Morgunblaðið - 09.02.2013, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2013
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Þetta er stórviðburður á sviði bók-
mennta og mannréttindamála,“
segir rithöfundurinn Sjón, formað-
ur Íslandsdeildar PEN. Heimsþing
hinna kunnu alþjóðasamtaka rit-
höfunda, útgefenda og blaðamanna
verður haldið í Reykjavík í haust,
dagana 9. til 12. september. Bók-
menntahátíð í Reykjavík er haldin á
sama tíma. Von mun vera á þrjú til
fjögur hundruð gestum á þingið,
rithöfundum, útgefendum og
starfsfólki mannréttindaskrifstofa.
Alþjóðasamtök PEN voru stofnuð
árið 1921 og styðja bókmenntir og
tjáningarfrelsi, en þau eru elstu
starfandi manréttindasamtökin.
Sjón segir yfirskrift þingsins
vera „Digital Frontiers – Linguistic
Rights and Free-
dom of Speech“
og verður það
mál rætt frá ýms-
um hliðum, með-
al annars þeirri
sem snýr að
tungumálum sem
fáir tala en „óvíst
er hvernig þau
muni spjara sig á
tölvuöld þar sem hugbúnaðarrisar
sjá litla ástæðu til að þjónusta slíkt
smotterí,“ segir Sjón. Hann bætir
við að helsta verkefni samtakanna
sé rekstur stofnunar sem safnar
upplýsingum um fangelsaða og of-
sótta höfunda og stendur fyrir her-
ferðum og beinum aðgerðum til að
fá fólk laust undan því.
Þegar hann er spurður hvernig
standi á því að heimsþingið sé hald-
ið hér, segist Sjón hafa verið í dag-
skrá um bókmenntir og mannrétt-
indi í Stokkhólmi með forseta
samtakanna og þar hafi hugmyndin
kviknað, að Reykjavík yrði gest-
gjafi þingsins. „Stjórn PEN á Ís-
landi tók til við að skoða mögu-
leikann á því og það er að takast
með stuðningi ríkis og borgar.
Heimsþingið er haldið í samstarfi
við Bókmenntaborgina og er styrkt
af mennta- og menningarmálaráðu-
neyti og utanríkisráðuneyti. Annar
samstarfsaðili er Alþjóðlega bók-
menntahátíðin í Reykjavík en þing
og hátíð skarast svo sameiginlegar
dagskrár verða í Hörpu og Nor-
ræna húsinu.
„Það er gífurlega eftirsótt að
halda þessi þing og því mikill heið-
ur að boði Reykjavíkur skuli hafa
verið tekið,“ segir Sjón.
PEN-þingið á Íslandi
Heimsþing PEN, alþjóðasamtaka rithöfunda, verður
haldið í Reykjavík Von er á 3-400 gestum á þingið
Sjón
SVIÐSLJÓS
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
„Fullnaðarsigur í Icesave-málinu
gefur nú aukin tækifæri til að taka á
þeim ógnum sem vofa yfir íslensku
efnahagslífi og heimilum. Í þeirri
baráttu munum við sýna sömu festu
og áður,“ sagði Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Framsókn-
arflokksins, í setningarræðu á
flokksþingi Framsóknarflokksins í
gær.
„Skjaldborgin um heimilin sneri
öfugt, og skjaldborg sem snýr öfugt
kallast umsátur. Við þurfum að leiða
sóknina til að rjúfa umsátrið um
heimilin. Þau mál snúast um réttlæti
inn á við og þar þurfum við að sýna
sömu festu og í baráttunni fyrir rétt-
læti út á við,“ sagði Sigmundur Dav-
íð.
Hann sagði að megnið af kröfunum
á hendur íslensku bönkunum væri
ekki lengur í eigu þeirra sem töpuðu
gríðarháum fjárhæðum á að lána ís-
lensku bönkunum fjármagn. „Þær
voru keyptar af vogunarsjóðum sem í
flestum tilvikum hafa hagnast gríð-
arlega á þeim,“ sagði Sigmundur
Davíð. Hann segir Íslendinga ekki
geta leyft erlendum vogunarsjóðum
að tefla framtíð íslensks efnahagslífs,
heimilanna og fyrirtækjanna, í voða.
Tækifæri kastað á glæ
„Tíminn hefur leitt í ljós að þær til-
lögur sem við lögðum fram fyrir fjór-
um árum um leiðréttingu á skuldum
heimilanna voru raunhæfar og nauð-
synlegar. En vegna pólitískrar and-
stöðu ríkisstjórnarflokkanna var því
tækifæri kastað á glæ.
Við vöruðum við því að bönkunum
yrði skipt upp með þeim hætti sem
raun varð. Æskilegra hefði verið að
hafa nýju bankana minni og útlána-
söfn þeirra betri.
Í stað stefnu stjórnvalda um að
setja mörg hundruð milljarða inn í
allt of stóra nýja banka töldum við
æskilegra að kaupa skuldabréf bank-
anna sem þá voru seld á hrakvirði,“
sagði Sigmundur Davíð.
