Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Blaðsíða 27
21.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 living withstyle ILVA Korputorgi, s: 522 4500 laugardaga 10-18, sunnudagur 12-18, mánudaga - föstudaga. 11-18:30 - www.ILVA.is TILBOÐ 25% af öllum sumarvörum í júlí G arður Maríu B. Jónsdóttur og Baldurs Þórs Sveinssonar verður griðastaður fjölskyld- unnar á sumrin. „Garðurinn er og verður ávallt stór hluti af okkar lífi. Við höfum allt- af verið dugleg að nota garðinn, börn jafnt og full- orðnir. Garðurinn okkar breytist í græna herbergið á sumrin,“ segir María. Hún segir það ekki nauðsynlegt að hafa brakandi sól til að geta notið þess að vera í garðinum. „Stundum er bara þægilegt þegar sú gula er ekki á lofti. Ef upplifun fólks er þannig í görðum sín- um, þá má segja að skipulagning garðsins hafi heppn- ast vel“. Húsið keyptu þau hjón árið 1993 og var garðurinn nánast sem óskrifað blað. „Það voru einungis nokkur tré sem hentaði okkur vel því við vildum skipuleggja garðinn sjálf,“ segir María. Á óskalistanum er gróður- hús í garðinn en hún stefnir á að vera orðin sjálfbær með grænmeti og ávexti á næstu tíu árum. „Kannski fáum við okkur líka hænur aftur, en við vorum með ís- lenskar hænur í mörg ár. Þetta verður náttúrlega þannig að ég þarf ekki að fara í matvörubúð þegar ég verð orðin eldri borgari.“ Til þess að halda garðinum fallegum segir María það mikilvægt að slá blettinn reglulega og þá helst með handsláttuvél. „Ég hef nú oft líka bara fært tré sem hafa ekki notið sín nægilega vel á vissum stöðum í garðinum og það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hversu auðvelt er að færa tré og runna, jafnvel risatré.“ Að lokum nefndi María gott ráð þegar kemur að því að huga að garðinum. „Amma mín gaf mér gott ráð, en það er að passa vel upp á vökvun á sumrin og gefa plöntunum áburð af og til. Einnig að fjarlægja það sem er visið sem fyrst þannig að kraftur plöntunnar fari í vöxtinn.“ Steypti potturinn er mjög mikið not- aður af fjölskyldumeðlimum. Hjónin létu setja upp einstaklega notalegan gufubaðskofa, að hætti Finna, á milli tveggja kletta í garðinum og fellur hann alveg inn í umhverfið. Hjónin María Birna og Baldur Þór heilluðust af garðinum er þau keyptu þetta snotra hús í Hafnarfirði árið 1993 en þá voru aðeins örfá tré í garðinum, sem bauð þó upp á marga möguleika að gera hann fallegan frá grunni. Verður græna herbergið á sumrin FALLEGT BÁRUJÁRNSHÚS Í HAFNARFIRÐI HEFUR AÐ GEYMA GLÆSILEGAN GARÐ SEM BÝÐUR UPP Á MEIRA EN MARGIR. MARÍA B. JÓNSDÓTTIR OG BALDUR ÞÓR SVEINSSON OPNUÐU DYRNAR INN Í HÚS OG ÚT Í GARÐ FYRIR SUNNUDAGSBLAÐINU. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is ÆVINTÝRALEGUR GARÐUR * „Stundum erbara þægilegtþegar sú gula er ekki á lofti. Ef upp- lifun fólks er þannig í görðum sínum, þá má segja að skipu- lagning garðsins hafi heppnast vel“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.