.T.U.R. stóð fyrir nú í vikunni.
„Öllum gestum og þátttakendum
hátíðarinnar auk öðrum áhugasöm-
um er boðið í kaffi þar sem rætt
verður um notkun tækni við tónlist-
argerð og annars sem á fjörur rek-
ur meðan á hátíðinni stendur. Slát-
ur hefur verið þungamiðja í
rafvæddri tónlistargerð undanfarin
ár og er nátengdur félagsskap
LornaLAB meðlimanna,“ segir m.a.
í tilkynningu. Aðgangur er ókeypis.
Umræða um
nútímatónlist
LISTASAFN ÍSLANDS
Listasafn Reykjanesbæjar
ÁSÝND FJARSKANS
THE SHAPE OF YONDER
Þorbjörg Höskuldsdóttir
26. október – 16. desember
Bátasafn Gríms Karlssonar
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Opið virka daga 12-17, helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
SKIA
Skugginn í myndlist frá því fyrir miðja
20. öld og til samtímans
Síðasta sýningarhelgi
Sýningunni lýkur
sunnudaginn 28. október
Opið 12-17, fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga.
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
TÓMIÐ
HORFIN VERK KRISTINS PÉTURSSONAR
Athugasemdir:
Hildigunnur Birgisdóttir
Huginn Þór Arason
Sólveig Aðalsteinsdóttir
Unnar Örn
Opið fimmtud.-sunnud. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
NÝ SÝNING
Gísli B.
Fimm áratugir í grafískri hönnun
Opið alla daga nema mán. kl. 12-17.
Verslunin KRAUM í anddyri.
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Síðasta sýningarhelgi ljósmyndasýninganna
Björgunarafrekið við Látrabjarg og Aðventa á Fjöllum
Sunnudagur 28. október:
Ókeypis aðgangur og sjónlýsing fyrir blinda og sjónskerta
á sýninguna Björgunarafrekið við Látrabjarg
Kl. 14: Leiðsögn um sýninguna Björgunarafrekið við Látrabjarg
Kl. 15: Síðasta sýning á heimildamynd um björgunarafrekið
Skoðum líkamann, síðasta sýningarhelgi á Torgi
Heimkoma - hljóðfrásagnir af eyðibýlum á 3. hæð
Ratleikir fyrir fjölskyldur, safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17
ÖLVUÐ AF ÍSLANDI 19.5.–4.11. 2012
SUNNUDAGSERINDI 28. okt. kl. 14
- Ólafur Ingi Jónsson forvörður fjallar um dularfull málverk á sýningunni.
DÁLEIDD AF ÍSLANDI 19.5.–4.11. 2012
HÆTTUMÖRK 19.5.–31.12. 2012
MUSÉE ISLANDIQUE; Ólöf Nordal 14.9.–4.11. 2012
SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort og gjafavara.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
Bergstaðastræti 74, sími 561 2914
Opið þri. til fim. kl. 11-14, sun. kl. 13-16
www.listasafn.is
SÝNINGARSALIR Í KJALLARA:
Sýningin „Lífið í Vatnsmýrinni“
5. sept. - 4. nóv. opið 12-17 alla daga, lokað mánudaga.
Á sýningunni er hægt að kynnast marglaga sögu Vatnsmýrarinnar. Hún er
hugsuð til að efla vitund um náttúruna inni í borginni og borgina í náttúrunni.
NÁTTÚRUSKÓLI NORRÆNA HÚSSINS
- fjölskyldudagskrá alla virka daga í sept. og okt. kl. 12-17, lokað mánudaga.
Ratleikur með spurningum og verkefnum
sem fjölskyldan leysir saman
Norræna húsið, Sturlugötu 5, s. 551 7030
www.norraenahusid.is , nh@nordice.is
Opið alla virka daga 9-17, helgar 12-17. Aðgangur ókeypis.
NORRÆNA HÚSIÐ
Söfn • Setur • Sýningar