Morgunblaðið - 09.02.2013, Síða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2013
✝ Valsteinn ÞórirBjörnsson
fæddist á Mjóeyri
við Eskifjörð 30.
júní 1941. Hann lést
1. febrúar 2013.
Foreldrar Þóris
voru Kristín Elsa-
bet Ásmundsdóttir
húsfreyja og Björn
Ingimar Tómas
Jónasson sjómaður.
Þórir var næst-
yngstur í hópi sjö systkina. Elst-
ur var Ásmundur, f. 1924, d.
2007. Vigdís Júlíana, f. 1926, d.
2012. Jónas Guðgeir, f. 1929, d.
2012. Hólmgeir, f. 1934, d. 2006.
Birna Ósk, f. 1938 og Olga Aðal-
björg, f. 1946.
Þórir kvæntist 7. nóvember
1964 eftirlifandi eiginkonu
sinni, Kristbjörgu Böðv-
arsdóttur, f. 18.7. 1942. For-
eldrar Kristbjargar voru Böðv-
ar Rósinkrans Jónasson, f. 1910,
d. 1993 og Helga Finn-
bogadóttir, f. 1916, d. 1991.
Börn þeirra eru:
1) Elsa, f. 12.11.
1963, gift Jóni Birni
Hlöðverssyni, f.
12.3. 1962. Dætur:
Kristín og Vala. 2)
Dröfn, f. 21.8. 1965,
gift Bjarka Unnars-
syni, f. 1.11. 1966.
Dætur: Kristbjörg
og Ásta Sól. 3)
Böðvar, f. 9.11.
1968, maki Petrína
Freyja Sigurðardóttir, f. 27.1.
1963. Börn hennar eru Sigurður
og Kristín. 4) Þórey Kristín, f.
14.12. 1980, gift Geir Ágústs-
syni, f. 4.12. 1978. Synir: Rökkvi
Þór og Reginn Þór.
Þórir útskrifaðist með skip-
stjóraréttindi árið 1964. Hann
starfaði sem útgerðarmaður,
stýrimaður og skipstjóri. Lengst
af var hann skipstjóri á sínum
eigin bátum.
Útförin fer fram í dag, 9.
febrúar 2013, frá Eskifjarð-
arkirkju og hefst athöfnin kl. 14.
Elsku besti pabbi minn, mikið
finnst mér skrýtið að sitja hér og
kveðja þig. Þú kvaddir mig
snöggt eins og þér einum er lag-
ið. Ég er ekki alveg tilbúin að
segja bless við þig en verð víst að
leyfa þér að ráða ferðinni í þetta
sinn. Ég gæti skrifað heila bók
um hvað þú varst góður maður
og dásamlegur pabbi, alltaf til
staðar þegar ég þurfti á þér að
halda, ég ætla að eftirláta öðrum
það og hafa þetta stutt. Ég verð
samt að koma því að hversu
ákveðinn og fylginn þú varst þér.
Nýjasta dæmið er þegar þú sagð-
ir mér að Böddi myndi flytja
meistaravörnina sína í líffræði og
þið mamma væruð að hugsa um
að keyra suður, þá þurfti ég að-
eins að skipta mér af og taldi þig
af því að keyra. En þú hafðir þitt
fram með einum eða öðrum
hætti, aðra leiðina skyldir þú
allavega fara akandi. Ég lít svo á
að verkefnið sem við vorum í
saman sé komið það vel á veg að
þér hafi verið óhætt að eftirláta
mér að klára það. Að sjálfsögðu
klára ég það með stæl eins og
okkar er von og vísa. Pabbi, ég
kveð þig með söknuði í hjarta og
þakklæti fyrir þann tíma sem við
áttum saman og vil ljúka þessu
með æðruleysisbæninni:
Guð, gefðu mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því
sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
Að lifa einn dag í einu,
njóta hvers andartaks fyrir sig,
viðurkenna mótlæti sem friðarveg,
með því að taka syndugum heimi
eins og hann er,
eins og Jesús gerði
en ekki eins og ég vil hafa hann
og treysta því að þú munir færa allt
á réttan veg
ef ég gef mig undir vilja þinn
svo að ég megi vera hæfilega
hamingjusamur í þessu lífi
og yfirmáta hamingjusamur með þér
þegar að eilífðinni kemur.
