Morgunblaðið - 09.02.2013, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 09.02.2013, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2013 ✝ Óskar JúlíusJónsson fædd- ist í Skipagerði, V- Landeyjum, 21. júlí 1935. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Lundi, Hellu, 25. janúar 2013. Foreldrar hans voru hjónin Jón Gunnarsson, fæddur 7. október 1895, d. 28. maí 1987, og Kristíana Þórð- ardóttir, fædd 16. maí 1895, d. 18. apríl 1964. Alsystkini Ósk- ars eru Ingunn Þóra, fædd 19. október 1938, eiginmaður hennar var Vilhjálmur E. Þór- hallsson, hann er látinn. Friðrik Ástvaldur, fæddur 22. júlí 1940, giftur Bjarnfríði H. Gunn- arsdóttur. Bræður hans sam- mæðra voru Ársæll Eiríksson, fæddur 29. september 1915, hann er látinn, og Ágúst Guð- jónsson, fæddur 2. ágúst 1923, hann er látinn, ekkja hans er Svanborg S. Gissurardóttir. Eftirlifandi eiginkona Óskars er Sólveig Guðmundsdóttir, for- eldrar hennar voru Guðmundur Júlíusson, f. 19. júlí 1885, d. 1. janúar 1961, og Elísabet Krist- jánsdóttir, f. 8. nóvember 1912. Börn Óskars og Sólveigar eru: eru Sara Jóhanna, f. 10. maí 2006, og Elín Fríða, f. 8. mars 2009, og Davíð soninn Óskar Þór, f. 30. nóvember 1987, sam- býliskona hans Hafdís Guðrún Benidiktsdóttir, börn þeirra eru Gabríel Snær, f. 16. mars 2008, Díana Lóa, f. 20. apríl 2009, og Sigrún Björk, f. 2. september 2012. 4) Hjörtur Már, f. 12. október 1972. Áður átti Sólveig dótturina Þórdísi Björk Sigurgestsdóttur, f. 27. janúar 1963, gift Þorsteini Þor- steinssyni, f. 28. mars 1967, sonur Þórdísar er Sigurgestur Jóhann Rúnarsson, f. 25. júlí 1983, og sambýliskona hans er Aðalbjörg Silja Ólafsdóttir, f. 10. janúar 1983, og hennar börn eru Ólafur Árni Dav- íðsson, f. 28. desember 1999, og Kristjana Íva Gautadóttir, f. 12. nóvember 2004. Óskar fór snemma að heiman til vinnu, hann var m.a. vetr- armaður á Lágfelli. Síðar var hann handlangari hjá bróðir sínum. Þá fór hann tvo vetur til vinnu á vallarsvæðinu í Kefla- vík. Síðar tók hann þá ákvörð- un að taka við búinu í Skipa- gerði, bjó þar fyrst með foreldrum sínum og síðan með eiginkonu og börnum. Óskar vann ýmis störf auk hefðbund- inna bústarfa. Seinustu starfs- árin starfaði hann hjá Skógræktarfélagi Rangæinga. Óskar verður jarðsunginn frá Akureyjarkirkju í dag, 9. febrúar 2013, og hefst athöfnin kl. 14. 1) Stefán, f. 21. janúar 1964, giftur Elínu Sigríði Ragn- arsdóttur, f. 10. febrúar 1963, son- ur þeirra er Óskar Már, f. 18. sept- ember 1997, áður átti Elín dótturina Guðrúnu Axfjörð, f. 27. desember 1984, sambýlis- maður hennar er Skúli Jón Kristinsson og dóttir hennar er Snædís Birna, f. 14. febrúar 2001. 2) Kristjana Mar- grét, f. 10. febrúar 1965, í sam- búð með Björgvini H. Guð- mundssyni, f. 27. júní 1959, börn þeirra eru a) Jón Óskar, f. 18. febrúar 1987, b) Guð- mundur Hafþór, f. 21. janúar 1990, unnusta hans er Sandra Sif Sigvarðsdóttir, c) Bjarki Hafberg, f. 24. júní 1996, d) Sævar Örn, f. 16. nóvember 2000, og e) Birkir Rúnar, f. 22. júní 2007. 