Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.7. 2013 Afrek á sviði íþrótta standa upp úr eftir vikuna. Íslenska hlaupa- konan Aníta Hinriksdóttir náði þeim árangri að verða heims- meistari ungmenna í 800 metra hlaupi. Árangur þessarar ungu íþrótta- konu úr ÍR er stórkostlegur enda 800 metra hlaup af mörgum talin ein erfiðasta grein frjálsra íþrótta. (Prófiði bara að reyna að hlaupa tvo hringi kringum fót- boltavöll!) Saga greinarinnar er áhuga- verð. 800 metra hlaupi kvenna var bætt inn sem keppnisgrein á Ól- ympíuleikunum í Amsterdam 1928 þegar konur kepptu í fyrsta sinn í frjálsíþróttum á leikunum. Eftir leikana var ákveðið að taka greinina út vegna þess að talið var að hún hefði neikvæð áhrif á kon- ur, þær urðu svo þreyttar í lok hlaupsins! Raunar voru aðstæður til hlaups erfiðar og keppniskon- urnar ekki búnar nægilega undir erfiðið. Það er því tiltölulega stutt síðan, eða ekki fyrr en í Róm árið 1960, að konur fengu aftur að keppa í 800 metra hlaupi á Ólymp- íuleikum. Saga kvenna í fótbolta er – líkt og í frjálsum íþróttum – talsvert styttri en karla sem keppt hafa í sömu grein. Sá árangur íslenska kvennaliðsins sem náðist í vikunni þegar þær komust í átta liða úrslit Evrópumótsins í annað sinn er af- rek sem ratar að sjálfsögðu rak- leitt í sögubækurnar. Skítt með sólarleysið, látum af- rekin tala sínu máli og fögnum vorinu í íslenskum íþróttum – kvennavorinu. Samkvæmt óvísindalegri mæl- ingu gæti þessi pistill verið um það bil tveggja mínútna lesning. Kannski les Aníta hann einhvern tímann, en akkúrat núna er gott til þess að vita að hún notar sínar tvær mínútur í að hlaupa 800 metra – í nafni Íslands – á EM 19 ára og yngri á Ítalíu. Hún gæti verið komin í mark áður en þú nærð að klára niður að punkti. RABBIÐ Kvennavorið Eyrún Magnúsdóttir Fólk bregst misvel við myndatökum. Sumir vilja alls ekki sitja fyrir, aðrir vilja gjarnan láta ljós sitt skína og festa það á rafrænt form. Ljósmyndari Morg- unblaðsins var á ferð í Laugardalnum þegar hann sá litlar stúlkur stilla sér upp fyrir myndatöku. Oft eru ljósmyndarar eins og flugur á vegg, og ná mynd- um af augnablikum þar sem fólk veit ekki að verið sé að mynda sig. Þessar stúlkur vissu vel af mömmunni með myndavélina, en sáu ekki hinn sem var í fjarska, með góða aðdráttarlinsu. En úr varð eitt lítið fryst augnablik af sannri gleði. Ekki er víst hvaða hlutverk þær voru að túlka. Ekki vitum við hvað mamman hefur sagt þeim að gera. Ein virðist vera að blessa, með messa, yfir mannfjölda, önnur er í tískusýningarstellingu og sú þriðja ákvað að dansa og gretta sig. Kannski var mamman með hreyfimyndavél sem náð hefur tilburðunum. Þær kunnu allar að bregða á leik og nutu sín vel í góða veðrinu. AUGNABLIKIÐ Morgunblaðið/Árni Sæberg SÖNN GLEÐI ÞRJÁR LITLAR STÚLKUR Í LAUGARDALNUM VORU EKKI FEIMNAR VIÐ MYNDAVÉLINA EN ÞÆR SÝNDU MIKLA LEIKRÆNA TILBURÐI SEM MYNDAÐIR VORU Í BAK OG FYRIR. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? Tónleikar og í senn kynning á sí- gildri íslenskri tónlist. Hvar? Í Hörpu. Hvenær? Á sunnudag kl. 20. Perlur íslenskra sönglaga Hvað? Tónleikar Öddu Ingólfs og Mar- grétar Rúnarsdóttur á vegum Kítón. Hvar? Í Viðeyj- arstofu. Hvenær? Á sunnudag kl. 16. Nánar: Ferja frá Skarfavogi kl. 15.15. Tónhvörf Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? Þór og Breiðablik mætast í Pepsi-deild kk. Hvar? Á Akureyri. Hvenær? Á sunnudag kl. 18. Nánar: Sama dag fara fram leikirnir ÍA- ÍBV og Valur-Fylkir. Knattspyrna Hvað? Leiksýningin Gilitrutt með leik- hópnum Lottu. Hvar? Á Egilsstöðum og Seyðisfirði. Hvenær? Á sunnu- dag kl. 13 (Egils- stöðum) og kl. 17 (Seyðisfirði). Nánar: Ferðalag Lottu heldur áfram um Austurland í næstu viku. Gilitrutt Hvað? Hlaupahátíð á Vestfjörðum. Hvar? Hefst við íþróttahúsið á Þingeyri. Hvenær? Á sunnudag, nokkrir rástímar. Nánar: Hlaupahatid.is Vesturgötuhlaup Hvað? Ísland-Svíþjóð í 8 liða úrslitum á EM. Hvar? Í beinni á RÚV. Hvenær? Kl. 13 á sunnudag. Stelpurnar okkar * Forsíðumyndina tók RAX

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.