Morgunblaðið - 22.06.2013, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2013
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan Reykjavík | Biblíu-
fræðsla kl. 11 í dag, laugardag. Barna-
og unglingastarf. Umræðuhópur á ens-
ku.Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður
er Arlene Taylor.
Aðventkirkjan Vestmannaeyjum |
Biblíufræðsla kl. 11 í dag, laugardag.
Barnastarf og guðsþjónusta kl. 12.
Bein útsending frá sameiginlegri guð-
þjónustu í aðventkirkjunni í Reykjavík.
Ræðumaður er Arlene Taylor.
Samfélag aðventista Akureyri |
Biblíurannsókn kl. 11, barnastarf og
guðsþjónusta kl. 12, í dag, laugardag.
Aðventsöfnuðurinn Suðurnesjum |
Sameiginleg guðsþjónusta í Aðvent-
kirkjunni í Reykjavík í dag, laugardag.
Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Sam-
eiginleg guðsþjónusta í Aðventkirkjuni í
Reykjavík í dag, laugardag.
Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði |
Guðsþjónusta kl. 11 í dag, laugardag.
Ræðumaður er Björgvin Snorrason.
Biblíufræðsla kl. 11.50. Barna- og ung-
lingastarf. Umræðuhópur á ensku.
Veitingar.
ÁRBÆJARKIRKJA | Göngumessa í
Árbæ sem hefst í kirkjunni kl. 11.
Prestur sr. Gunnþór Þ. Ingason, prestur
á sviði þjóðmenningar. Krisztína K.
Szklenárn organisti, leiðir gönguna og
stýrir söng. Kaffi.
ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Ægir Frímann Sigurgeirsson prédikar
og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syng-
ur, organisti er Magnús Ragnarsson.
Kaffisopi.
ÁSTJARNARKIRKJA | Helgistund kl.
11. Helga Þórdís Guðmundsdóttir leiðir
tónlistina. Prestur er sr. Kjartan Jóns-
son. Kaffi.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Gísli Jónasson. Félagar úr
kór kirkjunnar leiða almennan safn-
aðarsöng, organisti er Örn Magn-
ússon.
BÚSTAÐAKIRKJA | Kærleiksmessa
á Jónsmessu 23. júní kl. 20. Róm-
antísk tónlist í flutningi Jónasar Þóris
og félaga úr kór Búðstaðakirkju.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr.
Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyr-
ir altari, Dómkórinn syngur organisti er
Kári Þormar.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón-
usta kl. 20. Prestur sr. Guðmundur
Karl Ágústsson. Organisti Guðný Ein-
arsdóttir, kór Fella- og Hólakirkju leiðir
safnaðarsöng.
FRÍKIRKJAN Kefas | Samkoma kl.
16.30. Tónlistarhópurinn leiðir lof-
gjörð. Björg R. Pálsdóttir prédikar. Að-
staða fyrir börn en engin gæsla. Veit-
ingar.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón-
usta kl. 20. Sr. Sigríður Kristín Helga-
dóttir predikar og þjónar fyrir altari.
Sönghópur Fríkirkjunnar í Reykjavík
leiðir tónlistina undir stjórn Arnar Arn-
arsonar.
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar fyrir
altari. Börn borin til skírnar. Organisti
Jón Ólafur Sigurðsson.
GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 20.30.
Prestur sr. Gunnlaugur Garðarsson.
Organisti er Valmar Väljaots, kór Gler-
árkirkju leiðir söng.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Ferming. Kór
kirkjunnar syngur, organisti er Hákon
Leifsson. Kaffi.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl.
10, bænastund kl. 10.15. Messa kl.
11. Altarisganga. Samskot í líknarsjóð
kirkjunnar. Messuhópur þjónar. Kirkju-
kórinn syngur, organisti er Árni Ar-
inbjarnarson. Prestur sr. Ólafur Jó-
hannsson. Molasopi.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheim-
ili | Guðsþjónusta í umsjá Félags fyrr-
verandi þjónandi presta í hátíðasal kl.
