Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Blaðsíða 15
frá Birni Thors um daginn. Mac- beth er vinsælasta verk Breta. Ef eitthvert leikhúsið var að fara hausinn að þá var alltaf hent í Macbeth því það var svo vinsælt. Svo kunnu líka allir Macbeth þannig að ef það var lítill tími fyrir undirbúning að þá var líka oft skellt í Macbeth. Svo fara menn að tala um það að af því að það sé verið að setja upp Macbeth hljóti leikhúsið að vera að fara á hausinn. Shakespeare nær öllum þáttum mannlegrar tilveru inn í verkin sín, það er verið að höfða til allra stétta. Smákynlíf fyrir ein- hverja, smáheimspekilegt fyrir aðra og svo framvegis. Steinbeck er jafn djúpur og nær jafn víða.“ Ekki rómantísk lýsing á bandarískum samtíma Álfrún: „Það eru forréttindi að fá að takast á við svona vel skrifað og mikilvægt verk eins og Mýs og menn. Steinbeck er alls ekki að skrifa rómantíska lýsingu á sínu nánasta umhverfi og það fór ekki vel í sam- tímamenn hans. Enda er þetta eitt bannaðasta og ritskoðaðasta verk í Bandaríkjunum.“ Margrét: „Þeir eru að spegla sinn samtíma.“ Vont kaffi í Þjóðleikhúsinu Farið þið á verk hvor annarrar? Álfrún: „Já, það er mikill sam- gangur og maður reynir að ná sem flestu. Ég kíki oft inn í Þjóðleikhúsið. Friðrik maðurinn minn er að vinna þar. En ég verð að segja eins og er að kaffið er betra í Borgarleikhús- inu.“ Margrét: „Já, það er hrikalega vont í Þjóðleikhúsinu, en það er verið að vinna í því.“ Álfrún: „Ég er bundin sterkum böndum við Þjóðleikhúsið, ég ólst nánast upp í húsinu því mamma var leikkona þar.“ Margrét: „Leikarar eru miklar félagsverur. Það er gott að vera ein inni á milli en svo sækir maður alltaf í þennan hóp í leik- húsunum. Mamma var alltaf að segja mér að ég yrði að kunna að vera ein; fara ein í bíó og þess háttar en ég hef aldrei lært það. Held að mamma hafi mis- skilið þetta. Maðurinn er fé- lagsvera, við eigum ekkert að vera ein. Við erum bara hjarðdýr eins og hesturinn og þurfum að vera innanum annað fólk.“ Morgunblaðið/Kristinn 30.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 ÞESSI TÍMI ER EINSTAKUR Arion banki býður foreldrum í fæðingarorlofi að lækka greiðslubyrði íbúðalána um allt að helming. Hjá mörgum verða breytingar á ráðstöfunartekjum við töku fæðingarorlofs. Því viljum við koma til móts við foreldra og gefa þeim kost á að fresta hluta af greiðslum íbúðalána sinna. Með þessu viljum við auðvelda viðskiptavinum okkar að taka fullt fæðingarorlof og njóta þess til fullnustu. Hafðu samband við þjónusturáðgjafa okkar í næsta útibúi Arion banka eða í síma 444 7000 og kynntu þér möguleika þína. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 2 -2 9 4 3 byggir John Steinbeck á reynslu sinni sem farandverkamaður þar sem hann kynntist fólki sem varð innblásturinn að persónum verks- ins. Steinbeck skrifaði sjálfur leik- ritið sem er tíður gestur á fjölum leikhúsa heimsins. Kvikmyndaút- gáfa sögunnar var tilnefnd til fjölda Óskarsverðlauna árið 1939 og ný útgáfa hennar keppti svo um Gull- pálmann í Cannes árið 1992. Steinbeck sagði eftirfarandi um markmið verksins í dagbók sinni: „Í öllum texta sem er skrifaður af hreinskilni er ákveðið þema. Það að reyna að skilja menn. Ef fólk skilur hvað annað verður fólk gott hvað við annað. Ef maður þekkir manneskju vel getur það aldrei leitt til haturs og nánast alltaf leið- ir það til ástar.“ Leikstjóri sýningarinnar er Jón Páll Eyjólfsson sem hefur leikið mörg stór hlutverk á sviðum leik- húsanna og í seinni tíð verið marg- verðlaunaður fyrir leikstjórn sína. Mikill spenningur er fyrir jólasýningu Borgarleikhússins, Mýs og menn, enda Ólafur Darri Ólafsson orðinn einn ástsælasti leikari þjóðarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.