Morgunblaðið - 09.02.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.02.2013, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2013 STUTTAR FRÉTTIR ● Matsfyrirtækið Moody’s hefur breytt horfunum á Baa3-lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands úr neikvæðum í stöð- ugar. Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Ís- lands Baa3/P-3 fyrir langtíma- og skammtímaskuldbindingar eru áfram óbreyttar. Þetta kemur fram í frétt á vef Seðlabanka Íslands. Ákvörðun Moody‘s um að setja horf- urnar aftur í stöðugar byggist á því að dregið hefur úr þeirri áhættu sem fylgdi úrskurði EFTA-dómstólsins í janúar. Sá atburður leggst á sveif með öðrum já- kvæðum þáttum í þróuninni á Íslandi síðastliðna 12 mánuði að mati Moody’s. Moody’s hefur breytt horfunum í stöðugar Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Hrein eign lífeyrissjóðanna til út- greiðslu lífeyris nam um 2.390 millj- örðum króna í lok ársins 2012 sam- kvæmt bráðabirgðatölum. Hrein eign sjóðanna jókst um rúma 290 milljarða króna á árinu, eða um tæp 13%. Hagsjá Hagfræðideildar Landsbankans fjallaði í gær um eignastöðu lífeyrissjóðanna. Mesti vöxtur síðan 2007 „Þessi vöxtur er sá mesti síðan á árinu 2007, en vöxtur hreinnar eign- ar á árinu 2011 var tæp 10%. Hér er einungis litið til þróunar á hreinni eign sjóðanna og ekki skilið á milli inngreiðslna og ávöxtunar. Ætla má að hrein eign lífeyrissjóð- anna um síðustu áramót hafi verið um 137% af vergri landsframleiðslu (VLF) ársins 2012. Þetta er hæsta hlutfall sem nokkurn tíma hefur mælst. Stærð sjóðanna m.v. VLF var svipuð í lok ársins 2011 og í lok árs- ins 2007,“ segir orðrétt í Hagsjá. Þar kemur fram að árið 2008 hafi hrein eign lífeyrissjóðanna lækkað úr því að vera 130% af vergri lands- framleiðslu, niður í það að vera 108% af VLF. Þá hafi hlutfallið verið kom- ið niður í svipað hlutfall af VLF og árið 2004. Stærð sjóðanna miðað við VLF hefur aukist stöðugt síðan á árinu 2007. Hrein eign þrefaldast frá 1997 Hagsjá bendir á að landsfram- leiðslan hafi fallið mikið í kjölfar bankahrunsins og sé viðmiðun við hana kannski ekki besti mælikvarð- inn á stjórn sjóðanna. Sé hrein eign þeirra miðuð við vísitölu neysluverðs fáist dálítið önnur mynd: Hrein eign sjóðanna hafi rúmlega þrefaldast að raunvirði frá árinu 1997, eða um rúm 8% á ári. Fram kemur að töluverðar breyt- ingar hafi orðið á samsetningu eigna lífeyrissjóðanna á undanförnum ár- um. Stöðug aukning hafi orðið á skuldabréfaeign þeirra og hluta- bréfaeign þeirra hafi aukist mikið á árunum 2002 til 2007, en hún hafi fallið mikið í kjölfar hrunsins, en aukist á ný undanfarin tvö ár. Um síðustu áramót var hlutabréfaeign sjóðanna um 8% af hreinni eign þeirra. Eftir hrun hafi reiðufé og banka- innstæður verið mun stærri hluti eigna en áður og það sýni vafalítið breytingu í átt til meira öryggis. Eignaaukning lífeyrissjóðanna á undanförnum misserum hafi nær al- farið verið í innlendum eignum. Eftir að gjaldeyrishöftin voru sett á hafi hlutfall erlendra eigna sjóðanna far- ið nokkuð lækkandi. Hrein eign lífeyrissjóðanna jókst um 290 milljarða 2012  Eign sjóðanna til útgreiðslu lífeyris nam um 2.390 milljörðum króna Stærð lífeyrissjóða » Á árinu 2011 var íslenska líf- eyrissjóðakerfið það næst- stærsta innan OECD, eða um 129% af VLF. » Einungis hollenska kerfið var stærra, eða 138% af VLF. » Ætla má að íslenska kerfið hafi um áramót verið um 137% af VLF. » Innlend hlutabréfaeign sjóð- anna nam tæpum 190 millj- örðum króna um síðustu ára- mót, sem nemur tæplega 8% af hreinni eign lífeyrissjóð- anna. Hrein eign lífeyrissjóðanna sem hlutfall