Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2012
Ferðalög og flakk
Þ
egar frostið bítur í kinnar
Íslendinga í desember og
við dúðum okkur upp á
hverjum morgni til að
komast í vinnuna velja margir að
flýja í sólina. Ekki er óalgengt að
Íslendingar fari á sólarstrandirnar
á Tenerife og til Kanarí. Loftslag
Kanaríeyja hentar Íslendingum vel,
það er ekki of heitt og ekki of kalt,
heldur stöðugur og þægilegur
andvari. Fallegir strandbæir liggja
meðfram sjónum sem kafarar,
brimbrettafólk og baðgestir
sækja í.
Tenerife og Gran Canaria eru
hluti af sama eyjaklasanum sem er
rétt við Afríku eða um 100 kíló-
metra vestur af Marokkó, en til-
heyrir Spáni. Eyjaklasinn kallast
Kanaríeyjar og er stærsta eyjan
Tenerife en Gran Canaria er þriðja
stærsta eyjan. Þetta eru eld-
fjallaeyjur og þykja mjög fallegar.
Á tímum spænska heimsveldisins
sigldu þau spænsku skip sem ætl-
uðu sér yfir til Ameríku alltaf fyrst
að þessum eyjum. Enda voru hag-
stæðir vindar sem blésu fyrir sigl-
ingar vestur á bóginn.
Öfugt við það sem margir halda
er nafn eyjanna ekki komið frá
kanarífuglinum, því er eiginlega öf-
ugt farið. Nafnið er talið koma úr
latínu; Canariae Insulae, sem þýðir
Hundaeyjan. En á Gran Canaria á
að hafa verið mikið af hundum áð-
ur fyrr þótt sumir efist um að það
sé rétt haft eftir.
Um tvær milljónir manna búa á
eyjunum og eru um 85% þeirra
Spánverjar en í seinni tíð hefur
mikill fjöldi Breta og Þjóðverja
flust til eyjanna. Fyrir utan þann
mikla fjölda af túristum sem dvelja
þar allan ársins hring.
Daði Guðjónsson hjá Úrval-
Útsýn segir að þetta sé vinsælasti
ferðamannastaður Íslendinga yfir
jólin. „Í það minnsta á okkar skrif-
stofu,“ segir Daði. Aðspurður segir
hann að Íslendingar sæki ekki mik-
ið í skíði yfir jólahátíðarnar. „Það
er líka erfiðara að fara í ítölsku
Alpafjöllin þegar Ítalir eru allir í
fríi en þeir sækja sjálfir mjög mik-
ið í fjöllin á þeim tíma. Það er
betra að fara á skíði þegar þeir eru
ekki í fríi.
Yfir jólin er langvinsælast að
fara í sólina. Mikið er um að fjöl-
skyldur eða ung pör séu að ferðast
á þessum árstíma, þetta er vinsælt
fyrir alla aldurshópa,“segir Daði.
SÓL OG SÆLA YFIR HÁVETURINN
Jól í sól
ÞÓTT ÞAÐ SÉ KALT Á ÍSLANDI YFIR VETRAR-
TÍMANN VITA MENN AÐ VÍÐA Í HEIMINUM
ER STEIKJANDI HITI Á ÞESSUM TÍMA ÁRSINS.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
*„Yfir jólin erlangvinsælastað fara í sólina.
Mikið er um að fjöl-
skyldur eða ung pör
séu að ferðast á
þessum tíma, þetta
er vinsælt fyrir alla
aldurshópa.“
Þessi mynd frá Kanarí er
tekin við eina sundlaugina.
VEGGKLUKKA Þvermál 100 cm Verð KR. 14.990
SÖDAHL DÚN
FYLLTIR PÚÐAR
Margar stærðir og
mikill fjöldi munstra
og mynda. Verið má
þvo í þvottavél.
Verð frá KR.
4.990
„ JÁ NÚ ER KÁTT Í HÖLLINNI, HÖLLINNI, HÖLLINNI ...“
H
DÚKURINN
SÖDHAL STAR DAMASK DÚKAR
Litur jólahvítur. Faldaðir.
Hrinda frá sér. Má þvo og strauja.
140/220 verð: kr. 13.990
140/270 verð: kr.16.990
140/320 verð: kr. 19.990