Morgunblaðið - 12.04.2013, Blaðsíða 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2013
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
ÁTOPPNUM Í ÁR
KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
BURTWONDERSTONE KL.3:40-5:50-8-10:10
BURTWONDERSTONE VIP KL. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10
G.I. JOE:RETALIATION3D KL.3:20-5:40-8-10:20
G.I. JOE:RETALIATION2D KL.3:20
SIDEEFFECTS KL.3:20-5:40-8-10:20
ÓFEIGURGENGURAFTUR KL.5:50-8-10:10
JACKTHEGIANTSLAYER3D KL.8
DEADMANDOWN KL.10:20
OZ:GREATANDPOWERFUL KL.5:20
KRINGLUNNI
OBLIVION KL. 5:20 - 8 - 10:40
BURTWONDERSTONE KL. 5:50 - 8 - 10:10
SIDEEFFECTS KL. 5:40 -8 -10:20
ÓFEIGURGENGURAFTURKL.5:50-8-10:10
OBLIVION KL. 5:30 - 8 - 10:30
BURTWONDERSTONE KL. 5:50 - 8 - 10:20
G.I. JOE:RETALIATION3DKL. 8 -10:30
SIDEEFFECTS KL. 8 -10:20
ÓFEIGURGENGURAFTURKL.5:50
JACKTHEGIANTSLAYER2D KL.5:30
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
OBLIVION KL. 8 - 10:30
BURTWONDERSTONE KL.8-10:10
G.I.JOE:RETALIATION KL.5:40
THECROODS ÍSLTAL KL.5:50
AKUREYRI
BURTWONDERSTONE KL.5:50-8-10:10
JACKTHEGIANT-SLAYER KL. 5:50
SIDEEFFECTS KL. 10:10
ÓFEIGURGENGURAFTUR KL. 8
H.S. - MBL
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA!
EIN FLOTTASTA SPENNUMYND ÁRSINS
THE NEW YORK TIMES
LOS ANGELES TIME
WALL STREET JOURNAL
TIME
NÝJASTA MYND STEVEN SODERBERGH
T.V. - BÍÓVEFURINN
MÖGNUÐ GRÍNMYND
STÓRMYNDIN SEM TEKIN
VAR UPP Á ÍSLANDI
T.K., KVIKMYNDIR.IS
VJV, SVARTHÖFÐI
STEVE CARELL JIM CARREY
Nýtt leiksvið, Brúðuloftið, verður
tekið í notkun á morgun í Þjóðleik-
húsinu, leiksvið sem brúðuleikhúsið
Brúðuheimar mun hafa til afnota
næstu misseri. Brúðuloftið hét áður
Leikhúsloftið og er fyrir ofan sval-
irnar í aðalsal leikhússins. Fyrsta
sýningin á Brúðuloftinu verður
verk Bernds Ogrodniks, brúðuleik-
húsmanns og listræns stjórnanda
Brúðuheima, um tröllskessuna Gili-
trutt sem hlaut Grímuverðlaunin
árið 2011 sem barnasýning ársins.
Gilitrutt vígir Brúðuloftið á morg-
un kl. 13.30 og er stefnt að því að
sýna verkið fram í lok maí. „Við
tökum alfarið yfir rýmið, þ.e.
Brúðuheimar, og verðum með eina
nýja uppfærslu á ári. Svo róterum
við eldri sýningum, verðum vænt-
anlega með eitthvað af gestasýn-
ingum og svo stendur til að halda
áfram utan um brúðuleiklistarhá-
tíðina sem við byrjuðum með í
Borgarnesi,“ segir Hildur M. Jóns-
dóttir, framkvæmdastjóri Brúðu-
heima og eiginkona Bernds, um
Brúðuloftið. Þau hjónin urðu að
loka Brúðuheimum í Borgarnesi í
fyrra, ráku þar brúðuleikhús, safn,
kaffihús og gallerí.
Aladdín næstur
Næsta uppfærsla Brúðuheima
verður byggð á ævintýrinu um
Aladdín og töfralampann og áætlað
er að frumsýna verkið í október.
Bernd sér um brúðugerð og
sviðsmynd verksins, skrifar söguna
en leikgerðina vinnur hann í sam-
starfi við Ágústu Skúladóttur leik-
stjóra. „Þetta verður með svipuðu
sniði og hann byggir sínar sýn-
ingar. Hann er þátttakandi um leið
og hann er brúðustjórnandi. Það er
stundum erfitt að gera skil á milli
en það er svo magnað með hann að
þegar hann er að stjórna brúðunum
þá gjörsamlega gleymir maður að
hann sé á sviðinu,“ segir Hildur.
