Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Blaðsíða 30
Matarbækurnar í ár
ÁRIÐ 2012 Í MATREIÐSLUBÓKUM
FJÖLDI MATREIÐSLUBÓKA
Á ÍSLENSKU, VELFLESTAR EFTIR
ÍSLENSKA HÖFUNDA Í ÞOKKABÓT,
KOM ÚT Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2012
Matur og drykkir
Pitsur er bók með uppskriftum að ítölskum
flatbökum en form bókarinnar er einkar
skemmtilegt; hringlaga eins og fyr-
irbærið pitsa er sjálft. Uppskrift að ein-
földu og góðu pitsadeigi fylgir með sem
svo er leikið með í fimmtíu útfærslum.
Þótt botninn sé í grunninn ítalskur eru út-
komurnar frá öllum heimshornum.
Fimmtíu pitsur
Hægeldaðir réttir þeirra Gísla Egils
Hrafnssonar og Ingu Elsu Bergþórs-
dóttur eru hver öðrum girnilegri í bókinni
Eldað og bakað í ofninum heima. Líkt
og í fyrri bókum hafa þau hjón árs-
tíðabundið hráefni í fyrirrúmi og að reyna
að vera sjálfbjarga og rækta í garðinum
heima sem og í gluggakistum yfir vetr-
artímann.
Hjónin í eldhúsinu
Berglind Sigmarsdóttir er höfundur bók-
arinnar Heilsuréttir fjölskyldunnar en í
henni eru ýmsar hefðbundnar uppskriftir sem
eru þó útbúnar eilítið öðruvísi en hefðbundið
þykir; til dæmis er minni sykur notaður. Eig-
inmaður Berglindar, landsliðskokkurinn Sig-
urður Gíslason, var henni innan handar við
gerð uppskriftanna.
Fjölskylduvæn hollusta
Sigrún Óskarsdóttir og Kristín Þóra
Harðardóttir eiga heiðurinn af hinni
óvenjulegu matreiðslubók Orð, krydd og
krásir. Réttirnir eru upprunnir frá sögu-
slóðum Biblíunnar en hráefnið sem ætlað
er í réttina er íslenskt. Maturinn er ein-
faldur og hollur og réttirnir eru ekki síður
fallegir á diski.
Biblíumatur
Into the North, eftir Gísla Egil Hrafnsson
og Ingu Elsu Bergþórsdóttur, er að hluta
til ensk þýðing á bók þeirra Góður matur -
gott líf sem kom út í fyrra. Í bókinni er þó
einnig nýr texti um land, sögu og þjóð
ásamt myndum af íslenskum mat og ís-
lenskri náttúru. María Helga Guðmunds-
dóttir þýddi.
Íslensk á ensku
Guðrún Jóhannsdóttir er höfundur
matreiðslubókarinnar Hollt og hátíð-
legt. Eins og nafnið gefur til kynna
inniheldur bókin tugi uppskrifta að há-
tíðarmat sem er hollari en gengur og
gerist. Hráefnið er jafnt fiskur, kjöt og
grænmeti og einnig eru uppskriftir að
eftirréttum í bókinni. Réttirnir henta
öllum minni og stærri hátíðum ársins.
Heilsusamleg hátíð
Safaríkt líf er heiti fjórðu bókar Þor-
bjargar Hafsteinsdóttur en í bókinni er að
finna 68 uppskriftir að þeytingum. Margir
drykkjanna geta komið í stað máltíðar en
aðrir eru hugsaðir sem smá bragð milli
mála. Þorbjörg Hafsteinsdóttir er mennt-
aður hjúkrunarfræðingur og næring-
arþerapisti og er orðin velþekkt fyrir skrif
sín.
68 safar í bók
Sigurveig Káradóttir sendi frá sér bókina
Súpur allt árið í haust en í bókinni, sem er
nett og þægileg að grípa í, eru 25 upp-
skriftir að súpum af öllum gerðum og frá
öllum heimshornum, meðal annars Taí-
landi, Spáni og Marokkó. Grænmetis-, fiski-
og kjötsúpur er að finna í bókinni, svo fátt
eitt sé nefnt.
Súpur Sigurveigar
Auði Ingibjörgu Konráðsdóttur þekkja
margir sem lesið hafa vefsíðuna heilsu-
kokkur.is en skrif hennar þar hafa notið
mikilla vinsælda. Í ár sendir Auður frá sér
bókina Heilsusúpur og salöt en í bókinni
er, eins og nafnið gefur til kynna, að finna
fjölmargar uppskriftir að hollum súpum
og salötum.
