Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2013
Ferðalög og flakk
Íslenski arabinn, Konráð Ragnar Konráðsson, horfir á sólsetur í Sahara-eyðimörkinni.
Í
Marokkó eru fjöll, eyðimerkur og
strendur og við töldum að það hlyti að
vera bæði fjölbreytt og skemmtilegt að
ferðast þangað sem það líka var,“ segir
Sara Bjarney Jónsdóttir læknir sem nýlega
fór í ævintýralegt ferðalag ásamt kærasta
sínum, Konráði Ragnari Konráðssyni. Þegar
fríið var skipulagt komust þau að þeirri
niðurstöðu að þau vildu kynnast framandi
menningu en ekki ferðast of langt til þess.
„Okkur fannst Marokkó alveg vera málið.
Við byrjuðum á því að fara til Marrakesh
sem er mikil stórborg og þar er mikið um
að vera. Þar er mikið af mörkuðum (med-
ina) í þröngum götum og maður horfir á
fólk búa til vöruna og selja hana, menn eru
að sauma kjóla úr silki á miðri götu og
kryddin eru mulin fyrir framan mann.“
Sara segir að þó að upplifunin hafi verið
mikil hafi áreiti heimamanna verið heldur
truflandi og iðulega verið barist um að ná
athygli þeirra. „Við vorum svo túristaleg.
Það tóku allir eftir okkur og reyndu að fá
okkur að sínum sölustað. Við vorum svo
hvít með myndavélina á lofti. Það var kall-
að á okkur og fólk kom til okkar og leiddi
okkur í ákveðnar áttir.“
Sara og Konráð kíktu líka á Jamaa el
Fna sem er gífurlega stórt markaðstorg og
margir segja að það sé ástæðan fyrir
heimsfrægð borgarinnar. „Þar var mikið
um apa og slöngur og heimamenn voru
svolítið duglegir við að henda á okkur dýr-
unum án þess að spyrja okkur og rukkuðu
svo fyrir það eftir á. Maður vissi aldrei
hvað kom næst. Við reyndum bara að
halda okkar striki og vera ekki mikið að
horfa til fólks og gefa af okkur. Það var
samt frekar leiðinlegt af því að við vorum
komin í þetta land og okkur þótti við verða
vera kurteis. En einhvern vegin gat maður
ekki gefið mikið af sér og brosað mikið til
fólks því að þá var það svo fljótt að grípa
mann.“
Sara og Konráð voru aftur á móti laus
við áreitið þegar þau héldu í þriggja daga
ferð í Sahara-eyðimörkina. „Við vorum einn
dag á kameldýri og fórum upp á
sandhólana og horfðum bæði á sólina setj-
ast og rísa, það var hápunktur ferðarinnar.
Það var einn ungur strákur sem leiddi
kameldýrin áfram og með okkur hring í
eyðimörkinni. Kameldýrin eru svo þolinmóð
og góð dýr að það var ekkert erfitt að
ferðast á þeim, það var bara upplifun. Eitt-
hvað sem maður verður að prófa.“ Að eyði-
merkurupplifuninni lokinni náðu þau að
hvílast í nokkra daga í litlum sjávarbæ sem
heitir Essaouira áður en þau héldu aftur til
Íslands. „Þessi ferð vakti hjá okkur áhuga
að fara að kíkja á fleiri lönd. Við vitum
ekki hvort við förum endilega til Marokkó
aftur. Það er svo margt sem okkur langar
til að sjá í heiminum en ef maður vill allt
öðruvísi menningarheim er tilvalið að fara
til Marokkó. Það er mjög mikið ævintýri að
fara þangað.“
ÆVINTÝRAFERÐ TIL MAROKKÓ
Sólsetur í Sahara
ÞAU SARA BJARNEY JÓNSDÓTTIR OG KONRÁÐ RAGNAR KONRÁÐSSON
VILDU KYNNAST FRAMANDI SLÓÐUM EN EKKI FERÐAST OF LANGT TIL
ÞESS. NIÐURSTAÐAN VARÐ ÞVÍ FERÐALAG TIL MAROKKÓ EN ÞAU SEGJA
ÞAÐ HAFA VERIÐ MIKIÐ ÆVINTÝRI AÐ KOMA ÞANGAÐ.
Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is
* „Kameldýrin eru svoþolinmóð og góð dýrað það var ekkert erfitt að
ferðast á þeim, það var
bara upplifun.“
Útsýnið ofan af kamelbaki í
Sahara-eyðimörkinni.
Frábært
verð
í sólina í
sumar!
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
* Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallaskattar, gisting og íslensk fararstjórn.