Morgunblaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2013 Náttúrubörn Bræðurnir Hákon og Hinrik skelltu sér í skógarferð með afa og ömmu og í skjóli öryggisins uppgötvuðu þeir leynda stíga í Öskjuhlíðinni. Ómar Frá því að niður- stöður kosninganna lágu fyrir hafa fjöl- miðlar flutt tugi frétta af þeim möguleikum sem fyrir hendi eru við myndun rík- isstjórnar, formenn flokkanna hafa verið teknir í viðtöl og fræðimenn dregnir fram til að greina stöðuna. Frásagnir fjölmiðla um mögulega samsetningu ríkisstjórnar líkjast helst samkvæmisleik, þar sem markmiðið er að finna út þá kosti sem fyrir hendi eru; tveggja flokka stjórn, þriggja og jafnvel ríkisstjórn fjögurra flokka. Samkvæmisleik- urinn er kryddaður með frásögnum af niðurlútum þingmönnum sem náðu ekki kjöri og kenna eigin for- manni um hrakfarirnar. Lítill ágreiningur Fjölmiðlar eru svo uppteknir í samkvæmisleiknum að þeir huga vart að því sem skiptir almenning mestu. Fjölmiðar gerðu margt verra en að beina kastljósinu að þeim vanda sem glímt er við í heilbrigðiskerf- inu, að skuldastöðu ríkissjóðs og lamandi vaxtagreiðslum, að stöðnun atvinnulífsins þar sem fjárfesting er í sögulegu lágmarki og að slæmri stöðu aldraðra og öryrkja. Þegar þetta er skrif- að eru mestar líkur á að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur taki höndum saman í ríkisstjórn. Sam- steypustjórn þessara flokka er í samræmi við úrslit kosninganna. Í ljósi þess að ekki er djúpstæður málefna- legur ágreiningur á milli flokkanna um helstu viðfangsefni á komandi kjörtímabili ætti ekki að taka langan tíma að mynda ríkisstjórn. Þess utan virðist ríkja traust og trúnaður á milli for- manna flokkanna, sem skiptir miklu þegar glímt er við erfið og flókin úrlausnarefni. Endurreisn heimila og fyrirtækja Stjórnarsáttmáli Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks þarf ekki að vera langur eða ítarlegur. Yfirskrift hans ætti að vera: End- urreisn heimila og fyrirtækja. Sátt- málinn á að vera einföld stefnu- yfirlýsing – verkefnalisti yfir þau brýnu mál sem bíða nýrrar ríkis- stjórnar á fyrstu mánuðunum:  Innleiddur skattaafsláttur vegna íbúalána frá og með 1. júlí 2013 og um leið verði heimilt að nýta mánaðarlega séreignasparnað til að greiða niður höfuðstól íbúðalána.  Gengið frá samningum við kröfuhafa föllnu bankanna. Hugsanlegur hagnaður ríkisins af samningunum nýttur annars vegar til að rétta enn frekar við fjárhagsstöðu heimilanna og hins vegar til að greiða nið- ur skuldir ríkissjóðs.  Tímasett áætlun um afnám gjaldeyrishafta í áföngum kynnt innan 60 daga.  Úttekt á stöðu ríkissjóðs af óháðum aðilum. Henni lokið eigi síðar en í september 2013 og niðurstaða hennar kynnt al- menningi.  Áætlun um uppskurð á eft- irlitskerfi hins opinbera, það einfaldað með endurskoðun regluverks og laga, kostnaður lækkaður.  Jafnræði í lífeyrismálum lands- manna tryggt á kjörtímabilinu. Lögð fram tímasett áætlun um leiðréttingu á kjörum aldraðra og öryrkja.  Gripið til neyðarráðstafana til að tryggja heilbrigðisþjónustu um land allt. Áætlunum um byggingu nýs Landspítala frestað ótímabundið. Heildar- endurskoðun gerð á skipulagi heilbrigðiskerfisins í samráði við heilbrigðisstéttir og sveit- arstjórnir. Á grundvelli endur- skoðunar verður gerð sérstök fjárfestingaráætlun er nái til landsins alls.  Rammaáætlun endurskoðuð og breytt til samræmis við til- lögur sérfræðinefndar um nýt- ingu vatnsafls og jarðjarma.  Auðlegðarskatturinn afnuminn.  Gerðir langtímanýtingarsamn- ingar um fiskveiðiauðlindir og sátt mynduð um stjórnkerfi fiskveiða.  Fjögurra ára áætlun um lækk- un tekjuskatts fyrirtækja og einstaklinga lögð fram sam- hliða fjárlagafrumvarpi 2014.  Tryggingagjald lækkað fyrir lok júní næstkomandi. Gjaldið ekki hærra en 5,34% í árslok 2014.  Áætlun um sölu ríkiseigna lögð fram með fjárlagafrumvarpi 2014 og jafnframt gefin út yf- irlýsing um að allar tekjur af sölu þeirra renni til að greiða skuldir ríkisins.  Fjármálaregla um útgjöld rík- isins innleidd fyrir lok ársins þannig að útgjöldin verði ekki hærri en sem nemur ákveðnu hlutfalli af landsframleiðslu.  Uppstokkun á lánamarkaði. Stimpilgjöld afnumin og sam- keppni milli lánastofnana þar með aukin. Skipuð slitastjórn fyrir Íbúðalánasjóð. Almenn íbúðalán verði ekki með rík- isábyrgð og meginreglan verði óverðtryggð íbúðalán þótt verðtryggð lán verði ekki bönnuð.  Stjórnkerfi peningamála breytt. Seðlabankinn og Fjár- málaeftirlitið sameinuð í eina nýja stofnun.  Aðildarviðræðum við Evrópu- sambandið hætt og þjóðar- atkvæðagreiðsla boðuð fyrir lok kjörtímabilsins. Leiðarljós Leiðarljós endurreisnar Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks er að tryggja fjárhagslegt sjálf- stæði heimila og þróttmikið at- vinnulíf. Um leið á að huga að stöðu komandi kynslóða og koma í veg fyrir að þær þurfi að axla þungan skuldabagga. Markmiðið er ekki aðeins að skapa sátt milli kynslóða heldur einnig samstöðu landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins, jafnræði milli almennra launamanna og rík- isstarfsmanna og skapa samvinnu aðila vinnumarkaðarins. Auðvitað eru verkefnin miklu fleiri. Mestu skiptir að stefnan sé skýr og öllum ljós. Þannig kemst á stöðugleiki sem er forsenda þess að hjólin fari aftur af stað. Í lok kjör- tímabilsins getur ríkisstjórnin feng- ið þá einkunn að hafa verið ríkis- stjórn endurreisnar. Eftir Óla Björn Kárason » Stjórnarsáttmálinn þarf ekki að vera langur eða ítarlegur en yfirskrift hans ætti að vera: Endurreisn heimila og fyrirtækja. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Endurreisn: Drög að stjórnarsáttmála

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.