Morgunblaðið - 04.05.2013, Side 47

Morgunblaðið - 04.05.2013, Side 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2013 Úlfljótur var kjörinn fyrstilögsögumaðurinn á Ís-landi árið 930. Lög-sögumaðurinn gegndi eina launaða veraldlega embættinu á Íslandi. Lögsögumaðurinn varð að kunna lögin utan að og á hverju þingi þurfti hann að fara með þriðj- ung laganna í heyranda hljóði auk þess sem hann stjórnaði fundum lögréttu. Engum sögum fer af því hvernig lögsögumenn- irnir tileinkuðu sér lögin, en ugg- laust hafa þeir haft einhverjar að- ferðir til að leggja þau á minnið. Þá hljóta þeir að hafa verið undir nokkru álagi því að ekki gátu þeir flett upp í lögunum til að fullvissa sig um að þeir myndu rétt. Það er erfitt að ímynda sér að eitt- hvert svið þjóðlífsins sé algerlega háð minni. Þannig var það þó í ár- daga og enn er þá að finna, sem iðka fornar minnislistir. Þeirra heimur er umfjöllunarefni hinnar stórfróðlegu bókar Tiplað með Einstein: Stál- minni sem list og vísindi eftir banda- ríska blaðamanninn Joshua Foer, sem Karl Emil Gunnarsson hefur þýtt með miklum ágætum. Kveikjan að bókinni var þegar Foer hugðist tefla saman sterkasta manni heims og gáfaðasta manni heims í blaðagrein. Sterkasta mann- inn fann hann auðveldlega, en öðru máli gegndi um þann gáfaðasta. Eitt nafn skar sig þó úr, nafn Bens Pridmores, sem gat lagt á minnið 1.528 tilviljunarkennda tölu- stafi í réttri röð á einni klukkustund. Blaðaviðtal við Pridmore þar sem hann sagði að í „rauninni gæti hver sem er gert þetta“ varð Foer hug- leikið. Hann fór á bandaríska meist- aramótið í minnisíþróttum til að skrifa grein og fyrr en varði var hann sjálfur farinn að þjálfa minni sitt til að taka þátt í keppninni. Minningahöll Símonídesar Upphaf minnislistarinnar er rakið til 5. aldar fyrir Krist þegar Símonídes frá Keos lifði einn af hrun veislusal- ar nokkurs. Lík veislugestanna voru óþekkjanleg og ekki einu sinni vitað hve margir höfðu verið í salnum. Þá einangraði Símonídes „skynjun sína frá ringulreiðinni umhverfis sig og sneri rás tímans við í huga sér“. Hann raðaði gestum í sæti sín og gat leitt ættingja þeirra að þeim stöðum þar sem þeir höfðu setið. Þessi aðferð hefur verið kölluð minn- ingahöllin og felst í því að nota vist- arverur sem maður þekkir vel og koma því sem þarf að muna fyrir á vel völdum stöðum í þeim þannig að auðvelt sé að draga minnisatriðin fram þegar á þarf að halda. Minnislistin hefur lítið breyst frá dögum Símonídesar þótt mikilvægi hennar hafi minnkað. Tveimur öld- um eftir að fyrsti lögsögumaðurinn var kjörinn hófst skráning laga á Ís- landi. Það sem áður hafði varðveist í munnlegri geymd var nú hægt að skrásetja. Áður en prentlistin varð til voru bækur fágætt fyrirbæri. Menntaður maður las aðeins nokkrar bækur um ævina og varð að gera það rækilega því ekki var víst að þær yrðu aftur á vegi