Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Page 38
*Föt og fylgihlutir Fatahönnuðurinn Ingvar Helgason er hluti af einu heitasta hönnunarteymi tískuheimsins »40
Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl?
Ég myndi segja að fatastíllinn minn væri frekar klassískur og stílhreinn en með áhættuívafi.
Hver eru bestu fatakaupin þín?
Ein bestu kaup sem ég hef gert er Andersen & Lauth prjónavesti sem ég nota mikið yfir yf-
irhafnir, t.d. svarta leðurjakkann minn. Þetta er þriðji veturinn sem nota vestið alveg ótæpi-
lega. Svo er ég mikil töskufrík og á það til að kaupa mér of mikið af þeim. Mín bestu tösku-
kaup myndi ég segja að væri Louis Vuitton taskan mín. Ég nota hana mjög mikið. Svo nældi
ég mér í Michael Kors tösku á góðu verði um daginn sem ég hef á tilfinningunni að muni
koma að góðum notum.
En þau verstu?
Þar er af mörgu að taka, ég geri yfirleitt mín verstu kaup þegar ég er á hlaupum á milli
búða erlendis og ætla einmitt að gera svo mikil kjarakaup á spottprís! Þá eru skyndiákvarð-
anir teknar og flest sem ég hef keypt á svona hlaupum hangir enn með verðmiðann inni í
skáp. Í næstu ferð erlendis hef ég ákveðið að stressa ekki sjálfa mig upp í „hlaupkaup“ og
kaupa þá t.d. frekar eina dýrari flík. Allra verstu kaupin held ég hins
vegar að sé jakki með strútaskinnsmynstri sem ég keypti í Noi þegar
ég var ca. 18 ára. Hann var húðlitaður og úr plasti. Alveg hrikalegur í
alla staði!
Hverju er mest af í fataskápnum?
Ég held ég verði að segja að það séu töskur. Ég er farin að
hengja töskurnar á herðatré inn í fataskáp vegna plássleysis.
Ég á líka orðið ansi mikið af alls kyns klútum og treflum.
Hvar kaupir þú helst föt?
Ég kaupi langmest í Zöru. Hönnuðirnir hjá Zöru eru alveg
með puttann á púlsinum þessi misserin. Ég fatta stundum
að hver einasta flík sem ég er í þá stundina er frá Zöru.
Annars er ég líka veik fyrir GK, Evu og Kronkron hérna
heima. Erlendis eiga H&M og Monki eflaust vinninginn
þegar kemur að fatakaupum.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð?
Alexander Wang er uppáhaldshönnuðurinn þessa
stundina. Svo eru Celine og Acne að gera frá-
bæra hluti. Bara ef peningar yxu á
trjám!
Hvaða þekkta andlit finnst þér með
flottan stíl?
Kate Bosworth, Olivia Palermo og Nicole Ric-
hie eru með óskeikulan fatastíl. Þær klikka
aldrei. Svo eru margar flott klæddar hérna á Ís-
landi, mér finnst t.d. Anna Lilja Johansen, Frið-
rika Hjördís og Ása Ninna í GK með mjög
flottan stíl.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða
mottó, þegar kemur að fatakaupum?
Ég er gjörn á að fá leið á fötunum mínum
og hef tekið þá stefnu að kaupa mér frek-
ar dýrari fylgihluti sem ég get notað
endalaust og kaupi þá frekar ódýrari
flíkur sem ég get þá leyft mér að end-
urnýja oftar. Og já, sleppa öllum
„hlaupkaupum“ erlendis.
Hvert er þitt eftirlætis
tískutímabil?
Mér finnst tímabilið um og eftir
1960 hafa komið best út í heildina.
Stíllinn var dömulegur og
skemmtilegur. Audrey Hepburn
var brautryðjandi í mínum huga.
Annars finnst mér stíllinn í dag
flottur, það er einhvern veginn
allt leyfilegt.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
KAUPIR DÝRA FYLGIHLUTI EN ÓDÝRARI FÖT
Verstu kaupin
gerð á hlaupum
TINNA GILBERTSDÓTTIR, SÖLUSTJÓRI HJÁ ICELAND SEAFOOD,
ER VEIK FYRIR TÖSKUM EN SEGIST GERA SLÆM KAUP EF HÚN ER
Á HLAUPUM Í ÚTLÖNDUM. SÉR HAFI REYNST BETUR AÐ KAUPA
EINA VANDAÐA FLÍK EN MARGAR ÓDÝRARI.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Louis Vuitton taskan er fyrir löngu
orðin klassísk. Tinna segir tösku frá
merkinu vera bestu kaupin þótt hún
hafi sannarlega kostað sitt.
Fyrirsætan Olivia
Palermo kann að
klæða sig.
Leikkonan Kate
Bosworth er með
skemmtilegan stíl.
AFP
Alexander
Wang er eitt af
stóru nöfnunum
í tískuheiminum.
Tinna væri alveg
til í flíkur eftir
hann ef peningar
yxu á trjánum.