Morgunblaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 35
dóttur, 1979-1982; bók Helgu Gunnarsdóttur, Fljúga hvítu fiðr- ildin, 1986; við kvæði Jóhannesar úr Kötlum, Saga af Suðurnesjum, 1987, auk þess sem hún hefur myndskreytt fjölda námsbóka Námsgagnastofn- unar. Af bókum þar sem Ragnheiður hefur gert bæði myndir og texta má nefna Ljósin lifna, 1985; Ekki á morgun, ekki hinn …, 1986; Sköp- unin (texti endursagður), 1987; Fyrstu skrefin, 1991; Klappa saman lófunum, 1992; Það er leikur að læra (texti saminn með Ragnheiði Her- mannsdóttur), lestrarkennsluefni, 1995; Hlini kóngsson (texti end- ursagður), 1996; Bráðum koma dýrð- leg jól (textar valdir), 1998; Líneik og Laufey (texti endursagður), 1999; Stafurinn minn og stafurinn þinn, 2000; Regnboginn, 2005; Í grænni lautu (safn söngvaleikja), 2003; Ef væri ég söngvari (söngvasafn) 2009; Ég þoli ekki bleikt, 2010. Skáldsögur Ragnheiðar fyrir börn og unglinga eru Leikur á borði, 2000; 40 vikur, 2001; Sverðberinn, 2004; Hjartsláttur, 2009; Gegnum gler- vegginn, 2011; Myndin í speglinum, 2012. Ragnheiður fékk verðlaun í sam- keppni Námsgagnastofnunar um létt lesefni fyrir handritin að bókunum Ljósin lifna, 1984, og Sköpunin, 1986, fékk viðurkenningu fyrir mynd- skreytingar í bókinni Ljósin lifna á Bratislava-biennal-myndskreyt- ingasýningunni 1986, viðurkenningu frá IBBY fyrir framlag til barna- menningar, Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur 1999 og 2001, Íslensku barnabókaverðlaunin 2000 og verðlaun Menntaráðs Reykjavíkur 2005. Ragnheiður hlaut Norrænu barnabókaverðlaunin 2005, Dimmalimm-myndskreytingaverð- launin 2009 og Sögusteininn, höfund- arverðlaun IBBY, árið 2011. Ritverk eftir Ragnheiði hafa verið þýdd á dönsku, norsku, sænsku, fær- eysku, þýsku, ungversku og taí- lensku. Fjölskylda Ragnheiður giftist 25.9. 1972 Birni Þór Sigurbjörnssyni, f. 10.2. 1951, skurðlækni. Hann er sonur Sigur- björns Þorbjörnssonar ríkisskatt- stjóra og Betty Ann Huffman Þor- björnsson húsfreyju. Börn Ragnheiðar og Björns Þórs eru Kolbrún Anna Björnsdóttir, f. 2.3. 1974, leikkona, kennari og meist- aranemi í hagnýtri menningar- miðlun, maður hennar er Viðar Bragi Þorsteinsson rafiðnfræðingur og eru börn þeirra Þórdís Ylfa, f. 1994, Elín Ylfa, f. 1999, og Þorbjörn Úlfur, f. 2009; Kári Freyr Björnsson, f. 10.8. 1978, ballettdansari, kvæntur Christine Thomassen ballettdansara, en þau vinna bæði við norsku óp- eruna í Osló; Kjartan Yngvi Björns- son, f. 16.3. 1984, bókmenntafræð- ingur og meistaranemi í ritlist, sambýliskona hans er Hjördís Alda Hreiðarsdóttir, bókmenntafræð- ingur og kennaranemi; Kolbeinn Ingi Björnsson, f. 8.2. 1993, listdans- nemi, dóttir hans er Klara Rós, f. 2009. Systkini Ragnheiðar eru Þor- grímur Gestsson, f. 14.6. 1947, rithöf- undur í Hafnarfirði; Guðjón Ingi Gestsson, f. 31.3. 1957, hugbún- aðarfræðingur í Hafnarfirði; Ingi- björg Þóra Gestsdóttir, f. 30.12. 1965, fatahönnuður í Hafnarfirði. Foreldrar Ragnheiðar: Gestur Þorgrímsson, f. 27.6. 1920, d. 8.1. 2003, myndhöggvari, og Sigrún Guð- jónsdóttir, f. 15.11. 