„Þetta verður í fyrsta skipti, að við
vitum til, sem Aladdín er færður
upp á svið á Íslandi.“
helgisnaer@mbl.is
Tröllskessan Gilitrutt í sýningu Brúðuheima um tröllskessuna ógurlegu.
Gilitrutt vígir
Brúðuloftið
Brúðuheimar sýna í Þjóðleikhúsinu
Stórt málverk af bláleitufjalli blasir við áhorfand-anum á einkasýninguUnndórs Egils Jónssonar í
Ásmundarsal í Listasafni ASÍ en
hún ber yfirskriftina „Permanence
is but a word of degrees“. Í
skemmtilega unnu myndbands-
verki, sem varpað er á vegg, sést
fljúgandi „fugl“ sem samsettur er
úr mörgum fuglategundum. Á öðr-
um stað hangir falleg syrpa af inn-
römmuðum vatnslitamyndum sem
sýna misstóra fiska. Skúlptúr á
stöpli virðist vera íburðarmikil um-
gjörð eða taska af einhverju tagi.
Fram kemur á einblöðungi sem
liggur frammi á sýningunni að
listamanninum er sífelld verðandi
náttúrunnar hugleikin og verkin
gefa vissulega til kynna breyt-
ingar.
Umhverfisbreytingar af manna-
völdum og náttúruvernd brenna á
listamanninum. Í viðtali við Unn-
dór (í Morgunblaðinu 21. mars sl.)
kemur fram að með fjallinu, sem
málað er beint á veggi salarins, sé
hann að vísa til borgarísjaka, en
eins kunnugt er bráðnar ísinn í
heiminum hratt um þessar mundir.
Töskuskúlptúrinn sé hugsaður ut-
an um og til verndar kræklóttri
plöntu sem vex á hálendinu. Hann
má ef til vill túlka sem myndlík-
ingu fyrir tilhneigingu mannsins til
að skilgreina, „ramma inn“ og
setja á stall, og safna náttúrunni,
rétt eins og að væri hún afmarkað
fyrirbæri en ekki grundvöllur til-
verunnar. Skúlptúrinn felur einnig
í sér athugasemd við náttúruvernd
í tengslum við ferðamennsku,
vernd sem öðrum þræði tengist
hagnýtingu. Á hinn bóginn er rétt
að taka fram að einu vísbendingu
sýningargestsins um að „taskan“
hafi það hlutverk að geyma kræk-
lótta plöntu er að finna í viðtali við
listamanninn, semsagt í umsögn
sem ekki er hluti af sjálfri sýning-
unni (á sýningunni koma ekki fram
heiti verka). Í reynd mætti allt eins
skoða skúlptúrinn sjálfan sem túlk-
un einhvers konar náttúrufyrir-
bæris, enda er náttúran í senn inn-
tak okkar og umbúðir.
Breytingar á vistkerfum hafa
áhrif á manninn eins og aðrar líf-
verur. Á vefsvæði listamannsins
kemur fram að myndirnar af fisk-
unum fjalli um „síðasta laxinn“.
Nýleg dæmi um eyðileggingu á
vistkerfum Lagarfljóts og
Þingvallavatns og yfirvofandi
breytingar á Urriðafossi sýna svo
ekki verður um villst að laxinn og
aðrar vatnalífverur eiga undir
högg að sækja. Öðrum þræði virð-
ist Unndór segja að náttúran ráði
sér sjálf: hún aðlagist og haldi sínu
striki eins og samsetti fuglinn í
myndbandsverkinu, hvað sem at-
höfnum mannsins líður. En fari allt
á versta veg verður mannskepnan
sjálf á meðal þessara síðustu laxa.
Morgunblaðið/Golli
Breytingar Umhverfisbreytingar af mannavöldum og náttúruvernd brenna á Unndóri Agli Jónssyni.
Hvað er í töskunni?
Listasafn ASÍ, Freyjugötu.
Unndór Egill Jónsson – Permanence
is but a word of degrees
bbbmn
Til 14. apríl 2013. Opið þri.-su. kl. 13-17.
Aðgangur ókeypis.
ANNA JÓA
MYNDLIST