Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Blaðsíða 61
kemur nýtt starfsfólk. Meðal annars
nýir unglingaþjálfarar.
Manchester United, Liverpool og
Arsenal reyna alltaf að koma upp
með sína stráka. Man City, Chelsea
og Tottenham eru minna í því að
framleiða leikmenn. Kaupa þá frek-
ar. En núna hafa þessi lið eytt gríð-
arlegum fjárhæðum í akademíurnar
sínar og vonandi sjáum við stráka
koma frá þessum liðum sem hafa al-
ist upp við það að spila fyrir sín lið.“
Neville bendir einnig á að bestu
liðin í gegnum tíðina hafi haft
stráka sem hafa komið í gegnum
unglingastarfið. „Öll bestu liðin hafa
haft kjarna af leikmönnum sem hafa
komið í gegnum unglingastarfið. AC
Milan, Barcelona, Ajax og Bayern
voru með þrjá eða fjóra leikmenn.
Manchester United hefur verið yf-
irburðalið á enskri grundu og þar
má alltaf finna heimalninga.
Þar ertu með kjarna af leik-
mönnum sem skilja hvað það þýðir
fyrir félagið að vinna titil.
Auðvitað er ekki hægt að kenna
bara eigendunum um. Þeir hafa eytt
fjármunum í félagið og vilja auðvit-
að ná árangri og ávaxta sitt pund.
En af 92 liðum hafa 63 af þeim hafa
skipt um stjóra síðan tímabilið klár-
aðist í Englandi.
Börsungar hafa hvað, sjö og
stundum 11 leikmenn sem hafa
komið upp í gegnum La Masia aka-
demíuna sína. Hvað kostar hún?
Fimm milljónir punda á ári. Er það
ekki góður bisness?“ spyr Neville.
Eins og áður sagði er enska fót-
boltaþjóðin í sárum eftir sumar af
úrslitum sem olli vonbrigðum.
Breska blaðið The Guardian birti í
vikunni sláandi niðurstöður úr viða-
mikilli rannsókn sem blaðið tók
saman. Þar kom ýmislegt for-
vitnilegt í ljós. 189 enskir leikmenn
spiluðu í ensku deildinni á síðasta
tímabili. 88 spiluðu meira en helm-
ing leikja en 40 spiluðu minna en 5
leiki. Fjögur efstu liðin í ensku
deildinni notuðu aðeins 29 enska
leikmenn. Wigan notaði fæsta Eng-
lendinga en Liverpool og Norwich
flesta. En hvort sem enska deildin
er full af útlendingum eða ekki þá
er hún skemmtilegasta deild til að
horfa á. Það er vitað mál.
Fjöldi innlendra leikmanna
og fjöldi leikja í efstu deild
Man. Utd Barcelona Juventus PSG FC Bayern
Man. City Real Madrid Napoli Marseille Dortmund
Chelsea A Madrid AC Milan Lyon B. Leverkusen
Arsenal R. Sociedad Fiorentina Nice Schalke
Fjögur efstu lið í hverju landi
224
4.035
320
6.274
269
5.070
189
3.411
332
6.391
5270
1.215
52
979
60
1.131
29
611
1.062
England Spánn Ítalía Frakkland Þýskaland
England Spánn Ítalía Frakkland Þýskaland
Innlendir leikmenn Leikir þeirra
U-21 árs landslið Englands í fótbolta fyrir leik gegn Ítalíu í sumar. Þar var fátt
um fína drætti – mjög fátt. Of margir spila í neðri deildum að mati Neville.
AFP
* „Öll bestu liðin hafa haft kjarna afleikmönnum sem hafa komið í gegnum unglingastarfið. AC Milan,
Barcelona, Ajax og Bayern voru með þrjá
eða fjóra leikmenn. Manchester United
hefur verið yfirburðalið á enskri grundu
og þar má alltaf finna heimalninga.“
21.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 61
Viðskiptavinir Kjaran
eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og
prentsmiðjur sem eiga
það sameiginlegt að
gera kröfur um gæði
og góða þjónustu.
bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki
bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum.
Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem
prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit.
Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft
ekki annað tæki en bizhub C35.
Verð: 379.900 kr.
Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir
hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
* „Það eru margir breskir leikmennsem hafa varla gert neitt – samtkosta þeir milljónir.“ Gus Poyet