1926, myndlist- armaður. Úr frændgarði Ragnheiðar Gestsdóttur Ragnheiður Gestsdóttir Guðrún Magnúsdóttir húsfr. á Stokkseyri Jón Sigurðsson kennari á Stokkseyri Ragnheiður Jónsdóttir rithöfundur Guðjón Guðjónsson skólsatjóri og ritstj.Æskunnar Sigrún Guðjónsdóttir myndlistarkona Ingibjörg Jónsdóttir húsfr. á Akranesi Guðjón Jónsson form. á Akranesi Þorbjörg Jónsdótti húsfr. í Skipholti Jón Ingimundarson b. í Skipholti Þorgrímur Jónsson söðlasmiður í Laugarnesi Ingibjörg Þóra Kristjánsdóttir húsfr. í Laugarnesi Gestur Þorgrímsson myndhöggvari Kristján Þorsteinsson sjómaður í Rvík Ólafur Þorgrímsson hrl Kristján Þorgrímsson forstj. Austurbæjarbíós Pétur Þorgrímsson forstj. SVR Torfhildur Guðnadóttir frá Forsæti Guðný Guðnadóttir húsfr. í Eyði-Sand- vík í Flóa Ásta Jónsdóttir húsfr. á Selfossi Brynjólfur Bjarnason heimspekingur og ráðherra Ingibjörg Lúðvíksdóttir, húsfr. í Rvík, móðir Davíðs Oddssonar Morgunblaðs- ritstjóra Guðrún Vigfúsdóttir húsfr. í Forsæti Steinunn Vigfúsdóttir húsfr. á Hæli Gestur Einarsson b. á Hæli Steinþór Gestsson alþm. á Hæli Gestur Steinþórsson skattstjóri ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2013 Jónas Jónsson fæddist á Hriflu íSuður-Þingeyjarsýslu 1.5.1885, sonur Jóns Kristjáns- sonar, bónda þar, og k.h., Rann- veigar Jónsdóttur. Bróðir Jónasar var Kristján, faðir Jónasar, forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar. Eiginkona Jónasar var Guðrún Stefánsdóttir og eignuðust þau tvær dætur, Auði og Gerði. Jónas stundaði nám við Möðru- vallaskóla, sótti um inngöngu í Lat- ínuskólann í Reykjavík 1905 en Steingrímur Thorsteinsson rektor hafnaði umsókn hans. Það urðu Jón- asi sár vonbrigði. Hann stundaði nám við lýðháskólann í Askov og við Ruskin College í Oxford sem rekinn var af bresku samvinnu- og verka- lýðshreyfingunni. Heim kominn frá námi snerist Jónas gegn fjármálaspekúlöntum í Reykjavík, kom að stofnun Fram- sóknarflokksins og Alþýðuflokksins, varð landskjörinn þingmaður fyrir Framsókn, arkitekt að stórsigri Framsóknar 1927 og varð þá dóms- málaráðherra í ríkisstjórn Tryggva Þórhallssonar og síðan aftur 1931- 32. Hann var forsprakki „Tímaklík- unnar“, flugbeittur penni, eljumaður með afbrigðum og pólitískur plottari af guðs náð, var ráðandi í uppbygg- ingu og skipulagi Sambands ís- lenskra samvinnufélaga og síðar lengi skólastjóri Samvinnuskólans. Jónas var áhrifamesti og umdeild- asti stjórnmálamaður hér á landi á fyrsta aldarþriðjungnum en eftir það héldu hans eigin flokksmenn honum frá ráðherradómi. Hann var þó formaður Framsóknarflokksins 1934-44 og alþingismaður 1922-49. Síðar meir varð Jónas handgeng- inn Ólafi Thors, átti þátt í aðkomu sjálfstæðismanna að þjóðstjórninni og varð loks hatrammur andstæð- ingur kommúnista. Hugmyndafræði hans virðist mótsagnakennd en verður þó best skilin sem róttæk íhaldsstefna, fyrst gegn þéttbýlis- myndun og kapítalisma en síðar gegn nútímalist og kommúnisma. Guðjón Friðriksson samdi prýði- lega þriggja binda ævisögu Jónasar. Jónas lést í Reykjavík 19.7. 