3) Davíð Þór, f. 4. september 1967, giftur Elínu Fríðu Sigurðardóttur, f. 11. janúar 1966, sonur þeirra er Sigurjón Þór, f. 1. október 1995, áður átti Elín dótturina Hildi Þóru Þorvaldsdóttur, f. 23. mars 1986, gift Geir Sig- urðssyni Waage, dætur þeirra Blessuð sértu sveitin mín! sumar, vetur, ár og daga. Engið, fjöllin, áin þín – yndislega sveitin mín! – heilla mig og heim til sín huga minn úr fjarlægð draga. Blessuð sértu sveitin mín! sumar, vetur, ár og daga. Yndislega ættarjörð, ástarkveðju heyr þú mína, þakkarklökkva kveðjugjörð, kveð ég líf þitt, móðir jörð. Móðir bæði mild og hörð, mig þú tak í arma þína. Yndislega ættarjörð, ástarkveðju heyr þú mína. (Sigurður Jónsson) Í dag kveð ég tengdaföður minn, Óskar Jónsson frá Skipa- gerði. Að vera fæddur, uppalinn og búsettur í sama húsi alla sína ævi telst fágætt nú til dags. En líka lýsandi fyrir Óskar, hann var heimakær og vildi helst ekki dvelja annars staðar, og nýtinn; óþarfi að kaupa nýtt ef hægt var að laga það gamla. Þó svo að hann væri svona mikill sveita- karl tók hann vel á móti nútíma- tækninni, farsíma, staðsetning- artæki, tölvu og interneti. Hann hafði gaman af „fésbókinni“ og taldi hana vera sveitasíma nú- tímans. Að sitja við eldhúsborðið og ræða málin eða fara með vís- ur eru stundir sem seint gleym- ast. Alltaf hélt ég að við hefðum nógan tíma til að skrifa niður allar þessar vísur og gamanmál, en tíminn er eitthvað sem við stjórnum ekki. Kæri Óskar, ég vil þakka þér fyrir allar stundirnar sem við höfum átt og ég set í minn- ingabókina mína. Ég vona að þú finnir garð til rækta á þeim stað sem þú ert á núna og hafir ein- hvern til að skrafa við. Elín Fríða Sigurðardóttir. Á fyrsta degi þorra, þegar breyting birtu sólarinnar sem hækkar sig nú smátt og smátt á lofti var orðin merkjanleg, kvaddi elskulegur afi minn þetta líf eftir mikil veikindi. Þau voru þung skrefin sem ég tók út af sjúkrastofunni hans þegar bóndadagur var kominn að kvöldi en þessum skrefum fylgdi líka léttir og ró og fullvissa um að nú fyndi afi aldrei aftur til. Afi var raunar stjúpafi minn en aldrei fann ég annað en að ég væri afastelpan hans afa, þó að við kynntumst ekki fyrr en ég var að verða 11 ára. Okkur afa líkaði alltaf vel hvoru við annað allt frá fyrstu kynnum en það var ekki fyrr en sumarið 1999 sem við fundum hvað við áttum í raun og veru vel saman. Þetta sumar unnum við saman við skógrækt og þegar ég lít til baka er þetta besta sumar sem ég hef átt. Við byrjuðum dagana á því að hlusta á símahrekki í útvarp- inu og hlógum bæði þegar okkur fannst hrekkirnir hitta í mark. Því næst þurftum við að hlusta á fréttirnar og taka veðrið. Svona leið sumarið og ef frá eru taldir nokkrir dagar þar sem hellirign- ing gerði okkur gramt í geði, voru dagarnir allir bjartir, stutt- ir og sólríkir. Uppáhaldssagan okkar afa frá þessu sumri er sagan af því hvernig ég lærði að drekka kaffið mitt svart. Ég tók alltaf með mér mjólk á flösku til að nota í kaffið. Eins og gefur að skilja verður mjólk lítt girnileg eftir því sem líður á daginn þeg- ar hún fær að bíða í flösku inni í bíl í sumarhitanum. Eitthvert skiptið var ég eitthvað að kvarta yfir því að mjólkin væri orðin ógeðsleg og ég gæti því ekki fengið mér kaffibolla. Þá sagði afi við mig um leið og hann benti á flöskuna sem ég hélt á: „Nú hefurðu um tvennt að velja. Annað hvort hellirðu þessu út í kaffið þitt eða þú lærir að drekka kaffið þitt eins og full- orðið fólk.