Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2012
Margt situr í minninu þegar árið
er gert upp. Þótt vitanlega séu
það persónulegir viðburðir í lífi
hvers og eins sem festast helst í
langtímaminninu þá er alltaf eitt-
hvað sem stendur uppúr eftir árið
úr bók, bíómynd, leikriti, ljóði,
minnisstæðu samtali eða fréttum.
Ólíklegt verður að teljast að ís-
lenskir sjónvarpsáhorfendur eigi
eftir að upplifa sterkari frásögn
en Eiríks Inga Jóhannssonar í
Kastljósi fyrr á árinu af því þegar
hann velktist í sjónum klukku-
stundum saman eftir að togarinn
Hallgrímur fórst vestur af Noregi
í aftakaveðri í janúar. Í áttatíu
mínútur sagði hann frá og í áttatíu
mínútur var ekki hægt annað en
að horfa og hlusta á hann af at-
hygli. Um leið og atburðurinn er
rifjaður upp víkur hugurinn að
þeim sem ekki lifðu af til að segja
frá.
Í maí lentu hollensk hjón í því
að jörðin hreinlega opnaðist undir
fótum þeirra við Dyrhólaey og
þau féllu tugi metra í grjótskriðu.
Engu var líkara en að góðar vætt-
ir vektu yfir þeim því þau slös-
uðust merkilega lítið. Þar sem
hann lá í sjúkrarúminu lýsti mað-
urinn því sem stóð uppúr í hans
minni eftir lífsreynsluna. Hann
klökknaði fyrst í frásögninni þeg-
ar hann kom að atriði sem hljóm-
aði í raun svo lítilfjörlegt: Björg-
unarsveitarmaður lagði hönd á öxl
hans – og sleppti ekki fyrr en
hann kom á spítalann. „Höndin
var alltaf þarna,“ sagði hann og
komst við. Þetta litla handtak sit-
ur í minni hans um ókomin ár.
Heilt ár geymir óteljandi minn-
ingar, sárar og ljúfar í bland. Þótt
minningar úr fréttum séu ekki
okkar eigin getum við dregið af
þeim sameiginlegan lærdóm og
nýtt reynsluna í þágu aukins ör-
yggis á sjó og landi með því að
styðja björgunarsveitir sem aldrei
sleppa af okkur hendinni. Njótum
áramótanna!
RABBIÐ
Höndin var alltaf þarna
Eyrún Magnúsdóttir
Sjaldan gefst betra tækifæri til að sýna björgunarsveitum þessa lands þakklæti í verki en fyrir áramótin. Þá fer nefnilega fram helsta fjáröflun sveitanna,
flugeldasalan. Flugeldamarkaðir björgunarsveita um land allt hafa nú flestir verið opnaðir. Björgunarsveitafólk hefur staðið í ströngu undanfarna daga við
að setja upp staðina og koma vörunni fyrir samkvæmt ströngustu reglum, að því er fram kemur á vefsíðu Landsbjargar. Að venju er úrvalið mikið, allt frá
litlum stjörnuljósum upp í öflugustu skottertur sem leyfilegt er að selja. Töluvert er um nýjungar á flugeldamörkuðum björgunarsveita í ár, þar má m.a.
nefna sex nýjar gerðir af kappatertum sem hafa í gegnum árin verið meðal vinsælustu vöruliða. Flugeldasalan stendur yfir í fjóra daga og um helgina er á
flestum stöðum opið frá 10-22 og á gamlársdag frá 10-16. Nánari upplýsingar um vöruna, sölustaði og afgreiðslutíma má finna á síðunni www.flugeldar.is.
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HJÁLPUM ÞEIM!
ÓVEÐRI ER SPÁÐ VÍÐA Á LANDINU UM HELGINA OG FÓLK BEÐIÐ AÐ GERA VIÐEIGANDI RÁÐSTAFANIR. BJÖRG-
UNARSVEITIR VERÐA SEM ENDRANÆR Í VIÐBRAGÐSSTÖÐU, ÞURFI FÓLK Á KRÖFTUM ÞEIRRA AÐ HALDA.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Ísland – Túnis, landsleikur í
handbolta karla.
Hvar? Laugardalshöll.
Hvenær? Laugardag kl. 13:30.
Landsleikur
Hvað? Frumsýning á
leikritinu Mýs og
menn.
Hvar? Stóra svið
Borgarleikhússins.
Hvenær? Laugardag.
Nánar: Aðalhlutverk: Ólafur Darri
Ólafsson og Hilmar Guðjónsson.
Mýs og menn
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? Áramótabomba Mið-Íslands.
Hvar? Þjóðleikhúsið, stóra svið.
Hvenær? Laugardag kl. 23.
Nánar: Mið-Ísland fyllti hverja sýn-
inguna á fætur annarri í fyrra. Tveggja
klukkustunda hláturtaugadagskrá.
Áramótabomba
Hvað? Kvikmyndin
The Hobbit.
Hvar? Laugarásbíó,
Smárabíó, Háskólabíó
og Borgarbíó.
Hvenær? Laugardag
og sunnudag.
Nánar: The Hobbit: An Unexpected
Journey fjallar um hobbitann Bilbó
Bagga og ævintýraför hans til hins forna
konungsríkis Erebor.
Hobbitinn
Hvað? Daglegar enskuleiðsagnir milli
jóla og nýárs um sýningu Errós.
Hvar? Hafnarhús.
Hvenær? Hefst kl. 13.
Leiðsögn um Erró
Hvað? Jólaóratóría Bachs.
Hvar? Eldborg, Hörpu.
Hvenær? 29. og 30. desember.
Nánar: Alþjóðl. barokksv. í Den Haag
Jólaóratóría Bachs
* Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson.