Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2012
Matur og drykkir
Þ
au Friðrika Hjördís Geirs-
dóttir, landsmönnum kunn
sem sjónvarpskokkurinn
Rikka, Ólafur Örn Ólafs-
son, yfirþjónn á nýjum veitingastað
sem senn opnar á Hótel Borg, og
Eyþór Rúnarsson, yfirmat-
reiðslumaður á Nauthóli og fyrrum
kokkalandsliðsþjálfari, eru öllum
hnútum kunnug í eldhúsinu eins og
gefur að skilja.
Áttu þau ekki í vandræðum með
að snara fram nokkrum fögrum
réttum og bragðgóðum, sem fara
afar vel á hvaða áramótaborði sem
er, þegar eftir því var leitað.
Þríeykið hefur annars haft í
nægu að snúast á árinu sem er að
líða, þar sem það sinnti dóm-
arastörfum fyrir íslenska útgáfu
MasterChef raunveruleikaþáttanna
kunnu, auk annarra starfa.
Um 500 áhugakokkar sóttust
upphaflega eftir því að fá að koma
til greina í leitinni að MasterChef-
kokki Íslands. Af þeim náðu 50
manns í svokallaðar „Boot-Camp“
eða „herbúðir“, þar sem kepp-
endum fækkaði enn frekar í nokkr-
um eldhúsþrautum.
Átta keppendur standa nú eftir
og má fylgjast með þeim bítast um
sigurinná næstunni. Fer keppnin
fram í risa-eldhúsi sem sérstaklega
var reist í Korputorgi í tengslum
við gerð þáttanna. Er þar um að
ræða stærsta eldhús sem búið hef-
ur verið til í sjónvarpi á Íslandi.
„Það kom mér mest á óvart hvað
það er mikið af fólki hér sem veit
mikið um mat, hefur t.d. ferðast
víða og hefur einfaldlega gríð-
arlegan áhuga á matargerð,“ sagði
Eyþór í samtali við blaðamann og
bar keppendunum afar vel söguna.
Segir hann greinilegt að matargerð
sé stórt áhugamál hér á landi.
Þrátt fyrir að erfitt hafi verið að
velja úr segir Eyþór þá keppendur
sem eftir standa allt einvalalið og
flotta kandídata. Til mikils er að
vinna en auk nafnbótarinnar fyrsti
meistarkokkur Íslands verður sig-
urvegarinn milljón krónum ríkari.
MasterChef-þættirnir eru í dag
framleiddir í 35 löndum og sýndir
enn víðar. Njóta þeir mikilla vin-
sælda um allan heim.
Íslensku MasterChef-þættirnir
hefja aftur göngu sína þann 4. jan-
úar næstkomandi á Stöð 2.
Rikka, Eyþór og Ólafur áttu ekki í vandræðum með að töfra fram góðgæti.
MASTERCHEF TRÍÓIÐ
Litríkt nasl
um áramótin
*„Matargerð ergreinilega stórtáhugamál hér á
landi“
Dómararnir í miðjum klíðum
við matargerðina. Hinrik, sonur
Rikku, fylgist vel með.
MARGIR ERU EFLAUST ÞEGAR BÚNIR AÐ ÁKVEÐA HVAÐ
SKAL ELDAÐ Á GAMLÁRSKVÖLD. SUNNUDAGSBLAÐ
MORGUNBLAÐSINS LEITAÐI TIL MASTERCHEF-DÓM-
ARATRÍÓSINS EFTIR UPPSKRIFTUM AÐ HANDHÆGU NASLI
SEM PASSAR AFAR VEL HVAR SEM NÝJU ÁRI ER FAGNAÐ.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
150 g (eða góð lúka) rifinn ost-
ur. Hvaða ostur sem er gengur,
en hann þarf að vera a.m.k. 26%
feitur
3 sneiðar Chorizo eða önnur
bragðmikil pylsa
3 tortillakökur
Aðferð:
Setjið rifna ostinn í eldfast mót
– betra er að hafa það ekki það
ekki of stórt. Stráið saxaðri pyls-
unni yfir. Setjið í 180 gráðu heitan
ofn í 5 mínútur, eða þar til ost-
urinn er bráðinn. Stingið tor-
tillakökunum í brauðrist og berið
fram saman. Gott er að hafa góða
Habanero-sósu við hliðina á fyrir
þá hugrökku.
Með þessu myndi ég drekka
margarítu en gott er að blanda
hana í stóra könnu.
Mín uppskrift er svona:
1½ hluti gott Tequila
1 hluti limesafi (ferskur, ný-
kreistur)
½ hluti Triple sec eða Coint-
reau
Queso
fundido
TILBRIGÐI VIÐ MEXÍKÓSKT STEF
Bræddur ostur í bland við Chorizo pylsu kitlar klárlega bragðlaukana.
½ tsk fennelfræ, þurrristuð og grófmulin
Rifinn börkur af 1 sítrónu
15 fersk basillauf, fínsöxuð
4 msk góð ólífuolía
1 hvítlauksrif, pressað
sjávarsalt og nýmalaður pipar
1 poki litlar mozzarellakúlur, sigtið vatnið
frá og kremjið ostinn örlítið
6 kirsuberjatómatar, skornir í fjóra hluta
og fræhreinsaðir
Aðferð
Blandið öllu saman í skál og látið standa í kæli í 25-30 mínútur.
Gott er að bera ostinn fram á ristuðu snittubrauði, á salati eða sem smárétt.
Maríneraður mozzarella
ÍTÖLSK KLASSÍK Í ÁRAMÓTABÚNINGI
Komnar í áramótabúninginn.
Mozzarellurnar marineraðar.