Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2012
Það er leikur að
læra á Leiguna
Þín ánægja er okkar markmið
Skannaðu QR kóðann og lærðu á Leiguna
í Vodafone Sjónvarpi á 3 mínútum.
Heill kvikmyndaheimur opnast.
Skannaðu kóðann, leggðu símann
niður og lærðu á Leiguna
Vodafone.is/leigan
Miðar á gamlárskvöldstónleika með söngkonunni Önnu Mjöll
rokseljast vestanhafs en tónleikarnir fara fram í Los Angeles
31. desember í hinum virta djassklúbbi Herb Alpert Vibrato.
Anna Mjöll treður þar upp með hljómsveit sinni en saman
koma þau fram undir heitinu Anna Mjöll & Friends, eða Anna
Mjöll og vinir.
Í auglýsingu fyrir tónleikana er Anna Mjöll kölluð fremsta
djasssöngkona Íslands og eftirlæti Vibrato. Anna Mjöll hefur
haft ærin verkefni á sinni könnu síðustu mánuði en skiln-
aðarmál hennar og Cal Worthington er fyrir dómstólum og
hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum vestanhafs. Þá trúlof-
aði hún sig fyrr í desembermánuði en sá heppni heitir Luca
Ellis og er einnig tónlistarmaður.
GAMLÁRSKVÖLD MEÐ ÖNNU MJÖLL
Anna Mjöll og unnusti hennar; Luca Ellis.
Næstum
uppselt
Anna Mjöll trekkir að og
miðar á gamlárskvölds-
tónleika hennar seljast vel.
Skilnaðarmál hennar hefur
verið til umfjöllunar í fjöl-
miðlum vestanhafs.
Íslensk áramót, þar sem almennir borg-arar geta skotið flugeldum sínum aðvild, þykja einstök um allan heim. Um
leið og sérstakar áramótaferðir eru seldar
hingað til lands eru stórir fjölmiðlar eins
og Financial Times að uppgötva og benda
lesendum sínum á að hægt er að fylgjast
með íslenskum áramótum þótt ekki hafi
tekist að redda flugmiðum til landsins. Á
vefútgáfu blaðsins birtist grein á fimmtu-
dag um hve sérstök áramótin hérlendis
eru og bent á að á vefslóðinni ice-
landnaturally.com sé hægt að fylgjast með
litadýrð miðnættis í vefmyndavél en verk-
efnið er unnið í samstarfi við Mílu.
UMFJÖLLUN UM ÍSLENSK ÁRAMÓT ERLENDIS
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ánægja með
vefmyndavélar
ERLENDIR FJÖLMIÐLAR Á BORÐ VIÐ FINANCIAL TIMES
BENDA LESENDUM SÍNUM Á AÐ HÆGT ER AÐ FYLGJAST
MEÐ ÍSLENSKUM ÁRAMÓTUM Á NETINU.
RÚV kl. 19.40.
29. desember.
Samtök íþrótta-
fréttamanna
kynna niður-
stöðu í kjöri
íþróttamanns
ársins í beinni útsendingu.
Vilhjálmur Einarsson var kjörinn
fyrstur, 1956, og nú verður tilkynnt
í 57. skipti hver hlýtur nafnbótina.
Heiðar Helguson knattspyrnumað-
ur var íþróttamaður ársins 2011.
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS
Stöð 2 kl. 14.00 gamlársdag
Leiðtogar helstu stjórnmálaflokka
landsins staldra við og vega og
meta árið sem er að líða á léttum
nótum. Fréttastofa Stöðvar 2 velur
svo mann ársins að vanda.
KRYDDSÍLDIN
Rás 1 kl. 12.55 sunnudag
30. desember.
Útvarpsleikhúsið flytur Gullna hlið-
ið eftir Davíð Stefánsson. Með
aðalhlutverkin fara Brynjólfur
Jóhannesson, Arndís Björnsdóttir
og Lárus Pálsson, sem jafnframt er
leikstjóri. Upptaka frá árinu 1950.
GULLNA HLIÐIÐ
Vefmyndavélar hafa átt
sinn þátt í að kynna
Ísland á heimsvísu.