hans. Lengi vel lásu menn að- eins upphátt og vakti athygli þegar lesið var í hljóði. Þegar byrjað var að prenta bækur varð gerbreyting. At- riðisorðaskrár eru nú sjálfsagður hlutur, en þær ollu straumhvörfum þegar þær komu fyrst fram eins og Foer bendir á. Það skýtur því skökku við að atriðisorðaskrá skuli ekki fylgja bókinni. Minnið er kyndugt fyrirbæri. Kenningar hafa verið settar fram um að öll reynsla safnist fyrir í minninu þótt ekki sé hægt að kalla allt fram í meðvitundina. Sumir eiga ótrúlega auðvelt með að muna. Foer rekur dæmi af rússneskum blaða- manni, S, sem aldrei skrifaði neitt hjá sér þegar ristjórinn ruddi upp úr sér verkefnum ásamt staðreyndum, nöfnum og heimilisföngum. Loks var yfirmanni hans nóg boðið, sagði að sér ofbyði áhugaleysi hans og hann yrði að taka punkta. Blaðamaðurinn þuldi þá upp orð fyrir orð allt það, sem yfirmaðurinn hafði sagt á fundinum þann morguninn. Ritstjórinn sendi hann til sálfræð- ings, sem reyndi hvað hann gat að finna takmörk minnis S, en gat það ekki. Hann lærði ítölsk ljóð án þess að kunna ítölsku og stærðfræði- formúlur án þess að botna í þeim. Það merkilega var að S gleymdi engu af því sem hann hafði lagt á minnið. Það sorglega var að ofur- minnið kom S ekki að neinu gagni. Honum tókst aldrei að halda í fasta vinnu og endaði í raun sem sýning- argripur. Foer rekur einnig sögu gleymn- asta manns í heimi. 1992 fékk EP áblásturssóttar-veiru (herpes simp- lex) sem nagaði burt úr heila hans af mikilli nákvæmni þau svæði, sem breyta skynjunum okkar í nákvæm- ar minningar. Fyrir vikið var EP eins og „myndbandstæki með bil- aðan segulhaus. Hann sér en tekur ekki upp.“ Hann leggur ekkert á minnið og man ekkert sem gerðist eftir 1950. Minnisleysi hans er svo afgerandi að þegar hann lýkur lestri fyrirsagnar í dagblaði hefur hann gleymt hvernig hún byrjaði. Úrelt fyrirbæri eða tímabært? Á milli þessara tveggja manna erum við hin, sem daglega týnum bíllykl- unum og finnum ekki gleraugun okkar. Foer lýsir glímu sinni við minnislistina með grípandi hætti, en um leið ýjar hann að tilgangsleysi þessara æfinga. Í daglega lífinu noti hann ekki aðferðir minnislistarinnar heldur skrifi hjá sér, hvort sem það eru innkaupalistar, símanúmer eða viðtöl. Í raun er óþarfi að muna nokkurn skapaðan hlut því að allt er hægt að leita uppi á netinu. Þó hlýt- ur að vera nauðsyn að hafa einhverja fyrirstöðu í minninu eigi upplýsing- arnar að verða að einhverju gagni. Þá er enn lögð áhersla á utanbókarlærdóm í skólum og því er ástæða til að spyrja hvers vegna ekki er byrjað á að kenna minnislist Símonídesar. Þá þarf nútímamað- urinn að leggja á minnið alls pin- númer og lykilorð, sem fylgja hvers konar kortum og hliðartilveru í net- heimum. Aftur kæmi Símonídes sér vel. Kannski á minnislistin ekki að- eins heima í veröld sérvitringa, sem leggja á minnið endalausar talna- runur, eftir allt saman. Hin vanrækta minnislist AFP Stálminni Ben Pridmore lagði 1.528 tilviljunarkennda tölustafi á minnið í réttri röð á einni klst. Hér er hann í afslöppun á heimsmeistaramóti í Óþelló. Heimildarit Tiplað með Einstein bbbbn Eftir Joshua Foer. Karl Emil Gunnarsson þýddi. Útgefandi Vaka-Helgafell, 2013. 