“ Í lok sumars vildi ég kaffið mitt ekki öðruvísi en svart og hef drukkið það þannig síðan. Við afi rifjuðum þessa sögu margoft upp og aldrei án þess að hann skellti upp úr. En það að drekka kaffi eins og fullorðið fólk var ekki það eina sem afi kenndi mér. Afi var fróður um svo ótal margt og eftir sumar hins svarta kaffis uppgötvaði ég sífellt fleiri hliðar á afa, þessum þögla manni sem lét ekki mikið yfir sér en leyndi á sér svo um munaði. Eftir því sem árin liðu breyttist val okkar á umræðu- efnum, við hættum að hlusta á símahrekki en ýmis málefni, bæði veraldleg og andleg, hlutu sinn sess í samræðunum. Þá skipti engu hvort umræðuefnið var Heklugos, sagnfræði eða trúmál, alltaf var afi tilbúinn að ræða það við mig og alltaf hafði hann margt til málanna að leggja. Nú þegar ég rita þessa hinstu kveðju til afa míns, finnst mér ég ekkert sérstaklega stór þó að ég sé orðin fullorðin og bollinn með svarta kaffinu standi á borðinu. Mér finnst ég lítil í söknuði mínum, söknuði eftir símtali frá afa, fróðleiknum hans og söknuði eftir því að skoða með honum nýjustu græj- urnar hans. Fyrst og fremst er ég þó þakklát fyrir árin sem við áttum saman, allt sem hann kenndi mér og það að hafa feng- ið að eiga hann sem afa í þessi rúmu sextán ár. Guðrún (Gulla). Margt er okkur hulið úr for- tíðinni, eða eins og Jón Helga- son orðar það svo snilldarlega: „Aldirnar leifðu skörðu …“ Al- múgi fyrri alda skildi ekki alltaf eftir sig mörg spor. Þannig var því farið með hann langafa minn, hann Ásbjörn Ólafsson, sem átti rætur sínar að rekja í Ölfusið. Hann átti með langömmu minni tvö börn, Ólaf og Ingveldi, en síðan skildu leiðir. Þau systk- inin, Ingveldur amma mín, sem varð níutíu ára gömul, og Ólafur bróðir hennar, sem varð 81 árs, lifðu bæði sína löngu ævi án þess að hafa hugmynd um að þau ættu hálfbróður, Gunnar Ás- björnsson, sem var aðeins nokkrum árum yngri en þau. Það var ekki fyrr en með til- komu Íslendingabókar sem ég uppgötvaði þessi sannindi. Eftir undrun og vangaveltur varð for- vitnin öllu yfirsterkari og ég leit- aði uppi þetta nýfundna frænd- fólk mitt. Þarna stóð ég allt í einu andspænis fólki sem var þremenningar við mig og það var eins og fortíðin kæmi til mín færandi hendi. Það var ekki síst hann Óskar frændi minn í Skipagerði sem leiddi mig á vit fortíðarinnar. Hann var bæði í framkomu og útliti nákvæmlega eins og öðlingurinn hann Ólafur, ömmubróðir minn, sem hafði passað mig litla og alltaf átt greiðan aðgang að hjarta mínu. Þannig varð það líka með Óskar, við fundum bæði strauma for- feðranna hríslast um okkur, fundum skyldleikann og nutum þess að spjalla og spyrja, ekki síst til þess að reyna að ráða í þá fortíð sem okkur báðum var hul- in, en var þó svo skammt undan. Stundirnar urðu ekki margar en allar voru þær góðar. Að heimsækja þau Sólveigu var bæði skemmtilegt og fróðlegt og gestrisnin engu lík. Síðasta skiptið sem við komum í ynd- islega, gamla húsið þeirra í Skipagerði, þar sem sagan ang- ar úr hverri fjöl, og snyrti- mennskan ræður ríkjum, sýndu þau okkur litlu eplatrén í fallega garðinum sínum og Óskar fór á kostum í tölvunni sinni við eld- húsborðið, svo traustur og nota- legur, með Sólveigu sína káta og glaða allt um kring stjanandi við okkur. Þannig vil ég minnast hans Óskars frænda míns sem for- sjónin leiddi mig til allt of seint á lífsleiðinni. En hver stund sem við áttum saman var gefandi gleðistund. Far þú í friði, góði frændi minn. Guðfinna Ragnarsdóttir. Elsku Óskar minn. Nú ertu farinn frá okkur, þetta hafa ver- ið skrýtnir dagar undanfarið. Nú sit ég og rifja upp góðar minn- ingar um yndislegan mann. Þú varst svo barngóður, góður í alla staði. Þegar fór að vora hlakkaði ég alltaf til, og taldi niður dag- ana, þangað til ég færi í sveitina mína. Það var svo gaman og gott að vera hjá ykkur, bæði svo ynd- isleg í alla staði. Ég man svo vel þegar við stelpurnar vorum að drullumalla og þú tókst vídeó af okkur. Eins og alltaf, svo góður með krökkunum. