Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Blaðsíða 27
3.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
smáratorgi 522 7860 • korputorgi 522 7870 • glerártorgi 522 7880
spegill
lampar
Og ljós
8.990
Skartskápar
ver-d Frá 29.900
Fyrir Ferminguna
6.990 590Kertastjakar
5.690
H
jónin Snæbjörn Stef-
ánsson og Róshildur
Jónsdóttir reka saman
hönnunarfyrirtækið
Hugdettu. Vinnustofan þeirra heitir
Grettisborg og þar hafa þau aðsetur
ásamt Aðalsteini, bróður Stefáns.
Grettisborg er líka heitið á íbúða-
hóteli sem hjónin reka sem er við
hliðina á vinnustofunni. Ennfremur
búa þau í næsta húsi svo það er
óhætt að segja að líf þeirra fari
fram að stórum hluta við Grettisgöt-
una.
Vinnustofan hefur verið til frá út-
skrift Snæbjörns og Rósu úr vöru-
hönnunarnámi frá LHÍ árið 2006 en
í fyrstu sameinuðust fleiri úr ár-
ganginum með þeim um reksturinn.
Snæbjörn segir að þau hjónin séu
ólík og það sé gott að vinna saman
upp á að fá viðbrögð við verkum
sínum á vinnslustigi.
En hvaðan sprettur sköp-
unarþörfin og hvernig leitar hann
að nýjum verkefnum? „Þetta sprett-
ur upp úr forvitni og því að hugsa
um hvernig hlutir virka, reyna að
betrumbæta þá, að gera hluti með
sínu fingrafari. Fólk vill upplifa eitt-
hvað nýtt,“ segir hann og bætir við
að nýir stólar hafi jafn mikinn rétt á
sér og ný lög.
Nýjasta verkefni hans er hilla úr
íslenskum efniviði. „Ég er að end-
urgera þessar gömlu stásshillur.
Fólk hafði hillu fyrir þá hluti sem
því fannst virkilega verðmætir,“ seg-
ir hann en efniviðurinn er íslenskt
lerki og steyptir álhlutir. „Þetta eru
tvö ólík íslensk efni en það er vatnið
sem drífur bæði áfram.“
Snæbjörn prjónaði þennan þjóðlega lampaskerm. Stílhreinir og fallegir snagar frá Hugdettu.
Þau smíðuðu eldhúsinnréttinguna og skrifborðin í vinnustofunni.
Rósa er þekkt fyrir fiskibeinamódel
sín og verður með sýningu í Spark
við Klapparstíg á Hönnunarmars.
Rósa gerði þetta borðstofuborð
og stólana úr íslensku birki.
* „Þetta spretturupp úr forvitniog því að hugsa um
hvernig hlutir virka,
reyna að betrum-
bæta þá, að gera
hluti með sínu
fingrafari.“
Aðalsteinn er þekktur fyrir ljósakrónu sína sem heitir Ornametrica en hann
vinnur að nýju ljósi og hefur fengið innblástur frá hreindýrahornum.
INNLIT Á VINNUSTOFUNA GRETTISBORG
Ný upplifun
VÖRUHÖNNUÐIRNIR SNÆBJÖRN STEFÁNSSON OG RÓSHILDUR JÓNSDÓTTIR REKA SAM-
AN HÖNNUNARFYRIRTÆKIÐ HUGDETTU. ÞAU ERU LÍKA HJÓN OG DEILA VINNUSTOFU.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir: Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is