Morgunblaðið - 09.02.2013, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2013
SVIÐSLJÓS
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
„Við verðum vör við á Íslandi að aðal-
samkeppnin á sviði ferðamála sé samkeppni
milli þeirra flugfélaga sem eru að fljúga til
og frá landinu. Mesta samkeppnin sem við
eigum við að etja er samkeppnin við aðra
áfangastaði en Ísland,“ segir Helgi Már
Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs Icelandair. „Icelandair er búið
að fjárfesta mikið í markaðssetningu á er-
lendum mörkuðum og er með starfsfólk er-
lendis í að kynna landið fyrir erlendum
ferðamönnum og því mikilvægt að fjárfesta í
markaðssetningu. Áfangastaðurinn Ísland
selur sig nefnilega ekki sjálfur.“
Kaupstefnan haldin í 21. sinn
Á ferðakaupstefunni Mid Atlantic í Laug-
ardalshöllinni í gær voru kaupendur og selj-
endur ferðaþjónustu teymdir saman í þeim
tilgangi að mynda ný viðskiptatengsl,
styrkja þau sem fyrir eru og auka ferða-
mannastraum til Íslands. Kaupstefnan er
haldin í 21. skipti og hefur aldrei verið fjöl-
mennari, en hún er haldin á vegum Ice-
landair.
Þátttakendur á kaupstefnunni eru um það
bil 700 og þar af eru hér 450 erlendir gestir
frá 21 landi.
„Á Mid Atlantic leiðum við saman kaup-
endur og seljendur ferðaþjónustu frá Evr-
ópu og Ameríku og svo Íslendinga til að
kynna þá innlendu ferðaþjónustu sem þeir
hafa upp á að bjóða,“ sagði Helgi.
Kaupstefnan hefur stækkað mjög mikið
síðustu þrjú árin, í svipuðum hlutföllum og
leiðarkerfi Icelandair.
„Leiðakerfi flugfélagsins hefur stækkað
að meðaltali um 15% á ári síðastliðin þrjú ár
og reiknum með svipuðum vexti árið 2013.“
„Þegar leiðakerfið vex og við aukum
framboð ferða til og frá Íslandi eru meiri
líkur á að við getum selt Ísland sem ákvörð-
unarstað. Þegar við náum að auka fram-
boðið á tengiflugi milli Evrópu og Banda-
ríkjanna erum við jafnframt að búa til
sætaframboð fyrir ferðir til Íslands.“ Meðal
nýjunga í leiðakerfi Icelandair á árinu 2013
er að Toronto verður heilsársáfangastaður
og flogið verður daglega til Parísar yfir há-
veturinn.
„Til samanburðar má nefna að á árunum
2002-2004 vorum við með 2-4 flugferðir til
Parísar yfir vetrartímann, en nú verðum við
með mjög reglulegt flug milli landanna,“
segir Helgi.
Flogið milli Íslands og Alaska
Anchorage í Alaska er nýr áfangastaður
sem flogið verður til í sumar, ásamt Zürich í
Sviss og St. Pétursborgar í Rússlandi.
„Eina beina flugið milli Evrópu og Ancho-
rage var áður frá Frankfurt en um var að
ræða leiguflug. Flug Icelandair til Ancho-
rage er hins vegar áætlanaflug. Ferðatíminn
milli Íslands og Alaska er rúmir 7 klukku-
tímar, sem er álíka langur flugtími og til
Seattle eða Denver,“ segir Helgi, en að hans
sögn hafa bókanir farið mjög vel af stað fyr-
ir þetta flug og bókanir líta almennt mjög
vel út hjá flugfélaginu miðað við væntingar.
„Uppbyggingin á kaupstefnunni er að fólk
er hér í Höllinni að kynna sína þjónustu, en
svo bjóðum við líka upp á ferðir fyrir kaup-
stefnugesti til Vestfjarða og Akureyrar.
Með þessu erum við að reyna að jafna þess-
ar árstíðasveiflur sem hafa einkennt ferða-
þjónustuna, en líka að dreifa þeim erlendu
ferðamönnum sem koma til Íslands um
landið.“
Á milli Evrópu og Ameríku
James Minton frá Visit Anchorage, ferða-
málaráði Anchorage, var meðal kaup-
stefnugesta.
Að hans sögn munu fjöldamörg tækifæri
skapast fyrir ferðaþjónustuaðila beggja
vegna Atlantshafsins með tilkomu þessa
beina flugs milli Íslands og Alaska.
Flugleiðin um Ísland mun koma til með
að vera sú besta fyrir fólk á ferð milli
Alaska og Evrópu, sérstaklega Norður-
landanna og Bretlands.
„Þessi nýja flugleið styttir ferðina um
fjöldamargar klukkustundir,“ sagði Minton.
Aðspurður hvort ekki væri erfitt að fá
fólk til að koma til Alaska, sérstaklega frá
Íslandi, sagði hann að sú væri ekki raunin.
„Norður-Evrópubúar eru vanir snjónum
og kuldanum og það er því ekki til vand-
ræða. Alaska býður upp á margt sem þú
finnur hvergi annars staðar, eins og elgi
sem ganga frjálsir um götur Anchorage.
Alaskabúar eru líka mjög spenntir fyrir
flugleiðum frá Íslandi, sérstaklega til Nor-
egs í ljósi sameiginlegra hagsmuna landanna
á sviði olíu- og sjávarútvegsmála. Að sama
skapi finnst mörgum Alaskabúum spennandi
kostur að heimsækja Ísland. Löndin eru
vissulega svipuð á að líta, en Ísland á sér til
að mynda miklu lengri sögu en Anchorage.“
Verður að segja frá fegurðinni
Linn Falkenberg er í sjötta sinn á ferða-
kaupstefnunni fyrir Ferðamálaráð Bergen í
Noregi.