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur krakkana og duglegur með myndavélina. Alltaf varstu tilbúinn að taka myndir og vídeóupptökur. Börnum okkar var tekið með sannri ást og alúð. Hjónin í Skipagerði hafa ávallt verið köll- uð afi og amma í sveitinni sem enn er við lýði. Hjarta okkar og hugur blæs um Skipagerði og þessi heiðursmaður mun ávallt vera í okkar hjörtum. Elsku Sólveig mín, börn og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Megi góður Guð vera með ykkur á þessum erfiðu tímum. Þín sveitastelpa, María Sigurðardóttir og Magnús Friðriksson. Óskar Júlíus Jónsson ✝ Gynda MaríaDavidsen (María Davíðs- dóttir), fæddist 26. ágúst 1923 í Hald- arsvík í Færeyjum. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Vestmannaeyja 28. janúar 2013. Foreldrar henn- ar voru Gutti Martin Davidsen, d. 1974 og Maren Katrína Dav- idsen (Andreasen), d. 1966, frá Haldarsvík Færeyjum. Systkini Natalja, gift Robert Charles James Osburn, og Alexandra Sharon. 2) Guðrún Sigurbjörg, gift Birgi Rögnvaldssyni, börn þeirra eru Anna María og Bergþór Ingi. Gynda María ólst upp í Haldarsvík í Fær- eyjum og stundaði þar ýmis störf. Hún fór á vertíð til Vest- mannaeyja árið 1958 og kynnt- ist manni sínum þar. Hófu þau búskap að Hásteinsvegi 51 árið 1959 og hélt hún þar heimili með myndarskap alveg þar til þau fluttust á Hraunbúðir árið 2006. Gynda stundaði ýmis störf meðfram heimilishaldi bæði á leikskóla og við fisk- vinnslu. Útför Gyndu Maríu fer fram frá Landakirkju í Vestmanna- eyjum í dag, 9. febrúar 2013, og hefst athöfnin kl. 14. Gyndu voru Jó- hanna Sofía Joen- sen, d. 2009, og tvíburasystirin Brynhild Pálína Súsanna Hansen, f. 1923. Hinn 26.9. 1959 giftist Gynda Bergþóri Guðjóns- syni frá Vest- mannaeyjum, f. 28. ágúst 1925, d. 18.11. 2007. Börn þeirra eru: 1) Sólrún, gift Róbert Hugo Blanco, börn þeirra eru Eva Elskuleg móðir okkar er fallin frá eftir langa og gæfuríka ævi. Við minnumst hennar með hlýju og söknuði og erum þakk- látar fyrir að hafa átt hana að svo lengi. Hlýja og vinsemd ein- kenndi mömmu alla tíð og fengum við að njóta þess í uppvextinum í ómældum mæli. Hún var alltaf til staðar fyrir okkur og bjó okkur gott heimili ásamt pabba. Heim- ilið var hennar ríki þar sem allt var hreint og fínt, skreytt með hennar fallegu hannyrðum og blómum, og ilmi af færeyskri og íslenskri matargerð. Yfir þessu hvíldi svo kærleiksríkt samband mömmu og pabba sem einkennd- ist af mikilli ást og virðingu. Það var því mömmu mikill harmur þegar pabbi féll frá árið 2007 og saknaði hún hans mikið. Mamma var í góðu sambandi við systkini sín og ættingja í Færeyjum og fórum við reglulega í heimsókn þangað ásamt pabba sem elskaði allt sem færeyskt var. Við eigum afskaplega ljúfar minningar af heimsóknum og kynnum okkar af ættingjum okkar þar og teljum við það forréttindi að hafa fengið að tengjast svo vel hennar heim- kynnum. Við erum þakklátar fyr- ir að hafa borið gæfu til að nýta þann tíma sem okkur var gefinn með mömmu. Við minnumst góðra stunda á Hraunbúðum og fjölskyldustunda í Stóragerðinu. Í dag kveðjum við mömmu í hinsta sinn. Blessuð sé minning hennar. Sólrún