Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurjúní 2013næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    2627282930311
    2345678
    9101112131415
    16171819202122
    23242526272829
    30123456

Morgunblaðið - 22.06.2013, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 22.06.2013, Blaðsíða 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2013 Ég er orðinn hundleiður áþessum hippum,“ sagðiónefndur ungur tónlist-armaður við mig að haustlagi 1994. Við vorum staddir í Undirheimum Fjölbrautaskólans í Breiðholti, sem var þá giska vin- sæll tónleikastaður er kom að neð- anjarðartónleikum, og sá pirraði, sem var að fara að spila þarna um kvöldið, var að vísa í mosfellsku rokksveitina Victory Rose. Tónlist- armaðurinn sem um ræðir var einnig í hljómsveit og það gekk víst ekki þrautalaust hjá meðlimum Victory Rose, síðar Sigur Rós, að hljóðprufa sig. Tafir, eða kannski sú vandvirkni sem átti eftir að ein- kenna sveitina síðar meir, settu ýmislegt úr skorðum þetta kvöldið. Þegar ég sá svo Jón Þór Birgisson álengdar í fullum skrúða, síðhærð- an og skeggjaðan í mussu, glott- andi við tönn með gítarinn sinn sem var vandlega skreyttur indjána- kögri skildi ég vel hvaðan sá ónefndi var að koma. Fyrir á að giska tveimur vikum rambaði ég inn á amazon.co.uk og tékkaði á þeim plötum sem voru vinsælastar hvað forsölu varðar. Efst á lista var Kveikur með Sigur Rós. Íslenska hjartað hamaðist, eðlilega. Vandvirkni hippanna hundleið- inlegu hefur skilað sér svo um munar, svo rækilega reyndar að manni finnst það á köflum ótrúlegt. Kveikur er nýjasta varðan í þessu ótrúlega ferðalagi rokksveit- arinnar mosfellsku sem er aftur orðin að tríói en þannig var upp- stillingin í ár- daga. Ekki að platan sé ein- hvers konar aft- urhvarf til upp- hafsins vegna þessa, en hún ber þó með sér viss- an hráleika og beinskeytni sem var ekki í forgrunni á síðustu plötu t.a.m. Aldeilis ekki reyndar og síð- ustu tvær plötur, þessi hér og Valt- ari sem út kom í fyrra eru ágætis dæmi um þá fjölbreytni sem þrífst í Sigur Rósar heimi. Valtari var „stór“ og epísk, eins og mikilúðleg, hægrísandi alda. Áferð þessarar plötu er hins vegar allt öðru vísi, er meira eins og þegar áðurnefnd alda skellur með tilþrifum á berginu. Hér eru meiri læti og ærslagangur, eitthvert „trukk“ sem knýr hana áfram. Ef Valtarinn rúllaði á flaueli stekkur Kveikurinn um á sand- pappír. „Brennisteinn“ setur tóninn fyrir Kveik; bjagaðar, skóglápslegar gít- arlínur streyma fram undir hörðum trommuslögum og víruðum raftökt- um. Söngrödd Jónsa liggur yfir, í senn ákveðin og tilfinningarík og hann stekkur á milli bassa, tenórs og falsettu eins og að drekka vatn. Lagið er á einhvern furðulegan hátt bæði epískt og hnitmiðað, gengur fullkomlega upp og er eins og sýnidæmi um mátt og megin Sigur Rósar. Þú þarft að vera orð- inn sæmilega sjóaður til að geta snarað svona hlutum upp en lagið er líka til marks um að hungrið, ástríðan er þarna ennþá. „Hrafn- tinna“ tekur þennan bolta svo á lofti, hlykkjast áfram af sömu festu og upphafslagið; skreytt brassi, strengjum og klingjandi, „ind- ustrial“ áslætti. Kinnroðalaus keyrsla á upphafsmetrunum! Þetta er undirtónninn en lögin búa yfir mismunandi blæbrigðum engu að síður. „Yfirborð“ er höfug stemma og sveimkennd á meðan titillagið er nokkurs konar Sigur Rósar pönk. „Rafstraumur“ minnir á poppaðar smíðar eins „Inni í mér syngur vitleysingur“ en næstsíð- asta lagið, „Bláþráður“, trukkast áfram af því harðgera listfengi sem einkenndi fyrstu lög plötunnar. „Var“ er svo nokkurs konar út- göngustef en sveitin hefur lokað nokkrum plötum sínum á svipaðan máta. Þetta er að verða eins og með hina glæstu sveit The Fall. „Alltaf öðruvísi … alltaf eins“. Kveikur er vitnisburður um hljómsveit sem býr enn yfir sköpunarkrafti, er enn að leita en hefur um leið fullkomið vald á þeim