Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Blaðsíða 59
21.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59 LÁRÉTT 1. Skriki fótur við lærdóm að hluta í raftæki. (11) 8. Gerum loforð vitlaust með því að móðga. (8) 9. Bilað rör af mistökum. (8) 10. Sjónlaus gerir grín að hólum. (10) 11. Heitasta lín getur orðið það algildasta. (11) 13. Það að næla detti út veldur því að álag minnkar. (10) 15. Högni flækist um land með hökin. (9) 16. Á stöðum gubbar út af gjaldskyldutæki. (10) 18. Kem best út án lélegra einkunnar. Það hefur greiðst. (6) 20. Óþekktur stefni hratt á söng á tímabilinu. (11) 22. Stór skar í hálft áður en fékk ráðleggingu. (8) 24. Stór er brothætt í íþrótt. (7) 26. Sú bitrasta er sönn í því að skapa feitan mann í tötrum. (12) 28. Vörusending með heimabruggi í hörku teiti. (11) 30. P.S. Rugl ekkils endar í vandræðum. (8) 32. Órökréttir hjá Ide eru einnig hugmyndafræðilegir. (12) 33. Gera hæfnina betri með söngnum. (9) 34. Ættingi sem er læknir fær óskýrt talið að endingu. (6) 35. Útvegar skaflarandirnar. (5) 36. Planta á interneti stórborgar. (5) LÓÐRÉTT 1. Efsti hluti nótu nægir klárum. (13) 2. Fæ panel einhvern veginn frá fjarlægu landi. (5) 3. Verður ritari við að ruglast reyndari? (7) 4. Meti og næ ekki á fjall. (8) 5. Lítið þing með sársauka í rullu. (11) 6. Meðlimur hefur náttúru. (4) 7. Refskák Ara getur endað á lista. (10) 10. Tsarinn með háskólamenntun missir sig í upphafi við að fara á markaðinn. (8) 12. Slík hefur læðst og farið í. (7) 14. Rigningin sem er sögð ekki vera þung veldur kæruleysinu. (8) 17. Vinnuna geymir alltaf fyrir hreyfingu. (10) 19. Verkaðir breyti 2 x 1 krónu. (12) 21. Fiskur sem er fisksali? (10) 22. Sjá tölu, og elda hana að sögn í hjónabandinu. (10) 23. Skjögraði með 50 til að fá skreytinguna. (10) 25. Kóngur kalli: „Ennþá gin?“ í fæðingunni. (8) 27. Kasta aftur stöng. (8) 28. Fellur fimm hundruð á eins sem róma. (6) 29. Fæði einhvern á netinu með málmi. (6) 31. Æpa: „Samfylkingin“ og skrapa. (5) Létt var yfir mönnum við opnunFischer-seturs á Selfossiþann 11. júlí sl. Sameinað átak Gunnars Finnlaugssonar, Aldísar Sigfúsdóttur, Magnúsar Matthíassonar og Sigfúsar Krist- inssonar gerði þessa framkvæmd mögulega. Fischer-setrið er staðsett á annarri hæð gamla Landsbanka- hússins. Safnið á eftir að vaxa og dafna og þarna verður jafnframt að- staða fyrir skákfélagið á Selfossi. Meðal gesta við opnunina voru ráð- herrarnir Illugi Gunnarsson og Sig- urður Ingi Jóhannsson. Sá síð- arnefndi fann sterka samsvörun milli útlaganna Bobby Fischers og Grettis sterka Ásmundarsonar: „Báðir áttu sína Gláma að glíma við – og báðir áttu trausta vini,“ sagði hann meðal annars. Guðni Ágústsson, sem vart lýkur upp munni án þess að nefna Gunnar á Hlíðarenda, talaði síðastur og tókst auðvitað að spyrða kappana saman. Guðni glettist góðlátlega við vini sína úr kjördæminu, taldi aug- ljóst að draugur nokkur, sem lengi hefði leikið