Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Blaðsíða 24
*Heimili og hönnunTheodóra Mjöll sýnir lesendum fagurlega skreytt áramótaborð í pastellitum með perlum » 26 É g vildi láta áramótaborðið endurspegla gleði og nýja byrjun og hafa það frá- brugðið jólaborðinu. Þann- ig vildi ég hafa það með bjartara yfirbragði en jólaveisluborðin því bjarmi og lífsgleði er allsráðandi þetta kvöld,“ segir Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack, hárgreiðslukona og metsöluhöfundur. Theodóra hefur hrifið þjóðina með ótrúlegri bók sinni um frum- legar og fallegar hárgreiðslur. Sunnudagsblaði Morgunblaðsins fannst ekki úr vegi að fá hársnill- inginn til að skella í eitt áramóta- borð. „Mér er efst í huga að fólki þyki gaman að sitja við borðið þannig að ég vildi að það væri létt og skemmtilegt í útfærslu. Áramótin eru í mínum huga fyrst og fremst fjölskyldukvöld þar sem við spilum og borðum og förum á brennu og þannig höfum við maðurinn minn alltaf haft það.“ Einn afar skemmtilegur siður til- heyrir borðhaldinu hjá fjölskyldu Theodóru; en meðan á því stendur deilir hver og einn fjölskyldu- meðlimur því sem hann er þakk- látur fyrir á árinu sem er að líða og hverju hann stefnir að á næsta ári. „Jú, ég er mjög ánægð með ár- ið sem er að líða, sem er búið að vera, að ég tel, viðburðaríkasta ár lífs míns, en ég bjó bæði til bók og barn á árinu, eignaðist dreng 11. október sem heitir Ólíver. Á næsta ári ætla ég svo að halda áfram að reyna að spila sem best úr þeim tækifærum sem mér bjóðast.“ Diskarnir eru úr Teema-stellinu svo- kallaða, frá Iittala, sem fæst víða í borginni, meðal annars í Epal og hjá Líf og list í Smáralind. Metsöluhöfundurinn Theodóra Mjöll hefur það til siðs að þakka með fjölskyld- unni fyrir það sem vel fór á gamla árinu og líta fram á veginn yfir það nýja. Theo- dóra fer heldur aldrei út á lífið þetta kvöld heldur nýtur kvöldsins heima við. LAGT Á ÁRAMÓTABORÐIÐ Endurspegli gleði THEODÓRA MJÖLL SKÚLADÓTTIR JACK FÓR EKKI FRAMHJÁ NEINUM SÍÐARI HLUTA ÁRSINS. HÚN BÝR YFIR MIKLUM SKÖPUNARKRAFTI OG SMEKKLEGUM TAUGUM SEM SÝNDI SIG Í VINSÆLLI BÓK OG NÚ Á AÐALVEISLUBORÐI ÁRSINS. Texti: Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Myndir: Styrmir Kári Erwinsson styrmirkari@mbl.is Perlurnar ljá borðinu klassískt yfirbragð. Þær fékk Theodóra í IKEA en notast má við perlu- festar úr eigin fórum. „Ég prentaði út myndir af klukkum og ártalinu 2013 sem ég fann á netinu og klippti út. Þá límdi ég myndirnar saman og hafði tannstöngul innan í. Pinnarnir eru úr Föndru. Þetta skraut var hluti af ann- arri stærri skreytingu sem Theodóra hlutaði niður. Gullfallegt áramótaborð Theodóru Mjallar er skrautlegt og litríkt en afar einfalt í uppsetningu. Perlur og silfurskraut ljá því eilítið „milli- stríðsáralegt“ útlit.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.