Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2013, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 3. MARS 2013
vodafone.is/godsamskipti
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Vodafone hefur trú á
góðum samskiptum
Þín ánægja er okkar markmið
Það bætir lífið þegar við leggjum okkur fram
um að eiga góð samskipti. Vodafone vill tala
máli góðra samskipta í samfélaginu því þau eru
grundvöllurinn að allri þjónustu sem við veitum.
Magni Ásgeirsson mætti í söngstund Norðlingaskóla á fimmtu-
dag og tók þar lagið með krökkunum sem sungu með.
Þráinn árni Baldvinsson, tónlistarkennari skólans og gít-
arleikari Skálmaldar, fékk Magna til að breyta aðeins til og er
ekki annað hægt að segja en að börnin hafi tekið Magna opnum
örmum. Tók hann meðal annars lagið um Emil, Stubbana og
Lífið er yndislegt við góðar undirtektir. Fékk Magni börnin til
að standa upp og hreyfa sig, hoppa og kannski það sem skiptir
helst máli í söngstund, syngja mikið. Börnin í Norðlingaskóla
syngja mikið og eru óhrædd við að taka undir. Þeim þótti greini-
lega ekki verra að fá Magna til að leiða sönginn að þessu sinni.
Þráinn Árni og Magni.
Tveir rokkarar.
SÖNGSTUND Í NORÐLINGASKÓLA
Morgunstund
með Magna
Magni Ásgeirsson var í miklu stuði og börnin líka
þegar hann tók lagið um Emil.
„Þær heita Ísey og Skriða. Ísey er
níu ára og er eldri. Ég skírði hana
sjálf. Fannst passa vel við hana og
nafnið finnst mér fallegt. Skriða er
nýorðin fjögurra ára og fæddist
undir Vatnajökli. Okkur fannst það
passa henni vel og við héldum nafn-
inu frá ræktandanum hennar,“ seg-
ir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir at-
hafnarkona en hún á tvo Siberian
Husky hunda sem alls staðar vekja
athygli – eins og eigandinn. Hún
segir að hundarnir séu yndislegir í
alla staði. „Það er aðeins meira en
að segja það að eiga tvo Husky. En
þeir eru svo yndislegir og þægilegir
inni á heimilinu. Það kemur flestum
á óvart að það fer ekkert fyrir
þeim.“
Husky-hundurinn er mjög ná-
lægt úlfinum í tegund og það eru
ekki margir þekktir sjúkdómar í
tegundinni. Hins vegar er stroku-
eðli í þeim og því þarf að passa vel
upp á dyr og annað sem hundarnir
gætu hlaupið út um. „Við erum
heppin að vera með afgirtan garð
og þar hafa þær gott pláss. Í gamla
daga voru þessir hundar notaðir til
að hlýja börnunum og það er því í
eðli þeirra að vera barngóðir.“
Sigrún segir að þau Reynir, mað-
urinn hennar, sjái um að hundarnir
fái mikla hreyfingu. Bæði nota þau
tvo jafnfljóta og einnig hjól. „Husky
eru vinnuhundar og finnst fátt
betra en að púla. Þeirra eðli er að
draga. Algjörlega yndisleg dýr.“
GÆLUDÝRIÐ MITT
Yndislegar
báðar tvær
Sigrún Lilja ásamt
þeim Íseyju og
Skriðu.
Ljósmynd/Kári Sverrisson
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Helgi Pétursson tónlistarmaður og
faðir Heiðu er brosmildur maður.
Heiða Kristín Helgadóttir stjórn-
arformaður Bjartrar framtíðar.
Anna Paquin leikkona er með frísk-
legt og heilbrigt bros.