Ný bók heilsukokks
Sólveig Eiríksdóttir, betur þekkt sem
Solla Eiríks, kynnir í nýjustu mat-
reiðslubók sinni, Eftirréttir Sollu, eft-
irrétti úr hráfæði. Solla hefur ekki að-
eins vakið athygli hérlendis fyrir
hráfæðiseldamennsku heldur svo um
munar erlendis og í ár vann hún til
tvennra verðlauna í keppni sem fram
fór milli bestu hráfæðiskokka heims.
Góðgæti hráfæðisins
Nanna Rögnvaldardóttir leiðir lesendur
í gegnum nýjan sannleik um múffur í
nýjustu bók sinni sem heitir einfaldlega
Múffur. Þar má finna fjölda uppskrifta
að hefðbundnum og svo mun óhefð-
bundnari gerðir af múffum, bæði mein-
hollar í morgunmat, hádegis- og kvöld-
verð og svo aðrar með kaffinu.
Nýjar múffuuppgötvanir
Bollakökur er óvenjuleg bók
úr franskri bókaröð sem var
gefin út á íslensku í ár í þýð-
ingu Snjólaugar Lúðvíks-
dóttur. Auk 20 uppskrifta að
bollakökum fylgja 16 sílíkon-
form í öskju og góðar leiðbein-
ingar um hvernig best er að haga bollakökubakstri almennt.
Form og uppskriftir
Konfekt er úr sömu frönsku
bókalínunni og áðurnefnd bók
Bollakökur en Bókafélagið
gefur báðar bækurnar út. Í
fallegri gjafaöskju er að finna
litla bók með tuttugu upp-
skriftum, handhægum leið-
beiningum um konfektgerð
og þá þrjátíu sílíkonformum til að nota undir góðgætið.
Krúttlegt konfekt
Anna Rósa grasalæknir og Albert Eiríksson
taka höndum saman í bókinni Ljúfmeti úr
lækningajurtum. Saman deila þau brenn-
andi áhuga á eldamennsku og lækninga-
jurtum en uppskriftirnar innihalda alls kyns
krydd og lækningajurtir. Þeim jurtum sem
ekki fást yfir vetrartímann má auðveldlega
skipta út.
Læknandi uppskriftir
Hin vinsæla Ebba Guðný Guðmundsdóttir
slóst í lið með Latabæ í ár og út kom bókin
Ebba eldar með Latabæ. Í bókinni eru
uppskriftir í anda Latabæjar; hollar og
fjölskylduvænar, en matreiðslan er miðuð
að því að börnin fái hjálp hjá fullorðnum
við að útbúa alls kyns góðgæti, allt frá
drykkjum upp í pottrétti.
Ebba og Latibær
Stóra Disney heimilisréttabókin kom út í
ár í Disney-matreiðslubókalínunni. Kunn-
ugir félagar úr Disney-ævintýrunum að-
stoða börn og fullorðna við eldamennskuna
en réttirnir í bókinni eru hugsaðir fyrir alla
fjölskylduna. Af einstökum réttum má nefna
Pastarétt Freyju og Spora og Slappa borg-
ara Bjarnabófanna.
Börn og fullorðnir
Heiðdís Lilja Magnúsdóttir er ritstjóri
matreiðslubókarinnar Eldað undir
bláhimni – Sælkeraferð um Skaga-
fjörð. Þekktir og minna þekktir Skag-
firðingar og skagfirsk veitingahús
eiga girnilegar uppskriftirnar en bók-
in er tileinkuð skagfirskri matarmenn-
ingu.
Skagfirsk sveifla
Ögmundur G. Albertsson er höfundur mat-
reiðslubókarinnar Matur og meiri matur.
Uppskriftirnar, 100 talsins, eru afar fjöl-
breyttar, allt frá samlokum og súpum upp í
kjöt og eftirrétti. Leitast var við að uppskrift-
irnar væru fremur einfaldar en hollar. Ög-
mundur er reynslubolti í matreiðslu, útskrif-
aður úr Hótel- og veitingaskólanum.
Einfalt en hollt
Stóra bókin um Villibráð eftir Úlfar
Finnbjörnsson er 312 blaðsíðna alfræðirit
fyrir áhugafólk um nýtingu villibráðar og
er bókin uppfull af villibráðarupp-
skriftum. Í bókinni eru ýtarlegar leiðbein-
ingar um verkun og meðferð kjötsins en
Úlfar er stundum nefndur „villti kokk-
urinn“. Þá er sérkafli í bókinni um vín
sem passa með réttunum.
Allt um villibráð
Siggi Hall á heiðurinn að nýrri bók um
jólarétti. Bókin heitir einfaldlega Jóla-
réttir að hætti Sigga Hall en auk
þess sem girnilegar uppskriftir í jóla-
þema er að finna í bókinni leynast þar
ýmis ráð sem nýtast vel í kringum há-
tíðarmatseldina, enda matreiðslumað-
urinn reynslubolti á því sviði.
Siggi Hall jólast