Húsnæðislán verði leiðrétt
Hann sagði framsóknarmenn hafa
varað við því að myntkörfulán kynnu
að verða dæmd ólögmæt og þess
vegna mætti ríkið ekki taka þau til
sín í nýju bankana. „Fyrrverandi við-
skiptaráðherra taldi eftir dóminn að
tap ríkisins af þeirri aðgerð næmi yf-
ir eitt hundrað milljörðum,“ sagði
Sigmundur Davíð.
„Á þessu flokksþingi munum við í
sameiningu móta enn fleiri tillögur
um lausnir. Ef við komumst svo í að-
stöðu til að framfylgja þeim munum
við að sjálfsögðu beita okkur af sömu
einurð og festu og einkennt hefur
baráttu okkar til þessa.“
Í drögum að ályktun um málefni
heimilanna segir að ekkert geti rétt-
lætt annað en að ófyrirséð efnahags-
hrun deilist á lánveitendur jafnt sem
lántakendur. Enn vanti mikið upp á
að bankar og önnur fjármálafyrir-
tæki hafi unnið úr þeim gríðarlega
flóknu og erfiðu skuldamálum sem
heimilin eiga við að glíma, ekki síst
vegna lagalegrar óvissu um ýmis
mikilvæg mál, doða og ráðaleysis
stjórnvalda. „Það er því krafa Fram-
sóknarflokksins að stökkbreytt hús-
næðislán verði leiðrétt á sanngjarnan
hátt enda um forsendubrest að ræða
við efnahagshrunið 2008. Brýnt er að
að lausn fáist sem fyrst í dómsmál
varðandi skuldir heimilanna en ólíð-
andi er hve langan tíma hefur tekið
að greiða úr málum,“ segir í tillög-
unni.
„Þurfum að rjúfa umsátrið“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fulltrúar Borgfirðingar eiga sína fulltrúa á flokksþingi Framsóknarflokksins og taka þeir virkan þátt í störfum
þess. 740 fulltrúar hafa rétt til setu á þinginu og á fyrsta degi þingsins voru um 450 þeirra mættir.
Formaður Sigmundur Davíð Gunnlaugsson flutti yfirlitsræðu við upphaf 32.
flokksþings Framsóknarflokksins. Hann vill leiða starfið áfram.
Sigmundur Davíð sagði á flokksþingi að sigur í Icesave-málinu gæfi tækifæri til að taka á ógnunum
efnahagslífs og heimila Sagði tillögur um leiðréttingu á skuldum heimilanna hafa verið raunhæfar
Flokksþing
» 32. flokksþing er haldið í
Gullhömrum í Grafarholti og
lýkur á sunnudag.
» Í dag halda almennar um-
ræður áfram, kosið verður í
embætti og afgreiðsla álykt-
ana hefst. Þá verða Bjartsýnis-
verðlaun Framsóknarflokksins
2013 afhent.
» Á morgun verða ályktanir
afgreiddar. Jafnréttisviður
kenning Framsóknarflokksins
2013 verður afhent. Þinglok
eru áætluð um kl. 14.
Sigurður Ingi Jó-
hannsson, þing-
maður Framsókn-
arflokksins í
Suðurkjördæmi,
lýsti því formlega
yfir í ræðu á
flokksþinginu í
gær að hann byði
sig fram til vara-
formennsku. Kos-
ið verður í embætti varaformanns í
dag en Birkir Jón Jónsson er að
hætta þingmennsku og gefur ekki
kost á sér áfram. Í gærdag höfðu
ekki fleiri framboð verið tilkynnt.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
lýsti því formlega yfir í setningar-
ræðu sinni að hann vildi leiða flokk-
inn áfram.
Niðurstöður skoðanakannana
benda til að fylgi Framsóknar-
flokksins sé að aukast. Létt var yfir
framsóknarmönnum á flokks-
þinginu í gær og góð stemning.
Vill í varafor-
manninn
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
sagði flokkinn ítrekað hafa bent á
það á síðustu misserum að hagvöxt-
urinn sem ríkisstjórnin hefði
hreykt sér af væri borinn uppi af
eyðslu séreignasparnaðar lands-
manna og miklum makrílveiðum.
„Þegar við bentum á mikilvægi
þess að taka olíuleit og þjónustu við
hana föstum tökum var talað um
óraunhæfar væntingar og fjarlæga
framtíðardrauma. Nú, aðeins fjór-
um árum síðar, hafa rannsóknir
staðfest að olíu og gas er að finna í
íslenskri lögsögu,“ sagði Sigmund-
ur Davíð í ræðu sinni.
„Þegar við bentum á að breytt
loftslag, mannfjölda- og búsetu-
þróun í heiminum gerði það að
verkum að við þyrftum að efla ís-
lenska matvælaframleiðslu vorum
við sökuð um sérhagsmunagæslu.
Mikilvægi landbúnaðar og inn-
lendrar matvælaframleiðslu er að
aukast,“ sagði Sigmundur Davíð og
benti á fleiri dæmi um málflutning
flokksins.
Makríll ber
uppi hagvöxt
ILVA Korputorgi, sími 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
ILVA Korputorgi, 112 Reykjavík
sími 522 4500 www.ILVA.is
Rjómabolla
laugardag, sunnudag og mánudag
einfaldlega betri kostur
verð 250,-/stk.