og Guðrún. Elsku Gynda María Davíðsen, amma okkar. Hinn 28. janúar síð- astliðinn kvaddir þú þennan heim. Mikið munum við sakna allra yndislegu stundanna sem við deildum með þér. Þú varst svo góð amma og elskaðir okkur svo heitt. Þú fylltir líf okkar af gleði, hlátri og færeyskum frösum og síðast en ekki síst, þá gafst þú og afi okkur fallega og góða fjöl- skyldu. Við munum seint gleyma þeim stundum sem við eyddum með þér og afa. Jólin eru sá tími sem er okkur sem minnisstæðastur, en hefðin var sú að eyða öllum hátíðardög- unum hjá ykkur. Eitt skiptið stakk mamma upp á því að færa hátíðarhöldin heim til okkar, ólíkt ykkur, að stóru eldhúsi með glænýrri uppvöskun- arvél. Þetta tókum við ekki í mál þar sem engin jól voru í okkar huga nema á Hásteinsveginum hjá þér og afa. Og hvers vegna að breyta þessari hefð, enda eins og þú amma bentir á hver einustu jól, þá fannst honum pabba hvort sem er svo skemmtilegt að vaska upp. Svo voru það sunnudagarnir eftir kirkju þegar við kíktum í heimsókn til ykkar. Þetta voru bestu dagar vikunn- ar sem enduðu yfirleitt á ljúffeng- um pönnukökum með sykri og nokkrum kóngabrjóstsykursmol- um sem afi átti til að lauma að okkur. Ekki má svo gleyma öllum sápuóperunum sem við horfðum á saman. Með mér voru það Ná- grannar en þú og Natalja eydduð mörgum stundum yfir Leiðar- ljósi. Þú varst farin að missa sjón og oftar en ekki þurftum við að út- skýra fyrir þér hvað var að gerast í hverjum þætti. Ég get enn heyrt í huga mér viðbrögðin yfir öllum hneykslismálunum sem við lýst- um fyrir þér úr hverri Löðurserí- unni: „Er thad? Nei, ekki gjerdi hún thad?“ sagðir þú á þinni bestu blöndu af færeysku og ís- lensku. Sunnudagskaffið færðist síðar meir heim til okkar í Stóragerðið þegar þú og afi fluttuð á Hraun- búðir. Mamma tók upp þá hefð að hafa heitan mat í hádeginu og á hverjum sunnudegi í mörg ár, komuð þið til okkar og snædduð lambalæri. Síðar meir þegar afi var farinn hélst þú áfram að koma til okkar. Svona var hefðin mikil og fjölskylduböndin sterk. Með árunum urðum við Na- talja eldri og fórum á vit ferða- lagsins frá Vestmannaeyjum. Na- talja elti stóru ástina til Kanada og ég fór og dvaldist með þeim um ársbil. Það ár var þitt síðasta með afa, árið 2007. Stuttu eftir flutti ég aftur til Ís- lands og minnist þess mjög hversu ánægð þú varst að sjá mig. Á sunnudagseftirmiðsdegi sát- um við saman á Hraunbúðum og ég sagði þér sögur frá Kanada. Þú varst svo stolt af mér að hafa farið í þetta langa ferðalag og stolt af Natalju yfir öllu því sem hún hafði áorkað í lífinu. Síðustu jólin með þér munu ávallt vera mér dýrmæt. Þökk sé tækninni þá gátum við sett upp netspjall á aðfangadag með þér og Natalju í Kanada. Þú varst alltaf jafn glöð og ánægð að heyra í henni. Dagurinn var fylltur af gleði og hlátri, góðum mat, og góðum fé- lagsskap. Þú varst umvafin fjöl- skyldu þinni allt til endaloka. En nú ertu farin, og þó svo að sorgin sé mikil þá gleðjumst við jafnframt yfir því að nú ertu aftur komin til Begga afa sem þú sakn- aðir svo heitt. Við elskum þig, amma. Hvíl í friði. Alexandra Sharon Ró- bertsdóttir og Eva Na- talja Róbertsdóttir. Gynda María Davidsen HINSTA KVEÐJA Elsku Gunda, núna ert þú komin til Begga sem þú saknaðir svo mikið. Börnum þínum og barnabörnum sendi ég mín- ar samúðarkveðjur. Guð verði með þeim. Edith. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.