Amen.
(Reinhold Niebuhr.)
Ég elska þig, elsku pabbi, þín
Elsa.
Mig langar að minnast pabba
míns í nokkrum orðum. Hann
lést þann 1. febrúar sl. aðeins 71
árs. Pabbi var mikill Eskfirðing-
ur og mjög svo heimakær, leið
hvergi betur en heima hjá sér.
Hann eirði sér aldrei lengi hér
fyrir sunnan, ég held að ég hafi
verið 15 ára þegar við fórum
hringveginn á tveimur dögum og
er þá meðtalinn einn dagur í
stoppi í Reykjavík.
Pabbi var sjómaður alla sína
starfsævi. Hann fór fyrst á sjó
fjórtán ára gamall og þar með
voru örlög hans ráðin. Ég sá
hann varla að ráði fyrr en ég var
orðin tveggja ára gömul því hann
var alltaf í Norðursjónum og
voru útilegurnar langar. Sjó-
mannslífið var ekki alltaf dans á
rósum, það var gaman þegar vel
gaf en ég passaði mig á að láta
lítið fyrir mér fara ef það hafði
verið bræla og lítið að hafa, að ég
tala nú ekki um þegar veðurfrétt-
irnar voru lesnar í útvarpinu á
matmálstímum, þá hélt maður
niðri í sér andanum, enda ekki
lítill þáttur sem það átti í allri
sjómennsku.
Pabbi var mjög léttur á sér,
kvikur í hreyfingum og snar í
snúningum. Hann hefði örugg-
lega verið greindur ofvirkur ef
einhver hefði haft áhuga á því.
Hann elskaði að snúast í kringum
alla og fór ég og mín fjölskylda
ekki varhluta af því þegar við
komum austur. Stelpurnar mínar
eiga líka skemmtilegar minning-
ar um afa sinn sem gaf þeim tás-
unudd milli þess sem hann at-
aðist í þeim því hann gat líka
verið stríðinn. Hann var barn-
góður með eindæmum og naut
þess að vera innan um æskuna.
Ég sigldi einu sinni með pabba
til Bretlands og þá kynntist ég
karlinum í brúnni sem var annar
maður en sá sem var heima.
Þessi var fjarlægari en um leið
var hann rólegri, enda kannnski
ekki mikið hægt að þeytast um í
bátnum.
Pabbi var litríkur og skemmti-
legur maður en hann var líka
fastur fyrir með margt eða hrein-
lega þverari en allt sem þvert er
þegar svo bar við! En fyrst og
fremst var hann góður pabbi og
mikill fjölskyldumaður sem vildi
allt fyrir alla gera. Hann og
mamma voru miklir félagar og
hann gat ekki verið lengi án
hennar í einu. Mamma hefur
misst mikið og við öll en minning
um góðan dreng, pabba, afa og
tengdaföður lifir.
Gráti því hér enginn
göfugan föður,
harmi því hér enginn
höfðingja liðinn.
Fagur var hans lífsdagur,
en fegri er upp runninn
dýrðardagur hans
hjá drottni lifanda.
(Jónas Hallgrímsson)
Dröfn.
Elsku pabbi minn, mér finnst
svo sárt að þú sért farinn frá okk-
ur. Ég hélt að við fengjum meiri
tíma saman.
Ég veit allar staðreyndir, þú
fórst í friði, með alla vitsmuni í
lagi og hefðir örugglega ekki ósk-
að þér að fara öðruvísi. Ætti
sjálfsagt að einblína á það en satt
best að segja veitir það mér litla
huggun eins og er. Tilfinningar
eru nefnilega ekki alltaf rökrétt-
ar og alls ekki í þessu tilviki. Ég
vildi eiga meiri tíma með þér.