lausum hala í Flóanum, myndi hafa ýtt á „send-takkann“ þegar tölvupósturinn frægi fór af stað úr tölvu Bjarna bóksala; Ólafur Helgi sýslumaður væri landskunnur fyrir dálæti sitt á hljómsveit sem hann mundi að vísu ekki hver var en kom ekki að sök þar sem öðrum var ljóst að hér var átt við The Rolling Stones. Friðrik Ólafsson talaði um kynni sín af Fischer og færði setr- inu að gjöf skorblöð af nokkrum skákum þeirra. Þeir tefldu samtals 12 skákir, þar af ellefu á tímabilinu 1958-’62. Friðrik vann þá fyrstu með glæsibrag en eftir það hallaði undir fæti og heildarniðurstaðan var 9:3, Fischer í vil. Fischer var af- ar beittur kóngspeðsmaður og Friðrik var með svart í sjö síðustu skákum þeirra. Hann ræddi síð- ustu viðureignina sem fram fór á Ólympíumótinu í Havana árið 1966, við rannsóknir eftirá taldi Fischer peðsfórn Friðriks í byrjun tafls ekki mikils virði, hann sá við brellum Friðriks undir lokin, vann sannfærandi sigur og hlaut 15 vinninga af 17 mögulegum á 1. borði fyrir Bandaríkin. En Friðrik átti sín tækifæri í þessari skák og kannski fyrr en keppendur hugðu: Bobby Fischer – Friðrik Ólafs- son Spænski leikurinn 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Rxe4 Á Piatigorsky-mótinu fyrr um árið hafði Fischer átt í basli gegn opna afbrigði spænska leiksins í skákum við Bent Larsen og Wolf- gang Unzicker. 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8. dxe5 Be6 9. c3 Be7 10. Bc2 Bg4 Upphafið að athyglisverðri peðs- fórn. Seinni tíma þróun byggð á skákum Kortsnojs gerði ráð fyrir leikjum á borð við 10. … Dd7 og – Hd8. 11. h3 Bh5 12. g4 Bg6 13. Bb3 Ra5?! Best var 13. … Rc5! – „Houdini“. Eftir 14. Bxd5 kemur 14. … Dd7! með góðum færum og 14. Dxd5 er svarað með 14. …Ra5. 14. Bxd5 c6 15. Bxe4 Bxe4 16. Dxd8+ Hxd8 17. Rbd2 Bd5 18. He1 h5 19. Re4 hxg4 20. hxg4 Rc4?! Betri reitur fyrir riddarann var á b7 og 20. … b4 kom einnig til greina. 21. Kg2! Be6 22. b3 Rb6 23. Be3 Rd5 24. Kg3 f6 Friðrik hafði litlar bætur fyrir peð- ið og þessi leikur bætir ekki úr skák. 25. Bc5! f5 26. Rd6+ Bxd6 Skárra var 26. … Kd7. 27. exd6 Kd7 28. Re5 Kc8 29. Rxc6 f4 30. Kg2 Re3+! Byggir á hugmyndinni 31. fxe3 Bd5+ o.s. frv. En Fischer hafði séð þetta fyrir. 31. Kg1! Bd5 32. Re7+ Kd7 33. fxe3 Hh1+ 34. Kf2 Hh2+ 35. Kf1 Bf3 36. Rg6 Be4 37. Re5+ - og svartur gafst upp. Helgi Ólafsson helol@simnet.is SKÁK Síðasta skák Friðriks við Bobby Fischer Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseð- ilinn með nafni og heim- ilisfangi ásamt úrlausninni í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádeg- ismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 20. júlí rennur út föstudaginn 26. júlí. Vinningshafi krossgát- unnar 14. júlí sl. er Pálmi Kristinsson, Sólheimum 14, 104 Reykjavík. Hlýtur hann að launum bókina Ekki þessi týpa eftir Björgu Magnúsdóttir. JPV gefur út. KROSSGÁTUVERÐLAUN Nafn Heimilisfang Póstfang
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.