Morgunblaðið - 22.06.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2013
BAKSVIÐ
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Sú hækkun á sérstaka veiðigjald-
inu í uppsjávarfiski sem lagt er
upp með í frumvarpi Sigurðar Inga
Jóhannssonar, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, kemur sér
verulega illa fyrir þau byggðarlög
þar sem uppsjávarútgerðir eru.
Þetta segir Adolf Guðmundsson,
formaður Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, í samtali við
Morgunblaðið.
„Þetta eru gríðarlegar upphæðir
sem fara út úr Vestmannaeyjum,
Fjarðabyggð, Hornafirði og eins út
úr Reykjavík vegna þessarar
hækkunar,“ segir Adolf og bætir
við að hann sé ekki hissa á því að
sveitarstjórnir hafi verulegar
áhyggjur af umræddri hækkun. Þá
bendir hann á að jafnframt sé mikil
óvissa í kringum uppsjávarveiðarn-
ar, þannig sé t.d. ekki enn búið að
gefa út loðnukvóta og óvíst sé
hvort loðnuvertíð verði eða ekki.
„Það er náttúrlega gríðarleg fjár-
festing sem liggur þarna á bak við
í bræðslum, skipum, búnaði og
vinnslu í landi,“ segir Adolf. Að-
spurður hvaða áhrif það myndi
hafa á minni útgerðir í landinu ef
veiðigjaldafrumvarp sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra næði ekki
í gegn og veiðigjaldalögin héldust
óbreytt segir Adolf að það sé alveg
skýrt að slíkt myndi þýða að mörg
útgerðarfyrirtæki færu á hausinn.
„Mörg fyrirtæki myndu ekki
standa það af sér og færu bara á
hausinn,“ segir Adolf.
Erfitt fyrir minni útgerðir
„Það hefur náttúrlega áhrif á all-
ar útgerðir en minni útgerðir eiga
oft erfiðara með að greiða gjaldið,“
segir Eiríkur Tómasson, forstjóri
útgerðarfélagsins Þorbjörns hf.,
aðspurður hvaða áhrif sérstaka
veiðigjaldið hafi á rekstur minni
útgerða. Hann bendir á að mark-
miðið hjá mörgum minni útgerðum
sé að skapa atvinnu frekar en ein-
hverja mikla hagnaðarvon.
Spurður hvaða áhrif það hefði
fyrir Þorbjörn hf. ef frumvarp Sig-
urðar Inga yrði óbreytt að lögum
segir segir Eiríkur að slíkt myndi
fela í sér talsverða leiðréttingu fyr-
ir fyrirtækið. „Við höfum verið að
greiða mjög hátt hlutfall af fram-
legð rekstrarins í þetta og enn
hærra af hagnaði,“ segir Eiríkur
og bætir við að sérstaka veiðigjald-
ið hafi haft þau áhrif að það sé ekki
einu sinni inni í myndinni fyrir út-
gerðir að endurnýja hluti eða fjár-
festa. „Miðað við ástandið í dag
væri verið að hirða allan hagnað af
rekstrinum og meira til og mjög
mörgum bolfiskútgerðum myndi
blæða út við slíkan gjörning. Þeir
hafa aldrei þótt miklir búmenn sem
blóðmjólka kýrnar sínar en að
minnsta kosti hluti þjóðarinnar
virðist telja að það sé bara allt í
lagi að blóðmjólka sjávarútveginn,“
segir Eiríkur aðspurður hvaða
áhrif það hefði ef frumvarp Sig-
urðar Inga yrði ekki að lögum.
Agnar Kristján Þorsteinsson og
Ísak Jónsson, sem standa fyrir
undirskriftasöfnun á netinu
um óbreytt veiðigjald,
funduðu með Sigurði
Inga í gærmorgun. Á
fundinum sagði ráð-
herrann m.a. að ekki hefði
verið möguleiki að gera
ekki neitt og standa uppi
með óframkvæmanleg
lög.