af VLF 140% 120% 100% 80% 60% 40% 20% 0% 19 97 19 98 19 99 20 00 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12 Heimild: Seðlabanki Íslands, Hagstofa Íslands, Hagfræðideild. Heimsmarkaðs- verð á olíu hækkaði talsvert í gær eftir að stjórnvöld í Íran höfnuðu við- ræðum við Bandaríkjamenn um kjarnorku- vopnafram- leiðslu. Eins höfðu jákvæðar fregnir af kínversku efnahagslífi áhrif. Verð á Brent Norðursjávarolíu til afhendingar í mars fór í gær hæst í 117,94 Bandaríkjadali tunn- an, en lækkaði lítillega aftur og hef- ur ekki verið hærra síðan 14. sept- ember í fyrra. Olíuverð aftur á uppleið Olíuverð Fór hæst í 117,94 dali.  Tunnan í 118 dali Kópavogsbær hefur gert sam- komulag við Lánasjóð sveitarfélaga um að fá lán upp á fimm milljarða króna til að endurfjármagna lán upp á 35 milljónir evra, sex millj- arða króna, hjá Dexia Local Crédit, sem er á gjalddaga í maí. Mismun- inn mun bærinn greiða með hand- bæru fé. Kópavogsbær hefur að undan- förnu einnig unnið að skammtíma- framlengingu og/eða fjármögnun á hluta af Dexia-láninu til að dreifa kaupum á gjaldeyri fram á haust 2013, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Fær 5 millj- arða króna lán                                          !"# $% " &'( )* '$* +,-./0 ,11.22 +,-.32 ,,.2,+ ,4.++ +2.52+ +42.12 +.4-52 +2/.00 +-+.14 +,-.50 ,1+.05 +,5.13 ,,.255 ,4.+-5 +2.202 +42.05 +.45,2 +23.1, +-+./+ ,4,.5/,0 +,5.+0 ,1+.2- +,5.04 ,4.1// ,4.,03 ,1.11- +42.5- +.4532 +23.3 +-+.22 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 14 0314 og RIKB 22 10 26 fór fram hjá Lánamálum ríkisins í gær. Út- boðinu var þannig háttað að öll sam- þykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxt- unarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Alls bárust 5 gild tilboð í fyrri flokk- inn að fjárhæð 1.200 m.kr. að nafnverði. 5 tilboðum var tekið fyrir 1.200 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,775 (3,05% ávöxtunarkröfu). Alls bárust 18 gild tilboð í síðari flokkinn að fjárhæð 4.120 m.kr. að nafnverði. 16 tilboðum var tekið fyrir 3.920 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 105,350 (6,48% ávöxtunarkröfu). Tilboðum í ríksbréf tekið fyrir 5,1 milljarð Markaðsverð íbúðarhúsnæðis á landinu hækkaði um 4,5% á síðasta ári. Þetta er heldur minni hækkun en á árinu 2011 þegar markaðs- verð húsnæðis á Íslandi hækkaði um 8%. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands. Hækkun fast- eignaverðs á síðasta ári var ein- göngu á höfuðborgarsvæðinu, en markaðsverð húsnæðis á lands- byggðinni lækkaði á síðasta ári. Fasteignaverð á landsbyggðinni hækkaði óvenjulega mikið á árinu 2011 eða um 10,3%, en sú hækkun gekk að nokkru leyti til baka í fyrra, samkvæmt tölum Hagstof- unnar. Markaðsverð fjölbýlishúsa á höf- uðborgarsvæðinu hækkaði um 7,5% í fyrra, en markaðsverð ein- býlishúsa á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 4,2% í fyrra. Fasteignaverð 2012 hækkaði um 4,5% Morgunblaðið/Ómar Reykjavík Hækkun fasteignaverðs var einungis á höfuðborgarsvæðinu.  Mest hækkun á höfuðborgarsvæðinu Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is Eðlileg gagnvirkni – heyrnartækin sem virka fyrirhafnarlaust Komdu í greiningu hjá faglærðum heyrnarfræðingi Hugsaðu þér að þú getir auðveldlega fylgst með sérhverju samtali, skynjað á réttan hátt hljóðin í kring um þig og getir án óþæginda verið í mjög mismunandi hávaða. Eða með öðrum orðum getir á eðlilegan hátt hlustað á það sem þú vilt heyra. Þetta er allt mögulegt með Verso, sem eru nýjustu og fullkomnustu heyrnartækin frá ReSound.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.