tækjum og tólum sem hún hefur verið að skerpa til á síð- ustu áratugum. Ég kemst núorðið sjaldan í að rita opinberlega um gulldrengina og ætla því að ljúka þessum skrifum með setningu sem ég nota gjarnan um þessa einstöku hljómsveit: Það er engu upp á hana logið. Á jaxl, við bítum … Sköpunarkraftur „Kveikur er vitnisburður um hljómsveit sem býr enn yfir sköpunarkrafti, er enn að leita en hefur um leið full- komið vald á þeim tækjum og tólum sem hún hefur verið að skerpa til á síðustu áratugum,“ segir m.a. um plötu Sigur Rósar. Sigur Rós – Kveikur bbbbn Sigur Rós (Georg Holm, Jón Þór Birg- isson, Orri Páll Dýrason) samdi og upp- tökustýrði. Hljóðritað í Sundlauginni af Birgi Jóni Birgissyni, honum til að- stoðar var Elisabeth Carlsson. Rich Costey hljóðblandaði ásamt Sigur Rós og Alex Somers. Chris Kasych, Eric Isip og Laura Sisk aðstoðuðu við hljóð- blöndun. Eiríkur Orri Ólafsson útsetti blástur og blés ásamt Bergrúnu Snæ- björnsdóttur og Sigrúnu Jónsdóttur. Daníel Bjarnason útsetti strengi, Val- geir Sigurðsson hljóðritaði þá og á þá léku Borgar Magnason, Margrét Árna- dóttir, Pálína Árnadóttir, Una Svein- bjarnardóttir og Þórunn Ósk Mar- inósdóttir. Ted Jenssen hljómjafnaði. XL Recordings gefur út og dreifir. 2013. ARNAR EGGERT THORODDSEN TÓNLIST Þrír listamenn leiða gesti og gang- andi um verk sín á útilistaverkasýn- ingunni Undir berum himni sem opnuð var í seinasta mánuði og er hluti af Listahátíð í Reykjavík. Guðrún Kristjánsdóttir verður við verk sitt „Götur Guðanna. Fjöl- skyldutengsl guðanna í hverfinu“ á Nönnugötu 4 við Baldurstorg milli kl. 14.00 og 14.30. Magnea Ásmunds- dóttir verður við verk sitt „Græn spor“ á Baldursgötu 14 við Bald- urstorg milli kl. 14.30 og 15. Þór Elís Pálsson tekur upp þráð- inn þar sem frá var horfið á opn- unardegi sýningarinnar og flytur gönguljóð sitt „Ástríður“. Ljóða- flutningurinn hefst kl. 15.15 á horni Baldursgötu og Laufásvegar. „Gönguljóðið samanstendur af frumsömdu ljóði sem er skráð á skilti. Hvert einstakt orð í ljóðinu er skráð á stakt skilti og eru skiltin jafn mörg og orðin sem ljóðið inniheldur. Skiltunum er síðan dreift um Þing- holtin yfir það svæði sýningarinnar sem afmarkað er. Áhorfandinn get- ur þannig fengið sér göngutúr og lesið ljóðið með því að fylgja korti sem leiðir hann um ljóðagöngustíg- inn. Jafnframt getur áhorfandinn rölt um svæðið og safnað saman þeim orðum sem hann rekst á og þannig safnað sínu eigin orðasafni sem hann getur síðan spunnið úr. Gönguljóðið er á fjórum tungu- málum, íslensku, ensku, þýsku og frönsku,“ segir m.a. í tilkynningu frá listamanninum. Þar kemur fram að ljóðagangan taki um 30 mínútur. Alls taka rúmlega hundrað lista- menn þátt í Undir berum himni en sýningin stendur til 25. ágúst nk. og er boðið upp á leiðsagnir á hverjum laugardegi. Hægt er að nálgast kort þar sem sést hvar öll verk sýning- arinnar eru staðsett á vefnum und- irberumhimni.is. Ljóðaganga útivið Guðrún Kristjánsdóttir Morgunblaðið/Ómar 7 16 EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINS! FRÁBÆR GAMANMYND SEM ENGIN MÁ MISSA AF! SUMARSMELLURINN Í ÁR! Missið ekki af þessari stórkostlegu teiknimynd frá höfundum Ice Age -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar L L 12 THE ICEMAN Sýnd kl. 8 - 10:20 THE INTERNSHIP Sýnd kl. 2 - 5:30 - 8 - 10:30 EPIC 2D Sýnd kl. 2 - 5 EPIC 3D Sýnd kl. 2 - 5 FAST AND FURIOUS 6 Sýnd kl. 8 - 10:30 H.K. -Monitor BYGGT Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM UM LEIGUMORÐINGJANN RICHARD KUKLINSKI

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
111
Fjöldi tölublaða/hefta:
55869
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
31.12.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 144. tölublað (22.06.2013)
https://timarit.is/issue/371740

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

144. tölublað (22.06.2013)

Aðgerðir: