Morgunblaðið - 22.06.2013, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2013
Góð brauð – betri heilsa
Opið: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
Lengri opnunartími á Dalveginum
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Handverk
í 18 ár
Brauðdagar
hjá Reyni bakara
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hafðu það hugfast að aðeins ef þú
beinir reiði þinni í réttan farveg mun hún
verða þér til góðs. Einhver langt í burtu hjálp-
ar þér með viturlegum ráðum, leiðbeiningum
eða bænum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þetta er góður tími til að leysa deilur
sem tengjast sameiginlegri ábyrgð á börnum.
Taktu þér frí, ef tækifæri er til, annars verður
þú að taka þér tak.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að taka frumkvæðið og
kýla áfram þau verkefni sem þér og sam-
starfsmönnum þínum hafa verið falin. Búðu
þig undir hið óvænta, það er eina ráðið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert óvenju eigingjörn/eigingjarn á
eigur þínar í dag og því er þetta ekki góður
dagur til að ganga frá einhvers konar eigna-
skiptingu. En vertu sanngjörn/gjarn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ástvinir verða við beiðni þinni af því að
þú ert svo skapgóð/ur í kringum þá. Smáveg-
is dekur læknar jafnvel hið illvígasta sjálfs-
vorkunnarkast.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú býrð yfir krafti sem getur orðið
öðrum hvatning til framkvæmda. Tjáskipta-
örðugleikar og misskilningur verða áberandi
næstu vikur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu ekki athugasemdir foreldra þinna
eða annarra í fjölskyldunni slá þig út af lag-
inu. Hugsaðu bara málið í næði, og farðu af
stað þegar þú ert tilbúin/n.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu hendur standa fram úr
ermum og komdu þeim málum í framkvæmd
sem hafa setið á hakanum. Forvitni þín hvet-
ur þig til náms og ferðalaga.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú færð hverja hugmyndina á
fætur annarri en gengur illa að gera þær allar
að raunveruleika. Brostu, hlæðu og ekki
hlusta á neinn sem reynir að draga þig niður.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu ekkert ganga fyrir fjölskyldu
þinni því hún er grundvöllur lífs þíns og án
hennar værir þú ekki það sem þú ert. Ekki
miða þig við aðra.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þetta getur orðið mjög skemmti-
legur dagur. Vel má hagræða heima fyrir og á
vinnustað. Ekki láta sannfæra þig um eitt-
hvað sem þér er á móti skapi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Haltu áfram að leggja að þér við vinn-
una og skipulegði þig heima og í vinnunni.
Forðastu fljótfæra vini sem best þú getur.
Karlinn á Laugaveginum vareins og utan við sig, þegar ég
sá hann og tuldraði eitthvað fyrir
munni sér sem ég heyrði óglöggt:
„Inn í Sogamýri, inn í Blesugróf,
inn að Elliðaám“. Og svo sneri
hann við blaðinu: „Upp á Ártúns-
höfða, upp á Skólavörðuholt, upp í
Hádegismóa“ og hristi höfuðið um
leið og hann spurði út í loftið: „Inn
í Mjódd? Upp í Mjódd?“ Og tók sig
á:
Inn í Mjódd! ég ók og lagðist síðan
upp á bekk í hjartalínurit.;
og þaðan upp ég horfði á himin víðan
og hugsaði hvorki um gigt né æðaslit.
– Þórður sagði þrek mitt gott og líðan
og Þórður læknir hefur á því vit.
Ég greip fram í og spurði hvort
hann hefði verið í afmæli kerling-
arinnar á Skólavörðuholtinu. Hann
hristi höfuðið og sagði.
Hún er orðin ósköp þreytt
og ónýtt hennar vinstra lær.
en skapið er eins og orðin beitt,
ég inn til hennar leit í gær.
Hún gaf mér rikling, rúgbrauð seytt
og rembingskoss, mín blessuð mær.
Já, hún er alltaf að amla sú gamla.
Og hristi höfuðið.
Hvalvertíðin er hafin og gamlar
öfugmælavísur koma upp í hug-
ann:
Fljóta burtu flæðisker,
fljúga upp reyðarhvalir,
blágrýtið er blautt sem smér,
blý er hent í þjalir.
Séra Matthías skrifaði í Eim-
reiðina skemmtilega grein um al-
þýðukveðskap á Norðurlandi á
19. öldinni. Þar segir hann um
séra Jón á Bægisá: „En hvers var
von þegar annar eins kennimaður
var kominn til að siða fólkið, –
kennimaður, sem varla komst út
úr kirkjunni, svo að hann léti
ekki fjúka glensstöku, sbr. vís-
una:
Hver las? – Hirðir mera.
Hvað? – Um fola graðan.
Hvar? – Í helgum dyrum.
Hvenær? – Á dag boðunar
Að kveða slíkt í kirkjudyrum,
og það á slíkri messu, það mátti
sýnast, að kastað væri tólfunum.
Eða hvernig í dauðanum áttu
menn að heiðra þann búmann,
sem varð svo lítið um hryssumissi
sinn, að hann kvað:
Hryssutjón ei hrellir oss,
hress er ég þó dræpist ess;
missa gjörði margur hross;
messað get ég vegna þess.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af reyðarhvölum
og hjartalínuritum
Í klípu
„ÉG „GREIP TÆKIFÆRIГ EINU SINNI.
ÉG ER SAMT NOKKUÐ VISS UM AÐ ÞAÐ
VAR EKKI RÉTTA TÆKIFÆRIÐ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„Ó, NEI! ÞAÐ VAR EKKI HRINGT Í OKKUR
TIL AÐ VEKJA OKKUR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hjálpa til
á heimilinu.
ÉG VAR AÐ KAUPA MEGRUNARBÓK SEM HEITIR
„BORÐAÐU EINS MIKIÐ OG ÞÚ VILT OG
VIGTAÐU ÞIG ALDREI AFTUR.“
HVERNIG
VIRKAR ÞAÐ? ÞÚ BYRJAR Á AÐ HENDA
VIGTINNI …
VERTU EKKI AÐ ABBAST UPP
Á MIG, KÖTTUR. ÉG TÓK
LÍFVÖRÐ MEÐ MÉR Í DAG.
HEILSAÐU
BENNA
BENNI?
JÓ
Brúðkaup um borð í bát úti á speg-ilsléttum Breiðafirðinum í
glampandi sól – þarf að segja meira?
Víkverji hélt ekki, orð eru nánast
óþörf en það þarf víst að fylla þetta
pláss hér að neðan. Hefst þá lýs-
ingin: Víkverja leið eins og hann
væri staddur í kvikmynd, róm-
antískri gamanmynd – það kemur
oft fyrir – en þó meira í líkingu við
Woody Allen-mynd. Það verður að
viðurkennast að Víkverji á sínar
sparihliðar og rómantíkin á það til
að taka völdin. Um leið og Víkverji
og ástmögur hans stigu út úr krútt-
legu gistiheimili á Stykkishólmi og
örkuðu prúðbúin á háum hælum (þó
bara kvenmaðurinn) niður að höfn
voru þau stigin inn í myndina. Á
undan þeim gekk maður með tyrk-
neskt yfirbragð í glansandi jakkaföt-
um, reykjandi þennan líka unaðslega
vindil, líka á leið í brúðkaup. Að
sjálfsögðu vakti framganga hans og
Víkverja aðdáun bæjarbúa, sem fóru
ekki dult með hana.
x x x
Þegar brúðkaupsgestir vorukomnir um borð í bátinn og
brúðhjónin að sjálfsögðu tók við bið
eftir nokkrum gestum, að sjálfsögðu
því þetta er Ísland. Ófáar símhring-
ingar áttu sér stað til að ná í veislu-
gestina sem villtust víst af leið, enda
ekki komið áður á Vesturlandið
góða. Loks fréttist að gestirnir seinu
væru komnir í bæinn og á höfnina.
Drengurinn sem tengdist seinu
gestunum andaða rórra þegar hann
frétti af því að litli bróðir væri lent-
ur. Hann furðaði sig þó á því hví
hann væri ekki kominn um borð og
tók aftur upp símann og spurði hvar
hann væri. „Ég er kominn um borð,
hvar eruð þið?“ „Nei, ha, hvar eruð
þið eiginlega?“ segir stóri bróðir og
verður litið á næsta bát, Baldur. Þar
blasir litli bróðirinn við og vinkar um
leið og báturinn siglir frá landi.
Gestirnir hlæja hástöfum á meðan
Baldur heldur áfram en svo hægir
hann á sér og hann bakkar og lendir
harkalega á höfninni. Út skjótast
nokkrir gestir og taka til fótanna og
rata loks um borð í réttan bát;
hlátrasköllin og lófatakið glumdi um
fjörðinn í glampandi sól. Þetta setti
tóninn fyrir það sem koma skyldi …
víkverji@mbl.is
Víkverji
Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn
leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina.
(Jóhannesarguðspjall 10:11)