14. Sr. Brynjólfur Gíslason þjónar.
Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn
Kristínar Waage organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Bryndís Valbjarn-
ardóttir, organisti Hrönn Helgadóttir og
kór Guðríðarkirkju syngur. Meðhjálpari
er Aðalstein D. Októsson, kirkjuvörður
Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa
kl. 11. Forsöngvari er Jóhanna Ósk
Valsdóttir. Organisti er Bjartur Logi
Guðnason og prestur er sr. Þórhildur
Ólafs. Kaffi í Ljósbroti.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. María Ágústsdóttir prédikar og þjón-
ar ásamt sr. Jóni D. Hróbjartssyni og
messuþjónum. Mótettukórinn syngur,
organisti er Hörður Áskelsson. Sögu-
stund fyrir börn í umsjá Rósu Árnadótt-
ur. Á eftir er opnun listsýningar Jo Yarr-
ington í turni. Sumartónleikar
Mótettukórs kl. 21. Miðnæturguðs-
þjónusta kl. 23. Sr. Karl Sigur-
björnsson biskup prédikar. Mótettukór
syngur. Tónleikar alþjóðlegs orgel-
sumars laugard. kl. 12 og sunnud. kl.
17. Stefan Kagl frá Þýskalandi leikur.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Org-
anisti Kári Allansson, prestur Tómas
Sveinsson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðs-
þjónusta kl. 20 á vegum safnaðanna í
Kópavogi. Prestur er sr. Petrína Mjöll
Jóhannesdóttir og organisti Jón Ólafur
Sigurðsson. Félagar úr kór Hjallakirkju
leiða söng. Kaffi. Sjá www.hjallakirkja-
.is
HÓLADÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Kirkjukór Sauðárkróks syngur undir
stjórn Rögnvaldar Valbergssonar.
Prestur sr. Sigríður Gunnarsdóttir.
HVAMMSKIRKJA í Laxárdal |
Messa kl. 14. Prestur sr. Sigríður
Gunnarsdóttir, organisti Rögnvaldur
Valbergsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkom kl. 11. Ræðumaður er Vörður
Leví Traustason. Kaffi. Samkoma á
ensku hjá Alþjóðakirkjunni kl. 14. Sam-
koma kl. 18. Lofgjörð og prédikun.
KAÞÓLSKA Kirkjan | Dómkirkja
Krists konungs, Landakoti | Messa
kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, má. mi. og fö.
kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18
er sunnudagsmessa.
Maríukirkja við Raufarsel Rvk. |
Messa kl. 11. Virka daga messa kl.
18.30, lau. á ensku kl. 18.30.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og þri.-fi. kl. 17.30. Lau. kl.
18.30 á ensku.
Karmelklaustur, Hafnarfirði |
Messa kl. 8.30, kl. 8 virka daga.
Kapellan Stykkishólmi | Messa kl.
10, lau. kl. 18.30 og má.- fö. kl. 9
(nema 1. fö. í mán. kl. 7:30)
Barbörukapella, Keflavík | Messa
kl. 14. og lau. kl. 18 á pólsku.
Njarðvíkurkirkja | Messa á pólsku kl.
9 á sunnud.
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl.
11 og fö. lau. kl. 18. Má.- fi. í kapellu
Álfabyggð 4 kl. 17.45.
Þorlákskapella, Reyðarfirði |
Messa kl. 11. Virka daga er messa kl.
9. Fö. kl. 18 fyrir börn. Lau. kl. 18 á
pólsku.
Kapellan Egilsstöðum | Messa kl.
17. Má kl. 17, þri. kl. 7.30, mi. kl. 18
(fyrir börn). 1. lau. í mánuði er messa á
pólsku kl. 17.
Kapellan Höfn | Messa kl. 12, 2. og
4. sunnud. í mánuði.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
Þorlákshöfn | Messa á pólsku 1. sun-
nud. í mánuði kl. 17 .
Akraneskirkja | Messa á pólsku 2.
sunnud. í mánuði kl. 18.
Hvolsvöllur | Messa á pólsku 3. sun-
nud. í mánuði kl. 17.
Selfoss | Messa á pólsku 4. sunnud. í
mánuði kl. 17.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl. 11.
Dagskrá undir yfirskriftinni Keflavík-
urkirkja 1915. Litið verður um öxl og
rifjuð upp saga kirkjunnar. Jóhann
Smári Sævarsson óperusöngvari syng-
ur einsöng. Arnór Vilbergsson er við
hljóðfærið og prestur er sr. Skúli S.
Ólafsson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11.
LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Daníel Steingrímsson guðfræð-
ingur prédikar og þjónar fyrir altari, fé-
lagar úr kór Laugarneskirkju leiða söng
við orgel- og píanóleik Guðnýjar Ein-
arsdóttur. Messuþjónar annast með-
hjálp. Kaffi. Sjá laugarneskirkja.is
LINDAKIRKJA Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta í
Hjallakirkju kl. 20 á vegum sum-
arstarfs þjóðkirkjusafnaða í Kópavogi.
Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson og
prestur er sr. Petrína Mjöll Jóhann-
esdóttir.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar
úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng,
organisti er Steingrímur Þórhallsson.
Sr. Siguvin Lárus Jónsson predikar og
þjónar fyrir altari. Kaffisopi.
ÓHÁÐI söfnuðurinn | Gúllasguðs-
þjónusta kl. 11 og með henni förum við
í sumarfrí. Kór safnaðarins leiðir söng-
inn undir stjórn Árna Heiðars Karls-
sonar. Sr. Pétur Þorsteinsson þjónar
fyrir altari og Petra Jónsdóttir er með-
hjálpari. Gúllassúpa seld í safn-
aðarheimilinu. Sjá ohadisofnudurinn.is
SALT kristið samfélag | Samkoma
kl. 17 í Grensáskirkju. Ræðumaður er
Skúli Svavarsson.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Axel Njarðvík þjónar. Organisti er Jörg
Sondermann, félagar úr kirkjukórnum
leiða sönginn. Hádegisverður.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 20.
Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédik-
ar. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng,
organisti er Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðs-
þjónusta kl. 11. Sóknarprestur og org-
anisti kirkjunnar þjóna. Halldór Unnar
Ómarsson leiðir almennan safn-
aðarsöng. Kaffiveitingar.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa í Garða-
kirkju kl. 11. Sr. Friðrik J. Hjartar prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Börn borin til
skírnar. Organisti Jón Ólafur Sigurðs-
son.
VÍÐISTAÐAKIRKJA Hafnarfirði |
Helgistund kl. 20. Kór Víðistaðasóknar
syngur undir stjórn Árna Heiðars Karls-
sonar. Prestur er sr. Kristín Þórunn
Tómasdóttir héraðsprestur.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sóknarprestur prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar leiðir
söng undir stjórn Stefáns Helga Krist-
inssonar organista. Meðhjálpari er Ást-
ríður Helga Sigurðardóttir.
Morgunblaðið/Ómar
Ólafsvíkurkirkja.
ORÐ DAGSINS:
Verið miskunn-
samir.
(Lúk. 6)
✝ Herjolf Skogl-and yfirvél-
stjóri fæddist í
Haugesund í Nor-
egi 20. maí 1942.
Hann lést í fæð-
ingabæ sínum
Haugesundi í Nor-
egi 5. apríl 2013.
Foreldrar hans
voru hjónin Elsa
Meyer Skogland
og Arne Skogland
sem bæði eru látin. Herjolf
var næstelstur fjögurra systk-
ina en hin voru Vigleik, eldri
bróðir Herjolfs, og systurnar
Grethe Karin og Ingfrid. Er
Ingfrid sú eina sem lifir af
þeim systkinum.
Eiginkonu sinni, Gunnhildi
Jónsdóttur frá Ísafirði, dóttur
Jóns Valdimarssonar og Sig-
ríðar Ásgeirsdóttur, kynntist
og Herjolfs var Sólveig sem
þau misstu aðeins 2 daga
gamla. Yngsta barn þeirra er
Árni, stjórnmálaheimspek-
ingur, sem giftur er Mariam
Nodia, bókmenntafræðingi og
þýðanda. Þeirra sonur er
Daniel.
Herjolf fór ungur til náms
við Haugesund Maskinistskole
og lauk námi í vélaverkfræði
árið 1972. Lengst af starfs-
ævinni var hann yfirvélstjóri
um borð í norskum skipum
nema á 12 ára tímabili þar
sem hann vann sem verkstæð-
isformaður hjá Skipaútgerð
ríkisins eða þar til skipaút-
gerðin var lögð niður árið
1994. Þá hóf hann störf sem
yfirvélstjóri hjá norskum skip-
um enn á ný. Herjolf lést eftir
alvarleg lungnaveikindi.
Útför Herjolfs fór fram frá
Udland kirke, 12. apríl 2013.
Herjolf var jarðsettur í Foss-
vogskirkjugarði frá Fossvogs-
kapellu 21. júní 2013.
hann um borð í ol-
íutankskipinu
Önnu Knutsen þar
sem hún starfaði á
sínum tíma og
giftu þau sig í
febrúar árið 1969.
Saman sigldu þau
hjónin þar til elsta
dóttirin Elsa fædd-
ist og þau fluttust
til Íslands. Elsa er
þjóðfræðingur og
grunnskólakennari, gift Ólafi
Elíassyni píanókennara. Elsa
og Ólafur eiga tvær dætur,
þær Guðrúnu og Steinunni
Hildi. Síðan áttu þau hjónin
Huldu Björgu, stjórnmála-
fræðing, sem er gift Max-
imilian Conrad, stjórnmála-
fræðingi. Þeirra dætur eru
Elín Snæfríður og Heiðbjörg
Anna. Þriðja barn Gunnhildar
Mig langar með örfáum orð-
um að kveðja tengdaföður
minn Herjolf Skogland sem
féll frá langt um aldur fram
eftir erfið lungnaveikindi.
Ég kynntist Herjolf um tví-
tugt þegar ég og dóttir hans
Elsa, eiginkona mín, felldum
hugi saman. Frá fyrsta degi
var það ljóst að ekki yrði erfitt
að láta sér lynda vel við þenn-
an tilvonandi tengdaföður.
Betri tengdaföður er ekki
hægt að hugsa sér. Herjolf var
konu minni yndislegur faðir og
dætrum mínum dásamlegur
afi. Alltaf var hann líka tilbú-
inn að koma til hjálpar þegar
þurfti eða ef eitthvað bilaði á
heimilinu. Hann var með ein-
staklega þægilega nærveru og
var sú manngerð sem öllum
þykir gott að hafa nálægt sér.
Þegar ég hugsa til þess, þá
man ég ekki eftir því að í eitt
einasta skipti hafi fallið þungt
orð á milli okkar, á þeim rúm-
lega tuttugu og fimm árum
sem við þekktumst. Þetta var
heilmikið afrek af hans hálfu
og lýsir vel því jafnaðargeði
sem einkenndi Herjolf, þar
sem ég er alls ekki allra.
Herjolf var vélstjóri að
mennt, hafði verið lengi í sigl-
ingum og ósjaldan lent í þeim
aðstæðum að þurfa að bjarga
málum við erfiðar aðstæður úti
á rúmsjó. Ég held að mér sé
óhætt að fullyrða að fáir hafi
verið eins vel að sér um vélar
og hann. Það var sama hvaða
vélabúnaður það var. Hann
kunni strax á hann eða fann
fljótt út úr því hvernig hann
virkaði. Og hann hafði líka
heilmikla gleði af því að geta
betrumbætt hluti eða jafnvel
lagað, sem aðrir töldu ónýta.
Mér er sérstaklega minnis-
stætt eitt skiptið sem hann var
inni í þvottahúsinu heima að
kíkja á bilaða þvottavél heim-
ilisins. Vél sem fagmenn frá
umboðinu voru búnir að segja
okkur að þyrfti að henda. Við
horfðum saman á innvolsið í
vélinni sem leit sæmilega heil-
lega út þrátt fyrir nokkurn
aldur. Þá segi ég við Herjolf
eitthvað á þessa leið: „þegar
maður sér svona heillegar vél-
ar þá finnst manni alger synd
að þurfa að henda þeim bara
vegna þess að það svarar ekki
kostnaði að gera við þær“. Á
þeirri stundu fann ég að ég
hafði náð að orða eitthvað sem
virtist vera nokkurskonar lífs-
mottó tengdaföður míns. Ég
held meira að segja að ég hafi
hækkað um nokkur þrep í áliti
hjá honum á umræddri stundu.
Að sjálfsögðu reif Herjolf vél-
ina í sundur og gerði við hana.
Það lýsir líka fagmennsku
hans vel, að þegar lofthitakerf-
ið bilaði í húsi okkar hjónanna
um árið, þá nægði honum ekki
að gera bara við rofana sem
biluðu. Nei, Herjolf lagðist í
margra daga vinnu við að
teikna rafkerfið upp á nýtt,
endurbæta kerfið og kom svo
með heilmikla rafstýringu sem
hann hafði sett saman sjálfur.
Þessu fylgdu miklar teikningar
sem mér tónlistarmanninum
tókst aldrei að átta mig á, og
mun líklega aldrei gera.
Nú er þessi góði maður fall-
inn frá. Við sem eftir sitjum
getum einungis yljað okkur við
þær góðu minningar sem við
eigum um hann. Herjolf var
maður sem var vel liðinn af öll-
um. Ævi hans ber vott um líf
vandaðs manns sem alltaf var
hægt að treysta og manns sem
naut virðingar þeirra sem hann
þekktu.
Tengdamóður minni og fjöl-
skyldu votta ég mína einlæg-
ustu samúð.