„Hirða allan hagnað“
Formaður LÍÚ segir hækkun á sérstaka veiðigjaldinu í uppsjávarfiski koma sér
illa fyrir sum sveitarfélög Útgerðarmaður segir veiðigjaldið hindra endurnýjun
Morgunblaðið/Ómar
Fiskveiðiflotinn í Reykjavíkurhöfn Adolf Guðmundsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir að fyrirhuguð hækkun sérstaka veiði-
gjaldsins í uppsjávarfiski muni m.a. kosta Reykjavík miklar fjárhæðir. Hann segist ekki vera hissa á því að sveitarstjórnir hafi áhyggjur af þessari hækkun.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Fundur með ráðherra Forsvarsmenn undirskriftasöfnunarinnar funduðu
með Sigurði Inga Jóhannssyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Eiríkur
Tómasson
Adolf
Guðmundsson
Mikill meirihluti
valnefndar þings
Evrópuráðsins
vegna væntan-
legrar kosningar
dómara við
Mannréttinda-
dómstól Evrópu
mat Róbert
Ragnar Spanó
hæfastan
þriggja íslenskra
kandídata sem tilnefndir voru af
íslenskum stjórnvöldum. Auk Ró-
berts voru tilnefnd þau Guð-
mundur Alfreðsson og Oddný
Mjöll Arnardóttir. Þau voru tekin
í viðtöl og farið yfir ferilskrár
þeirra í valferlinu.
Valnefndin lagði að þessu sinni
mat á kandídata frá Íslandi,
Litháen og Slóvakíu, þrjá frá
hverju landi. Einn Litháanna var
metinn hæfastur úr hópi samlanda
sinna en kandídatarnir frá Slóvak-
íu voru ekki taldir fullnægja kröf-
um til verðandi dómara og lagði
valnefndin til að þeim yrði öllum
hafnað.
Davíð Þór Björgvinsson er að
hætta við dómstólinn. Kosið verð-
ur um nýja dómara við Mannrétt-
indadómstól Evrópu í næstu viku.
gudni@mbl.is
Róbert
Spanó met-
inn hæfastur
Valnefnd þings
Evrópuráðsins
Róbert R. Spanó
Jórunn Harð-
ardóttir, jarð-
fræðingur og
framkvæmda-
stjóri, var kjörin
formaður Skot-
félags Reykjavík-
ur (SR) á aðal-
fundi félagsins
20. júní sl. Hún er
fyrsta konan sem
gegnir embætti
formanns í SR en það er elsta
íþróttafélag landsins, stofnað 1867.
„Ég er búin að sitja í stjórn SR í
nokkur ár, fyrst sem meðstjórnandi
og svo sem varaformaður,“ sagði
Jórunn. Hún keppir einnig í íþrótta-
skotfimi fyrir félagið. „Það er margt
spennandi á næstunni, það verða
Smáþjóðaleikar á Íslandi árið 2015
og þar verður skotfimi stór þáttur.
Það er mikil uppbygging hjá félag-
inu, bæði innanhúss og í útigreinum.
Þetta er skemmtileg áskorun.“
Jórunn sagði pláss fyrir fleiri kon-
ur í skotíþróttum og hún sagðist
gera sitt besta til að hvetja konur til
að prófa skotfimi. gudni@mbl.is
Jórunn for-
maður SR
Jórunn
Harðardóttir
„Með nokkurri einföldun má
segja að hægrimenn hafi í
gegnum tíðina barist fyrir
tvennu í sjávarútvegsmálum:
1. Hagkvæmu markaðskerfi
framseljanlegra veiðiheimilda.
2. Að auðlindaarðurinn renni
til eigenda útgerðarfyrirtækja.
Og vinstrimenn hafi í gegnum
tíðina einnig barist fyrir
tvennu: 1. Að auðlindaarðurinn
renni til þjóðarinnar, eiganda
auðlindarinnar. 2. Boðum,
bönnum og pottum sem
myndu grafa undan hag-
kvæmni í greininni. Ég tel að
góð sátt milli þessara aðila
feli í sér að báðir aðilar slái af
kröfum sínum og sammælist
um: 1. Hagkvæmt markaðs-
kerfi framseljanlegra veiði-
heimilda. 2. Að auðlindaarð-
urinn (rentan) renni til
þjóðarinnar, eiganda auðlind-
arinnar,“ segir í umsögn Jóns
Steinssonar, hagfræðings við
Columbia-háskóla í Bandaríkj-
unum, um veiðigjaldafrumvarp
Sigurðar Inga Jóhannssonar,
sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra.
Þar segir jafnframt að Jón
leggi til farsælan endi á
þessu erfiða deilumáli sem
felist í því að hægrimenn
fallist á að lækka ekki veiði-
gjaldið gegn því að vinstri-
menn falli frá áformum
um frekari breytingar
á kvótakerfinu.
Leggur til
málamiðlun
HÆGRI OG VINSTRI
Jón
Steinsson