Morgunblaðið - 09.02.2013, Síða 29

Morgunblaðið - 09.02.2013, Síða 29
KORTIÐ GILDIR TIL 31. maí 2013 – MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR MOGGAKLÚBBURINN FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT EÐA Í SÍMA 569 1100 2 FYRIR 1 Á TAPAS BARNUM AF ÓVISSUFERÐ MOGGAKLÚBBUR Framvísið Moggaklúbbs- kortinu áður en pantað er. Tilboðið er í boði mánudaga og þriðjudaga til og með 26. febrúar 2013 ATH! Gildir ekki með öðrum tilboðum. RESTAURANT- BAR Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík | Sími 551 2344 | www.tapas.is Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann. Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2013 Vegna umfjöllunar í Morgunblaðinu um virðisaukaskatt á bæk- ur sunnudaginn 3. febrúar sl. vilja Félag bókagerðarmanna (FBM) og Samtök iðn- aðarins (SI) koma eft- irfarandi á framfæri: FBM og SI styðja málarekstur Prent- smiðjunnar Odda eða móðurfélags þess, Kvos, gegn íslenska ríkinu, þar sem reynt er að fá því hnekkt að lagður sé á 25,5% virðisaukaskattur á bækur sem prentaðar eru hér á landi og ætlaðar eru til endursölu, þá fyrst og fremst fyrir bókaútgef- endur. Ef erlendar prentsmiðjur prenta bækur eða tímarit fyrir íslenskan bókaútgefanda er einungis lagður á 7% virðisaukaskattur við toll- afgreiðslu, en íslenskum prent- smiðjum er gert að leggja á 25,5% af fullkláruðum bókum eða tímaritum. Hjá þeim viðskiptavinum íslensku prentsmiðjanna sem eru virðis- aukaskattsaðilar og geta fengið virð- isaukaskattinn endurgreiddan þýðir þetta meiri fjárbindingu. En fyrir þá viðskiptavini sem eru ekki virðis- aukaskattsaðilar, svo sem fjár- málastofnanir og ýmis opinber fyr- irtæki, þýðir þetta einfaldlega hærra verð sem nemur muninum á virðis- aukaskattinum. Ljóst er að þarna er í raun verið að tollvernda erlenda framleiðslu og þannig stuðla að því að flytja íslensk- an iðnað og bókaframleiðslu úr landi. Virðisaukaskattur á bækur og tímarit Eftir Georg Pál Skúlason og Orra Hauksson Georg Páll Skúlason » Ljóst er að þarna er í raun verið að toll- vernda erlenda fram- leiðslu og þannig stuðla að því að flytja íslensk- an iðnað og bókafram- leiðslu úr landi. Georg Páll er formaður Félags bóka- gerðarmanna og Orri fram- kvæmdastjóri SI. Orri Hauksson Á þriðja þúsund fyrirtækja glímir við tifandi tímasprengju í boði bankanna. Þetta eru fyrirtækin sem fengu hluta af skuldum frestað vegna þess að þau réðu ekki við afborg- anir af þeim að fullu eftir efnahagshrunið. Meinið er að stór hluti þessara fyrirtækja getur ekkert frekar ráðið við að greiða biðlánin þegar kemur að gjald- dögum á þessu ári og því næsta. Ástæðan er einföld. Fyrirtækin standa ekkert betur en þau gerðu þegar gálgafresturinn var veittur. Útgjöld hafa stóraukist vegna hækkunar opinberra gjalda og veikari krónu. Tekjur aukast lítið, standa í stað eða dragast saman. Um 700 lítil og meðalstór fyrir- tæki fengu skuldafrest til þriggja ára í gegnum „Beinu brautina“. Nokkur þúsund til viðbótar fengu mismunandi útgáfur af svipaðri fyrirgreiðslu í bönkunum. Flest eiga þessi fyrirtæki sameiginlegt að skulda meira af stökkbreyttum skuldum en þau ráða við. Fallöxi biðlánanna Biðlánin hanga yfir fyrirtækj- unum eins og fallöxi. Þetta leiðir til stöðnunar, því forráðamenn fyrirtækjanna treysta sér ekki í uppbyggingu eða annan vöxt. Þeir vita ekkert hvað tekur við þegar kemur að gjalddögum á lánum sem þeir geta ekki borgað. Fyr- irtækin eru heldur ekki söluvæn- leg með ósjálfbæran skuldaklafa. Án uppskiptingar á lán- astaflanum og frestunar hluta þeirra hefðu fyrirtækin vissulega ekki getað staðið í skilum við bankana. En gera þarf skýran greinarmun á biðlánunum og lán- um sem verið er að greiða af. Hagfræðingur Samtaka fjármála- fyrirtækja segir að al- mennt séu lítil vanskil rekstrarlána fyr- irtækja sem hafa gengið í gegnum fjár- hagslega end- urskipulagningu. Slíkt sé vísbending um að getan til að greiða biðlánin sé almennt góð. Engin innistæða er fyrir þessari álykt- un. Höfundur þessarar greinar hefur starfað með fjölmörgum fyrirtækjum að endurskipulagningu fjármála eftir hrun. Alls staðar er sama sagan, bankarnir gera ýtrustu kröfur um afborganir lána. Þeir mergsjúga fyrirtækin, sem reyna af bestu getu að standa undir greiðslum. En þau geta ekki meir. Bankarnir stöðva hagvöxt Bankarnir hafa eignfært kröfur á litlu og meðalstóru fyrirtækin sem þeir vita fyrirfram að þeir geta aldrei innheimt að fullu. Samt ætla þeir að halda þessu ferli til streitu. Staðan er ekki að- eins slæm fyrir viðkomandi fyr- irtæki, heldur ekkert síður fyrir þjóðarbúið í heild sinni. Alkunna er að fjölgun starfa er mest hjá litlum og meðalstórum fyrir- tækjum. Þar er gróskan, hreyf- anleikinn og sveigjanleikinn. Öll stórfyrirtæki byrjuðu sem lítil fyrirtæki. Ef fjármálastofnanir ætla að halda fjórðungi íslenskra fyr- irtækja í spennitreyju ósjálfbærra skulda, þá mun seint bóla á þeim hagvexti sem allir telja nauðsyn- legan fyrir viðreisn eftir hrunið. Skuldatíma- sprengja bankanna Eftir Sævar Þór Jónsson Sævar Þór Jónsson » Á þriðja þúsund fyr- irtækja glímir við tifandi tímasprengju í boði bankanna. Höfundur er lögmaður. F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M ! KRINGLUNNISími: 5513200 ERUM AÐ TAKA UPP NÝJAR VÖRUR FYRIR HERRA!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.