Ólafur Elíasson.
Það var frá Haugasundi sem
Hrafna-Flóki Vilgerðarson hélt
til fyrirheitna landsins sem
hann síðar nefndi Ísland. Það
voru fleiri en Hrafna-Flóki
sem þaðan komu en vinnu-
félagi minn til margra ára,
Herjolf Skogland, fetaði í fót-
spor hans rúmum 1000 árum
síðar og settist að hér á landi.
Það var árið 1980 sem kynni
okkar Herjolfs hófust þegar
þessi hægláti maður birtist um
borð í norsku leiguskipi Rík-
isskipa, Coaster Emmy, þar
sem við vorum í Reykjavík-
urhöfn. Þar starfaði ég sem
lestunarstjóri og á móti mér
var félagi minn Ragnar Eyj-
ólfsson. Var Herjolf að kanna
hvort á skipið vantaði vélstjóra
enda byggi hann í Reykjavík.
Viku síðar var hann orðinn yf-
irvélstjóri skipsins. Herjolf
hafði þá um árabil verið vél-
stjóri á norska ekjuskipinu
Grey Master í siglingum fjarri
Íslandi, eiginkonu og ungum
börnum þeirra hjóna. Það var
því kærkomið fyrir hann að
komast í vikulegar áætlunar-
siglingar frá Reykjavíkur,
vestur um land til Húsavíkur
sem var siglingaleið okkar.
Ekki fór leynt að hér var á
ferðinni afburða vélstjóri og
ekki síður góður félagi. Hann
var alltaf boðinn og búinn til
allra verka jafnvel þótt slík
verk tilheyrðu leigutakanum
en ekki útgerð skipsins sem
hann starfaði hjá. Fyrir okkur
Ragnar var Herjolf því algjör
himnasending. Herjolf var
víðsigldur á norskum skipum
og ræddum við títt um sigl-
ingar hans og jók hann sann-
arlega víðsýni mína og þekk-
ingu á norskum kaupskipum.
Árin okkar saman á Coaster
Emmy urðu tvö en þá kom að
því að leigunni var hætt og
annað norskt skip, Vela, tekið
á leigu í þess stað. Það leið
ekki á löngu þar til Herjolf var
einnig kominn þar um borð,
ráðinn af norsku útgerðinni.
Þar var hann með okkur Ragn-
ari í tæpt ár að hann réðst aft-
ur til starfa úti í Noregi í
skamman tíma. Stjórnendum
Ríkisskipa duldist ekki hvaða
hæfileika Herjolf bjó yfir og úr
varð að honum var boðið að
taka við viðgerðarverkstæði
útgerðarinnar. Faðir minn,
sem starfaði á skipum útgerð-
arinnar, hóf störf við gáma-
viðgerðir á verkstæðinu hjá
Herjolf þegar hann fór í land
1985 og starfaði með honum til
lokunar útgerðarinnar árið
1992. Undi faðir minn hag sín-
um afar vel með Herjolf og bar
honum alltaf gott orð. Það
voru ófáar heimsóknir sem við
Ragnar, og reyndar allir
starfsmenn til sjós og lands,
áttum á verkstæðið þar sem öll
vandamál voru leyst. Það kom
í hlut Herjolfs og Ragnars að
sjá um að undirbúa til afhend-
ingar síðasta skip Ríkisskipa,
Kötlu, áður Heklu og Velu, við
sölu þess úr landi og þar með
binda lokahnútinn á starfsemi
útgerðarinnar. Herjolf hélt þá
aftur til starfa sem vélstjóri í
Noregi. Við áttum ekki eftir að
hittast oft næstu árin en þegar
leiðir lágu saman urðu endur-
fundir skemmtilegir. Ragnar
og Herjolf áttu þó eftir að hitt-
ast oftar næstu árin. Nú þegar
aðalvélin er endanlega stöðvuð
hjá yfirvélstjóranum Herjolf
Skogland viljum við Ragnar
þakka honum fyrir ógleyman-
lega og ánægjulega samferð.
Gunnhildi og börnum vottum
við okkar innilegustu samúð.
Hilmar Snorrason.
Herjolf Skogland
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
BIRGIR GÍSLASON,
Þórólfsgötu 19a,
Borgarnesi,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi
þriðjudaginn 18. júní.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju
fimmtudaginn 27. júní kl. 14.00.
Lilja Jónasdóttir,
Hulda Birgisdóttir, Jón Jakobsson,
Jónas Heiðar Birgisson
og afabörn.