302 bls. KARL BLÖNDAL BÆKUR Myndlistarmað- urinn Hafsteinn Michael opnar sína tíundu einkasýningu í Galleríi Hverf- isgötu 46 klukk- an 16 á laugar- dag. Sýninguna kallar hann „X- makab?“ Við opnunina koma Re-Pete and the Wolfmachine fram og flytja fjögur hljóðverk. Í tilkynningu segir að lífið sé Hafsteini hugleikið við listsköp- unina og birtist meðal annars í fant- asíum eða sem tenging við goð- sögulegar fyrirmyndir. Hafsteinn Michael Lífið í fantasíum og goðsögum 17.05.13 Fös. 20:00 UPPSELT Kaldalón 24.05.13 Fös. 20:00 UPPSELT Kaldalón 25.05.13 Lau. 20:00 UPPSELT Kaldalón 31.05.13 Fös. 20:00 ÖRFÁ SÆTI Kaldalón 01.06.13 Lau. 20:00 ÖRFÁ SÆTI Kaldalón 08.06.13 Lau. 20:00 NÝ SÝNING Norðurljós 04.05.13 Lau. 21:30 UPPSELT Kaldalón 08.05.13 Mið. 20:00 UPPSELT Kaldalón 10.05.13 Fös. 20:00 UPPSELT Kaldalón 11.05.13 Lau. 20:00 UPPSELT Kaldalón 12.05.13 Sun. 20:00 UPPSELT Kaldalón Mary Poppins (Stóra sviðið) Lau 4/5 kl. 19:00 Fim 23/5 kl. 19:00 Sun 9/6 kl. 13:00 Sun 5/5 kl. 13:00 Lau 25/5 kl. 19:00 aukas Fös 6/9 kl. 19:00 ný sýn. Mið 8/5 kl. 19:00 aukas Sun 26/5 kl. 13:00 Lau 7/9 kl. 19:00 ný sýn. Fim 9/5 kl. 14:00 Mið 29/5 kl. 19:00 aukas Sun 8/9 kl. 15:00 ný sýn. Fös 10/5 kl. 19:00 Fim 30/5 kl. 19:00 aukas Fim 12/9 kl. 19:00 ný sýn. Lau 11/5 kl. 19:00 Fös 31/5 kl. 19:00 Fös 13/9 kl. 19:00 ný sýn. Sun 12/5 kl. 13:00 Lau 1/6 kl. 13:00 Lau 14/9 kl. 19:00 ný sýn. Mið 15/5 kl. 19:00 aukas Sun 2/6 kl. 13:00 aukas Sun 15/9 kl. 15:00 ný sýn. Fim 16/5 kl. 19:00 Mið 5/6 kl. 19:00 aukas Fim 19/9 kl. 19:00 ný sýn. Fös 17/5 kl. 19:00 Fim 6/6 kl. 19:00 Fös 20/9 kl. 19:00 ný sýn. Lau 18/5 kl. 19:00 Fös 7/6 kl. 19:00 Lau 21/9 kl. 19:00 ný sýn. Mán 20/5 kl. 13:00 aukas Lau 8/6 kl. 19:00 Einn vinsælasti söngleikur heims, loks á Íslandi. Nýjar sýningar komnar í sölu! Gullregn (Stóra sviðið) Þri 11/6 kl. 20:00 aukas. Fim 13/6 kl. 20:00 Lau 15/6 kl. 20:00 lokas Mið 12/6 kl. 20:00 Fös 14/6 kl. 20:00 Frumraun Ragnars Bragasonar í leikhúsi. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar. Mýs og menn (Stóra sviðið) Fös 24/5 kl. 20:00 aukas Lau 1/6 kl. 20:00 aukas Sun 9/6 kl. 20:00 lokas Sun 26/5 kl. 20:00 aukas Sun 2/6 kl. 20:00 aukas Meistaraverkið eftir John Steinbeck. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar. Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið) Lau 4/5 kl. 20:00 Lau 11/5 kl. 20:00 Fim 23/5 kl. 20:00 Sun 5/5 kl. 20:00 Fim 16/5 kl. 20:00 Fös 10/5 kl. 20:00 Fös 17/5 kl. 20:00 Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Snýr aftur í takmarkaðan tíma. Núna! (Litla sviðið) Þri 7/5 kl. 20:00 Mán 20/5 kl. 20:00 Þri 28/5 kl. 20:00 Sun 12/5 kl. 20:00 Þri 21/5 kl. 20:00 Þri 4/6 kl. 20:00 lokas Þri 14/5 kl. 20:00 Mið 22/5 kl. 20:00 Þrjú ný íslensk verk eftir ung og öflug leikskáld í einni sýningu Circus Cirkör: Wear it like a crown (Stóra sviðið) Fim 4/7 kl. 20:00 Lau 6/7 kl. 20:00 Mán 8/7 kl. 20:00 Fös 5/7 kl. 20:00 Sun 7/7 kl. 20:00 Þri 9/7 kl. 20:00 Í samstarfi við Norræna húsið. Meginsýning Volcano sirkushátíðarinnar Tengdó (Litla sviðið) Lau 4/5 kl. 20:00 25.k Fim 16/5 kl. 20:00 Sun 26/5 kl. 20:00 Sun 5/5 kl. 20:00 Fös 17/5 kl. 20:00 Fös 31/5 kl. 20:00 Fim 9/5 kl. 20:00 aukas Lau 18/5 kl. 20:00 Lau 1/6 kl. 20:00 Fös 10/5 kl. 20:00 Fim 23/5 kl. 20:00 Sun 2/6 kl. 20:00 lokas Lau 11/5 kl. 20:00 Lau 25/5 kl. 20:00 Grímusýning síðasta leikárs snýr aftur! Íslenski Dansflokkurinn: Walking Mad (Stóra sviðið) Sun 5/5 kl. 20:00 5.k Sun 12/5 kl. 20:00 Þri 28/5 kl. 20:00 Fim 9/5 kl. 20:00 Mán 20/5 kl. 20:00 Tvö verk á einu kvöldi: Walking Mad og Ótta - húmor, galsi og geðveiki Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Gullregn – síðustu sýningar Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR Englar alheimsins (Stóra sviðið) Lau 4/5 kl. 19:30 5.sýn Fim 23/5 kl. 19:30 10.sýn Sun 2/6 kl. 19:30 Mið 8/5 kl. 19:30 6.sýn Fös 24/5 kl. 19:30 11.sýn Fös 7/6 kl. 19:30 Fös 10/5 kl. 19:30 7.sýn Lau 25/5 kl. 19:30 12.sýn Lau 8/6 kl. 19:30 Lau 11/5 kl. 19:30 Aukas. Sun 26/5 kl. 19:30 Aukas. Sun 9/6 kl. 19:30 Sun 12/5 kl. 19:30 Aukas. Fim 30/5 kl. 19:30 13.sýn Fös 14/6 kl. 19:30 Fim 16/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 31/5 kl. 19:30 Lau 15/6 kl. 19:30 Fös 17/5 kl. 19:30 9.sýn Lau 1/6 kl. 19:30 Ein vinsælasta íslenska skáldsaga síðari ára í nýrri leikgerð Kvennafræðarinn (Kassinn) Lau 4/5 kl. 19:30 8.sýn Fim 16/5 kl. 19:30 Lau 25/5 kl. 19:30 Fös 10/5 kl. 19:30 9.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 Fös 31/5 kl. 19:30 Lau 11/5 kl. 19:30 Fös 24/5 kl. 19:30 Lau 1/6 kl. 19:30 Hver er ekki upptekin af kvenlíkamanum? Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Sun 5/5 kl. 14:00 Sun 26/5 kl. 14:00 Sun 12/5 kl. 14:00 Sun 2/6 kl. 14:00 Lokas. Síðustu sýningar! Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 4/5 kl. 13:30 Lau 11/5 kl. 13:30 Lau 25/5 kl. 13:30 Lau 4/5 kl. 15:00 Lau 11/5 kl. 15:00 Lau 25/5 kl. 15:00 Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka! Hvörf (Kúlan) Lau 4/5 kl. 19:00 Frums. Mið 8/5 kl. 19:00 Lau 11/5 kl. 19:00 Sun 5/5 kl. 19:00 Fös 10/5 kl. 19:00 Sun 12/5 kl. 19:00 Lab Loki í samstarfi við Þjóðleikhúsið Karma fyrir fugla (Kassinn) Lau 8/6 kl. 19:30 aukas. Sun 9/6 kl. 19:30 aukas. Aukasýningar í júní Gilitrutt (Brúðuloftið) Lau 4/5 kl. 13:30 Lau 11/5 kl. 13:30 Lau 25/5 kl. 13:30 Skemmtileg brúðusýning fyrir börn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.