Var búin að hlakka óendanlega
mikið til þess að þið mamma
kæmuð hingað aftur í sumar til
að vera hjá mér og fjölskyldu
minni.
Ég er ævinlega þakklát fyrir
þann tíma sem við áttum saman
síðasta sumar. Gat ekki hugsað
mér neitt betra en að þú skyldir
leiða mig upp að altarinu og vera
með mér á brúðkaupsdeginum
mínum. Það var mér ekki síður
mikilvægt en blessun Guðs yfir
hjónabandinu. Það voru þessir
litlu hlutir sem gerðu þennan dag
svo minnisstæðan fyrir mér og
held ég mikið upp á myndina af
okkur saman í kirkjunni. Að auki
er ég virkilega fegin að ég ýtti á
þig að koma að heimsækja mig til
Danmerkur síðasta sumar. Það
var ofsalega góður tími og við
nutum öll félagsskapar hvert
annars og tímans sem við áttum
saman. Við gátum hlegið svo
mikið saman og það yljaði mér
um hjartaræturnar að heyra þig
segja hvað þér liði vel hjá okkur.
Fólk er oftast lofsungið þegar
það fellur frá en ég hef lofsungið
þennan tíma sem við áttum sam-
an síðasta sumar, hann geymi ég
ávallt í hjarta mínu. Fannst virki-
lega erfitt og sárt að kveðja þig
þar sem ég hafði ekki nóga góðu
tilfinningu fyrir framhaldinu. Ég
veit að þú hafðir hana ekki held-
ur þar sem okkur hafði bæði
dreymt illa aðfaranótt dagsins
sem þú varst að fara heim til Ís-
lands aftur. Það var ekki að
ástæðulausu sem ég kvaddi þig
svona vel og bað Geir að gera hið
sama.
Þegar ég lít aðeins lengra aft-
ur þá hef ég alltaf getað leitað til
þín og þú hefur stutt mig í öllu
sem ég hef viljað taka mér fyrir
hendur. Þið mamma hafið verið
stoð mín og stytta á erfiðum tím-
um og ég veit að ég væri ekki á
jafngóðum stað í lífinu ef það
væri ekki fyrir ykkur.
Ég er stolt af því að vera dóttir
þín og elska þig svo mikið pabbi
minn. Sjáumst vonandi fljótt í
draumum mínum.
Þín
Þórey Kristín.
Valsteinn Þórir
Björnsson
Fleiri minningargreinar
um Valstein Þóri Björns-
son bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
DÍSA SIGFÚSDÓTTIR,
Austurbyggð 17,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn
1. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 11. febrúar
kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Öldrunarheimili Akureyrarbæjar.
Hreinn Grétarsson, Margrét G. Magnúsdóttir,
Heiða Grétarsdóttir, Jón Sveinbjörnsson,
Líney Grétarsdóttir,
Jóhanna Grétarsdóttir,
Rósant Grétarsson,
Sigmar Grétarsson, Edda J. Baldursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn,
Haraldur Sigfússon.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GYÐA ÓLAFSDÓTTIR,
Lindargötu 57,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum, Fossvogi, sunnu-
daginn 3. febrúar.
Útförin fer fram frá Neskirkju mánudaginn
11. febrúar kl. 13.00.
Stefán Gunnar Stefánsson, Hafdís Hannesdóttir,
Ella Stefánsdóttir,
Gunnar Haukur Stefánsson, Arnþrúður Jónsdóttir,
Berta Ósk Stefánsdóttir, Markús Þ. Þórhallsson,
Stefán Örn Stefánsson, Lína Björg Tryggvadóttir,
Þórunn Snjólaug og Gyða Gunnarsdætur,
Rebekka Rut Þorbjörnsdóttir,
Þórunn Hafdís Stefánsdóttir.
