Morgunblaðið - 30.01.2013, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Bíttu í Þorragráðaostinn, áður
en hann bítur í þig. Sterkur,
bragðmikill og sómir sér vel á
þorrahlaðborðinu.
Þorragráðaosturinn er
konungur gráðaostanna
og fæst núna tímabundið
í verslunum.
Þorragráðaostur
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Egill Ólafsson, Hjörtur J. Guðmunds-
son og Sigurður Aðalsteinsson
Óvissustigi vegna snjóflóða var lýst
yfir á Austurlandi í gær í kjölfar mik-
illar snjókomu undanfarna daga.
Ófærð af sökum hennar varð til þess
að björgunarsveitarmenn úr Björg-
unarsveitinni Gerpi á Norðfirði
þurftu að flytja þrjá sjúklinga af
Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup-
stað í Norðfirði til Eskifjarðar yfir
Oddsskarð á tveimur torfærubílum
síðdegis í gær.
Þar voru þrír aðrir sjúklingar
teknir og fluttir til Norðfjarðar, þar á
meðal kona sem komin var á steypir-
inn en þar er eina fæðingardeildin á
Austurlandi. Kolófært hefur verið yf-
ir Oddsskarð frá því síðdegis á sunnu-
dag og fór snjómoksturstæki, snjó-
blásari og bíll með plóg á undan
björgunarsveitarbílunum. Nokkrir
aðrir bílar komust yfir skarðið í kjöl-
farið en vegurinn lokaðist strax á eft-
ir og verður hann ekki opnaður fyrr
en veðrið gengur niður.
Föst á Seyðisfirði
Fjarðarheiði hefur einnig verið
ófær frá því á laugardag og hefur fólk
á Seyðisfirði því verið þar innilokað í
þrjá daga. Fólk sem vinnur vakta-
vinnu í álverinu á Reyðarfirði hefur
ekki komist til vinnu og framhalds-
skólanemar sem stunda nám á Egils-
stöðum hafa ekki komist í skólann. Þá
hafa um fimmtíu gestir og hljómsveit
sem tróð upp á fjölmennu þorrablóti í
bænum um helgina setið þar föst að
sögn Arnbjargar Sveinsdóttur, for-
seta bæjarstjórnar á Seyðisfirði.
Fljúgandi þök á Siglufirði
Mikið hvassviðri hefur verið á
Norðurlandi undanfarna daga og hef-
ur talsvert tjón orðið á þökum húsa í
Siglufirði af völdum þess.
Þannig var þakið á húsnæði Ljóða-
seturs Íslands við Túngötu farið að
losna í heilu lagi og þá varð húsið á
Suðurgötu 46 einnig fyrir töluverðum
skemmdum.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Siglufirði eiga flest húsin
það sameiginlegt að vera frekar göm-
ul. Engin slys hafa hins vegar orðið á
fólki.
Sjúklingar fluttir
með torfærubílum
Fólk innlyksa á Seyðisfirði og eignatjón á Siglufirði
Óvissustig lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Austurlandi
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Sjúkraflutningar Bílar Björgunarsveitarinnar Gerpis á Norðfirði við Heilsugæslustöðina á Eskifirði þar sem fólk
var flutt milli bíla áður en aftur var haldið heim á leið yfir Oddsskarð á sjúkrahúsið í Neskaupstað.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Foktjón Þök á nokkrum húsum á Siglufirði tóku að losna í hvassviðrinu,
m.a. við Suðurgötu og Túngötu. Engin slys urðu á fólki.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Stjórnvöld þurfa að leggja til tals-
vert meira fé til þess að hjúkrunar-
fræðingar geti fallist á tilboð um nýj-
an stofnunarsamning. Það þarf um
1,3-1,5 milljarða króna til þess að
jafna muninn á launum hjúkrunar-
fræðinga og annarra háskólamennt-
aðra stétta hjá ríkinu.
Þetta segir Elsa B. Friðfinnsdótt-
ir, formaður Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga.