„Það er mjög gott tækifæri fyrir okkur að
geta komið saman hér á milli heimsálfanna
og rætt viðskipti. Bandaríkjamenn eru sá
hópur sem við erum helst að reyna að ná til
hérna. Ísland er okkur mjög mikilvægt í
þessari viðleitni okkar, bæði þegar kemur
að því að ná tengslum og sem flugleið,“
sagði Falkenberg, en hún tók undir með
Helga Má að áfangastaðir ferðamanna gætu
ekki treyst á að staðir seldu sig sjálfir út á
það eitt aðvera einstakir eða fallegir. „Orð-
spor skiptir öllu máli. Noregur er fallegt
land, en það er nauðsynlegt að segja fólki
frá því,“ segir hún.
Ísland kynnir sig ekki sjálft
450 erlendir gestir á ferðakaupstefnu í Laugardalshöll Samkeppnin ekki meðal innlendra ferðaþjón-
ustuaðila heldur landsins við aðra áfangastaði Beint flug milli Íslands og Alaska í loftið með sumrinu
Morgunblaðið/Golli
Kaupstefnugestir Ferðakaupstefnan Mid Atlantic dró til sín 700 gesti í Laugardalshöllinni í
gær, þar af 450 erlenda. Þetta er í 21. sinn sem kaupstefnan er haldin.
Helgi Már
Björgvinsson
James
Minton
Linn
Falkenberg
„Ég vil leggja mitt af mörkum í því
mikilvæga verkefni sem framundan
er hjá Sjálfstæðisflokknum og von-
ast til að framboð mitt styrki for-
ystusveit flokksins enn frekar,“ seg-
ir Hanna Birna Kristjánsdóttir,
oddviti sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn, sem hefur ákveðið að gefa
kost á sér í embætti varaformanns
Sjálfstæðisflokksins á komandi
landsfundi.
Hanna Birna sigraði með yfir-
burðum í prófkjöri sjálfstæðismanna
og skipar efsta sætið á framboðslista
í Reykjavíkurkjördæmi suður við
komandi alþingiskosningar. Hún
segist hafa fengið hvatningu til að
bjóða sig fram. „Ég finn fyrir mikl-
um stuðningi frá sjálfstæðisfólki um
allt land og vona að það skili sér inn á
landsfund,“ segir hún.
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra
sem tók afstöðu í viðhorfskönnun
sem Capacent Gallup vann um leið-
toga Sjálfstæðisflokksins telur að
Hanna Birna yrði sterkari formaður
flokksins heldur en Bjarni Bene-
diktsson, núverandi formaður.
Hanna Birna segist ekki hafa vitað
um þessa könnun fyrr en hún birtist í
fjölmiðlum um hádegið í gær og hún
hafi ekki haft áhrif á ákvörðun henn-
ar. „Mér þykir auðvitað vænt um
þennan mikla
stuðning og er
þakklát fyrir
hann,“ segir hún
og bendir jafn-
framt á að þetta
sé svipuð vís-
bending og var
fyrir síðasta
landsfund þegar
hún bauð sig fram
til formanns. „Ég vona að ég svari
þessu kalli með því að gefa kost á
mér til forystu Sjálfstæðisflokksins.
Ég sagði það á síðasta landsfundi og
eftir prófkjörið að ég myndi ekki
gefa kost á mér aftur gegn Bjarna
Benediktssyni og það stendur,“ seg-
ir Hanna Birna.
Í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér
í gær um framboðið segir meðal ann-
ars: „Í komandi kosningum skiptir
miklu að Sjálfstæðisflokkurinn nái
góðum árangri og stuðli að nauðsyn-
legum breytingum til að binda enda
á þá kyrrstöðu sem hér hefur hamlað
uppbyggingu, framförum og lífskjör-
um á síðustu árum. Aðeins með því
að koma núverandi ríkisstjórn frá
getum við vænst þess að skattar og
skuldir lækki, atvinna aukist og Ís-
land verði land tækifæra, lífsgæða
og farsælla lausna.“ helgi@mbl.is
„Ég vil leggja
mitt af mörkum“
Býður sig fram til varaformennsku
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Sigurður Helga-
son, stjórnar-
formaður Ice-
landair Group,
keypti í gær fjór-
ar milljónir hluta
í félaginu að and-
virði 42 milljóna
króna. Sam-
kvæmt tilkynn-
ingu frá Kaup-
höll Íslands á Sigurður 14 milljónir
hluta í Icelandair Group eftir kaup-
in. Sigurður keypti hvern hlut á
10,55 krónur. Stærstu einstöku eig-
endur í félaginu eru Lífeyrissjóður
verslunarmanna og Framtaks-
sjóður Íslands.
Stjórnarformaður
kaupir í Icelandair
Sigurður Helgason
Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í
áframhaldandi gæsluvarðhald til
21. febrúar og einn til 14. febrúar í
tengslum við rannsókn lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu á um-
fangsmiklu fíkniefnasmygli.
Fjórmenningarnir, sem eru á fer-
tugs- og fimmtugsaldri, voru hand-
teknir í síðasta mánuði eftir að hald
var lagt á verulegt magn af því sem
talið er vera sterk fíkniefni. Efnin
voru send hingað til lands í nokkr-
um póstsendingum. Um tíma sat
karl á þrítugsaldri einnig í gæslu-
varðhaldi í þágu rannsóknarhags-
muna en honum var sleppt í byrjun
mánaðarins.
Áfram í varðhaldi í
stóru fíkniefnamáli