✝
Okkar elskulegi
MAGNÚS H. GÍSLASON,
Frostastöðum,
andaðist sunnudaginn 3. febrúar.
Útför hans fer fram frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 16. febrúar kl. 13.00.
Jarðsett verður að Flugumýri.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja
minnast hins látna eru beðnir að láta Heilbrigðisstofnunina á
Sauðárkróki njóta þess.
Jóhanna Þórarinsdóttir,
Gísli Magnússon, Ólöf Arngrímsdóttir,
Þórarinn Magnússon, Sara Regína Valdimarsdóttir,
Ólafur Magnússon, Sigurlína Alexandersdóttir,
Guðrún Kristín Magnúsdóttir, Gísli Salómonsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær vinur minn og sálufélagi, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HÖRÐUR VICTORSSON,
andaðist laugardaginn 2. febrúar á heimili
sínu.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hans ósk.
Ragnheiður Anna Friðriksdóttir,
Róbert Lagermann Harðarson,
Jóhann Eysteinsson,
Ragnheiður Elísabet Harðardóttir,
tengdabörn og barnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir og systir,
HULDA MARÍA HRAFNSDÓTTIR,
andaðist föstudaginn 1. febrúar á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Ljósið, styrktarstöð krabbameinsveikra.
Björn H. Herbertsson,
Viktor Hrafn Guðmundsson,
Zophanías Björnsson,
Fjölnir Þór Björnsson,
Ester Hulda Tyrfingsdóttir,
Agnes Huld Hrafnsdóttir,
Berglind Hrönn Hrafnsdóttir,
tengdafólk, fjölskyldur og vinir.
✝
Okkar elskulegi
ÓTTAR EINARSSON,
Klausturhvammi 13,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
7. febrúar.
Steinunn Inga Óttarsdóttir, Brynjar Ágústsson,
Guðrún Arnbjörg Óttarsdóttir, Haraldur Eiríksson,
Þuríður Óttarsdóttir, Hannes Steinar Guðmundsson
og barnabörn,
Jóhanna Þuríður Þorsteinsdóttir.
✝
JÓNAS HVANNBERG
læknir
lést fimmtudaginn 31. janúar.
Útför fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 11. febrúar kl. 13.00.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim
sem vilja minnast hins látna er bent á
Minningarsjóð Sigurlaugar Margrétar Pétursdóttur,
kt. 530511-0140, bankanúmer: 512-14-401370.
Annika Wiel Hvannberg,
Jónas Hvannberg, Þorbjörg Guðmundsdóttir,
Bjarki Hvannberg, Guðrún Eva Níelsdóttir.
✝
Ástkær faðir okkar og tengdafaðir,
ÓLAFUR GUÐJÓNSSON,
Skúlagötu 40b,
Reykjavík,
sem lést á Droplaugarstöðum 31. janúar
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 12. febrúar klukkan 15.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Barnaspítalasjóð
Hringsins, símar 543 3022 og 543 3025.
Gísli Ólafsson, Elísabet Solveig Pétursdóttir,
Viðar Ólafsson, Birna Björnsdóttir,
Þórunn Ólafsdóttir,
Sveinn Ingi Ólafsson, Gyða Þórðardóttir
og fjölskyldur.
✝
Þökkum auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu
við andlát og jarðarför ástkærrar móður,
ömmu og langömmu,
ÓLAFAR ÞÓRÖNNU JÓHANNSDÓTTUR
ljósmóður,
Ljósheimum 6,
Reykjavík.
Þórhildur Hinriksdóttir, Þórður Sigurjónsson,
Sigurjón Þórðarson, Jóhanna Jakobsdóttir,
Ólöf Dís Þórðardóttir, Birgir Örn Björnsson,
Harpa Rún Þórðardóttir, Romain Buchholtz,
Þórður Ingi, Ari, Björn Hinrik, Daníel Snær.