1968 Merkir Íslendingar Jónas frá Hriflu 95 ára Marta Þórðardóttir 90 ára Guðrún Guðmundsdóttir 85 ára Guðjón Þorleifsson Ingólfur Njálsson Ólafur Guðnason Svanfríður Stefánsdóttir 80 ára Hreinn Sigurgeirsson Sigmar Eyjólfsson 75 ára Ellert Eiríksson Ingibjörg Ásgeirsdóttir Jóhannes Þórðarson Magnús Guðjón S. Jóns- son 70 ára Dóra Lydía Haraldsdóttir Friðrik Björnsson Guðmundur Kristján Stefánsson Sæmundur Sigurþórsson 60 ára Anna Sigurjónsdóttir Bergþór Þormóðsson Eiríkur G. Guðmundsson Guðmundur H. Guðmundsson Gunnar Gunnarsson Karin Birgitta Eriksson Rúnar K.Þ. Karlsson Tryggvi Gunnarsson Þorvarður Már Sigurðsson Þórir Guðmundsson 50 ára Anna Kristín Bjarnadóttir Anna Margrét Guðmundsdóttir Hallfríður S. Sigurðardóttir Jónas Ólafsson Jón Ingiberg Kristjánsson Már Másson Rut A. Friðleifsdóttir Sigurgeir A. Sigurgeirsson Sonja María Hreiðarsdóttir Svanhildur Skúladóttir Þorsteinn Hjaltason 40 ára Anna Kristín Tryggvadóttir Birna Aðalsteina Pálsdóttir Esther Rúnarsdóttir Ewan Alexander Callan Eyrún Ólafsdóttir Eyrún Þórðardóttir Gísli Rúnar Magnússon Guðmundur Hrafn Arngrímsson Jón Grétar Magnússon Maciej Mateusz Zgola Maurizio Tani Ófeigur Friðriksson Peter Norman Maxime Christensen Svavar Már Jónsson Sædís Gunnarsdóttir Þorgeir Valur Pálsson 30 ára Adam Marcin Galinski Baldvin Albertsson Dagmara Marta Wojtaszczyk Guðrún Inga Ægisdóttir Kristinn Örn Agnarsson Loftur Árni Björgvinsson Lukasz Bielawski Pétur Gunnarsson Phitthaya Sukbanthoeng Soffía Magnúsdóttir Steinar Már Halldórsson Trausti Laufdal Aðalsteinsson Þórarinn Ólafsson Til hamingju með daginn 30 ára Thelma ólst upp í Reykjavík, lauk prófum sem leikskólakennari frá KHÍ og hefur verið leik- skólakennari á Egils- stöðum. Maki: Heiðar Snæbjörns- son, f. 1981, húsasmiður. Börn: Alexander Máni, f. 2004; Dagný Lind, f. 2010, og Haukur Snær, f. 2012. Foreldrar: Elín Ásgríms- dóttir, f. 1955, og Björgvin Valdimarsson, f. 1954. Thelma Björgvinsdóttir 30 ára Ólafur ólst upp í Neskaupstað, er stúdent frá VA, lauk prófum frá Lögregluskóla ríkisins, er einkaflugmaður og stund- ar atvinnuflugmannsnám við Flugskóla Íslands. Foreldrar: Jón Kristinn Sigurðsson, f. 1943, fyrrv. sjómaður í Neskaupstað, og Guðrún Jóna Ólafs- dóttir, f. 1946, forstöðu- kona við þvottahús Heil- brigðisstofnunar Austurlands. Ólafur Jón Jónsson 30 ára Brynja er leik- skólakennari frá HÍ og vinnur við leikskóla. Maki: Arnar Baldvinsson, f. 1981, starfsmaður hjá Norðuráli. Börn: Matthías, f. 2002 (fóstursonur), Emelía Rán, f. 2006, og Björgvin Arnar, f. 2012. Foreldrar: Elín Ásgríms- dóttir, f. 1955, leik- skólastjóri, og Björgvin Valdimarsson, f. 1954, dúklagningarmeistari. Brynja Björgvinsdóttir Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | Langholtsvegi 113 | Turninn Höfðatorgi 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is LÁTTU OKKUR SJÁ UMHEIMILISÞVOTTINN! 6 KG. 1.790 KR. 12 KG. 2.390 KR. 20 KG. 3.290 KR. Efnalaug - Þvottahús SVANHVÍT EFNALAUG - NÚ Á FIMM STÖÐUM Hverafold 1-3, 112 Reykjavík Langholtsvegi 113, 104 Reykjavík Grettisgötu 3, 101 Reykjavík Smáralind, 201 Kópavogur Turninn Höfðatorgi, 105 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.