„Stjórnvöld hafa boðið fram til-
tekna fjárhæð sem er nokkur hundr-
uð milljónir og það eru vissulega
miklir peningar. En þegar henni er
skipt á milli þeirra 1.348 hjúkrunar-
fræðinga sem starfa á Landspítalan-
um, þá er lítið handa hverjum og ein-
um. Það er vandinn sem við stöndum
frammi fyrir,“ segir hún.
Munar 95.000 krónum
Ekki hefur enn verið boðaður nýr
fundur í kjaradeilu hjúkrunarfræð-
inga en viðræðum þeirra var slitið á
mánudagskvöld.
Í pistli á heimasíðu félagsins spyr
Elsa hvort stjórnvöld hafi kjark til
þess að jafna kynbundinn launamun
opinberra stétta. Þá ber hún saman
laun hjúkrunarfræðinga og annarra
háskólamenntaðra starfsmanna rík-
isins.
„Meðaldagvinnulaun hjúkrunar-
fræðinga í sept. 2012 voru 381.466
kr. á mánuði, en meðaldagvinnulaun
háskólamenntaðra starfsmanna
Stjórnarráðsins voru á sama tíma
463.202 og meðalmánaðarlaun við-
skipta og hagfræðinga hjá ríkinu, en
þeirra grunnnám er einu ári styttra
en nám hjúkrunarfræðinga, eru
476.871. Munurinn á meðaldag-
vinnulaunum þessara stétta er
95.000 á mánuði.“
Þarf meira fé
til að eyða
launamuninum
Hjúkrunarfræðingar án fundarboðs
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Deila Hjúkrunarfræðingar á Land-
spítalanum vilja fá kjarabætur.
Sjúklingar liggja víða á göngum
Landspítalans þessa dagana og mik-
ið álag er á starfsfólki. Óvissustig er
enn í gildi á spítalanum vegna flensu
og plássleysis.
Spítalinn hefur ákveðið að draga
enn frekar úr valstarfsemi og setja
fram áætlun um að fjölga sjúkra-
rýmum og auka mönnun til þess að
mæta áframhaldandi þörf fyrir
hana. Þegar hefur verið hætt við
fjölda aðgerða þar.
Staðan á sjúkrahúsinu er end-
urmetin daglega og verður það gert í
hádeginu í dag.
Enn dregið úr valstarf-
semi á Landspítalanum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fullt Á fjórða tug sjúklinga var í einangrun á Landspítalanum í byrjun viku
og þarf fjöldi sjúklinga að dveljast á göngunum sökum plássleysis.
Staðan metin
á ný í hádeginu
Fleiri geislafræðingar á Landspítal-
anum hafa sagt upp störfum á spít-
alanum undanfarið og er hljóðið í
þeim að þyngjast. Á þriðja tug þeirra,
sem starfa í Fossvogi, hefur áður sagt
upp störfum vegna óánægju með
breytingar á vaktaskipulagi.
„Ég hef heyrt af því að fleiri hafi
sagt upp en ég er ekki með neinar ná-
kvæmar tölur um það. Tónninn er að
breytast í fólki, það hefur ekki trú á
að stofnanasamningurinn verði end-
urskoðaður. Fólk er ósátt við að það
sé ekkert að gerast,“ segir Katrín
Sigurðardóttir, formaður Félags
geislafræðinga, um uppsagnir fé-
lagsmanna á Landspítalanum.
Engar viðræður hafa átt sér stað á
milli geislafræðinga og stjórnenda
Landspítalans frá því í desember en
þá lagði félag þeirra fyrrnefndu fram
drög að nýjum stofnanasamningi. Þá
voru haldnir tveir fundir en síðan hef-
ur ekkert frekar gerst. „Það hefur
ekki þótt ástæða til þess að boða ann-
an fund. Við höfum núna sent inn ósk
um fund en ekki ennþá fengið svar,“
segir Katrín. kjartan@mbl.is
Geislafræðingar
ósáttir við stöðuna
Hafa óskað eftir fundi við stjórnendur