Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Blaðsíða 53
21.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Inga Lára Baldvinsdóttir,
fagstjóri Ljósmyndasafns Ís-
lands, veitir leiðsögn um yf-
irlitssýningu á ljósmyndum
Sigfúsar Eymundssonar, sem nú
stendur yfir í Þjóðminjasafninu, á
sunnudaginn, 21. júlí, kl. 14.
2
Lokatónleikar listahátíðar
unga fólksins, LungA, fara
fram utandyra við Norður-
síld á Seyðisfirði á laugar-
daginn. Gleðin hefst kl. 21 og boðið
upp á ungar hljómsveitir í bland við
eldri og reyndari. Meðal þeirra sem
skemmta gestum eru Grísalappalísa
og hin danska Rangleklods.
4
Skrímslaháskólinn nefnist ný
teiknimynd sem nýbyrjað er
að sýna í bíó, framhald hinnar
stórskemmtilegu Skrímsli hf.
Skrímslafélagarnir Maggi og Sölli
lenda í nýjum ævintýrum, börnum og
foreldrum til skemmtunar.
5
Hin sígilda söngvamynd The
Rocky Horror Picture Show
verður sýnd á laugardags-
kvöldið kl. 22 í Bíó Paradís. Í
henni segir af hinum nýgiftu Brad og
Janet sem leita skjóls í dularfullum
kastala þar sem kynóði klæðskipting-
urinn Frank-N-Furter ræður ríkjum.
Um að gera að skella sér í lífstykki,
hælaháa skó og syngja hástöfum með.
3
12 hljómsveitir koma fram á
útitónleikunum KEXPort sem
haldnir verða í portinu við
KEX Hostel, Skúlagötu 28, á
laugardaginn frá kl. 12 til miðnættis.
Meðal þeirra sem leika eru Hjaltalín,
Moses Hightower og Sykur.
MÆLT MEÐ
1
Sýning á verkum myndlistarmannannaÁrna Páls Jóhannssonar og KristjánsGuðmundssonar verður opnuð nú um
helgina, laugardaginn 20. júlí, kl. 16, í Da-
hlshúsi á Eskifirði. Miklar endurbætur hafa
verið gerðar á húsinu sem byggt var árið
1880 og er fyrirhugað að halda í því sýn-
ingar á samtímalist næstu fimm sumur, að
þessu meðtöldu.
Árni segir þá Kristján oft hafa sýnt sam-
an, enda séu þeir gamlir félagar. Í byrjun
júní var opnuð sýning á verkum þeirra í
Galleríi Klúku á Hótel Laugarhóli í Bjarn-
arfirði og til standi að opna aðra sýningu
með verkum þeirra á sama stað. „Þetta er
ein af fyrstu sýningunum á Eskifirði, ég
held að Georg Guðni hafi sýnt þarna áður
en þetta er fyrsta sýningin í Dahlshúsi eft-
ir að það var gert upp,“ segir Árni.
„Við vorum beðnir um að sýna saman
þarna og við veljum verkin okkar sjálfir.
Við höfum nú ekki séð húsið fullfrágengið,
það er nýlega komið í lag og tókum því
bara slatta af verkum með til að setja upp
og velja á sýningu. Þetta er dálítið keimlíkt
allt sem við erum að gera, sitt í hvoru lagi,
en þetta passar vel saman þarna,“ segir
Árni. „Ég veit ekki hvað Kristján er með
nema þá að hann er með punkta úr skáld-
verkum Halldórs Kiljans, nokkra punkta og
svo var spurning hvort það yrði eitthvað
annað með hjá honum. Svo verður hann
með bækur til sýnis, gamlar bækur sem
hann hefur gert. Ég verð með nokkur af
ríkjum Bandaríkjanna sem ég tek út úr
korti og set lit í og set svo nafn, eins og
Colorado t.d. og þá liggur það eins og lín-
urnar á landakortinu. Þannig að þetta er
skakkt á veggnum, útskorið út úr Banda-
ríkjunum. Það eru nokkur ferköntuð ríki
sem ég tek þarna út,“ segir Árni en verkin
vinnur hann á álplötur.
Auk þess að sinna myndlist hefur Árni
starfað við leikmyndahönnun, kennslu og
kvikmyndagerð en hann hóf feril sinn í
kvikmyndum sem annar tökumaður
heimildarmyndar Friðriks Þórs Friðriks-
sonar, Rokk í Reykjavík. „Ég hef alltaf
unnið í myndlist, alveg frá upphafi og svo
plataði Frikki Þór mig í eina mynd og ég
fékk smá pening og varð „hooked“,“ segir
Árni og hlær. „Þessar bíómyndir hafa að-
allega verið til þess að fá einhvern pening.
Það eru allir myndlistarmenn, eins og þú
veist, í vinnu einhvers staðar. Ég hef kennt
mikið, bæði hér heima og erlendis,“ bætir
Árni við.
VERK EFTIR ÁRNA PÁL JÓHANNSSON OG KRISTJÁN GUÐMUNDSSON SÝND Á ESKIFIRÐI
Punktar, bækur og ríki
FYRSTA SUMARSÝNINGIN Á SAM-
TÍMALIST AF FIMM FYRIRHUGUÐUM
OPNUÐ Í DAHLSHÚSI.
Árni Páll Jóhannsson og Kristján Guðmunds-
son eru gamlir félagar og hafa oft sýnt saman.
Ljósmynd/Guðmundur Ingólfsson
þátt í uppsetningum á vegum óperuhópsins
Novoflot. „Þar hef ég sungið í óperum eftir
ung og spennandi tónskáld, þeirra á meðal
eru Moritz Eggert, Miroslav Srnka og Helm-
ut Oering. Mér finnst alltaf gaman að fá nýtt
verk í hendurnar og getað rætt beint við tón-
skáldið ef spurningar koma upp. Það fylgir
því óneitanlega meira frelsi að fá að frum-
flytja nýja óperutónlist, heldur en ef maður
er að syngja hlutverk sem allir þekkja,“ segir
Hanna Dóra og nefnir sem dæmi að síðasta
sumar hafi hún tekið þátt í uppfærslu með
Novoflot í Ríkisóperunni í München, þar sem
viðfangsefnið var konurnar í lífi Richards
Wagner.
Af öðrum verkefnum sem hún hefur sungið
síðustu ár má nefna hlutverk Önnu í Die sieb-
en Todsünden eða Dauðasyndirnar sjö eftir
Kurt Weil og hlutverk Metellu í La vie Par-
isienne eftir Jacques Offenbach. Spurð hvort
hún eigi sér einhver draumaóperuhlutverk
tekur Hanna Dóra strax fram að hún sé mjög
hamingjusöm að fá að takast á við Carmen.
„Því hún er heillandi karakter og ég veit fátt
skemmtilegra en að standa á sviði og fá að
leika og syngja. En fyrst þú spyrð þá verður
að viðurkennast að ég er hrifin af tónlist
Richards Strauss og myndi heldur ekki slá
hendinni á móti því að syngja í óperum Rich-
ards Wagner ef tækifæri gefst.“
„Raunar leiðast mér þessar formlegu skilgreiningar í annaðhvort sópran eða mezzósópran, enda syng ég hvoru tveggja jöfnum höndum. Ég hef alltaf
verið staðsett raddlega mitt á milli þessara tveggja radda og vil því helst bara skilgreina mig sem söngkonu,“ segir Hanna Dóra Sturludóttir.
Ljósmynd/Rut Sigurðardóttir