Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2013
Ekki er sjálfgefið að maður komi oftar en einu sinni á Austurvöllum dagana, að minnsta kosti ekki ef maður er útlendingur, og þvíbetra að bregða myndavél og/eða símum á loft við það tækifæri.Ekki þurfti að segja þessum ágætum gestum okkar Íslendinga það
tvisvar en einbeitingin skein úr hverju andliti þegar Kjartan Þorbjörnsson,
ljósmyndari Morgunblaðsins, gekk fram á hópinn í vikunni. Ofmælt væri
að segja að gleðin hafi verið við völd en ugglaust hefur gestunum verið
kunnugt um að Austurvöllur hafi verið vettvangur búsáhaldabyltingarinnar
um árið og þá var engum manni hlátur í hug.
Konan á bleiku kápunni er bersýnilega að sækja sér upplýsingar í sím-
anum, mögulega hefur hún verið að gúgla Jón forseta.
Mikið hefur rignt í höfuðborginni síðustu daga en ferðamennirnir létu
það ekki slá sig út af laginu enda búnir til að standa undir fáeinum drop-
um, hið minnsta. Fjölbreytnin í litavali á regnstökkum þeirra er til eft-
irbreytni, enginn þeirra er eins.
Óskandi er að enginn í hópnum hafi óvænt farið úr yfirhöfninni og þar
með „týnst“, eins og aumingja konan sem var hér á ferð á liðnu ári og
tók tímunum saman þátt í „leitinni“ að sjálfri sér.
AUSTURVÖLLUR Í RIGNINGUNNI
Festur á filmu
AUSTURVÖLLUR ER EINN AF HELSTU STÖÐUM REYKJAVÍK-
UR OG LEIÐSÖGUMÖNNUM LJÚFT OG SKYLT AÐ BRUNA
ÞANGAÐ MEÐ FERÐAMENN Í BLÍÐVIÐRI SEM BLEYTU.
Óttar Snædal
borgar félaga sínum fyrir kaffi