Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Blaðsíða 28
*Matur og drykkir Áhöfnin á Húna þarf að nærast í hverri höfn og þá er ljúft að renna niður heitri súpu »32 Á hugi Ögmundar Guðjóns Albertssonar á mat- reiðslu kviknaði fyrst þegar hann vann sem uppvaskari á veitingastaðnum Horninu, en það var fyrir hreina tilviljun að vinnuveit- endur hans hleyptu honum að í eldhús Hornsins á sín- um tíma. „Það var nú bara vegna forfalla matreiðslu- manna í eldhúsinu að ég var fenginn til að elda. Það stóð aldrei til hjá mér að starfa við þetta í framtíðinni. Ég ætlaði að læra bifvélvirkjun en svo datt ég inn á þetta og fann mig mjög vel í þessu starfi,“ segir Ög- mundur, en hann útskrifaðist sem matreiðslusveinn fyrir 20 árum. Ítölsk matargerð hefur alltaf heillað Ögmundur hefur alla sína tíð í matreiðslu haft mikinn áhuga á ítalskri matargerð. Uppáhalds matur hans er þó íslenskur lambahryggur, en hann segist ófeiminn við að gera tilraunir í eldhúsinu og prófar reglulega nýjar upp- skriftir. „Ég á gott safn af matreiðslubókum og svo er náttúrlega gott aðgengi að uppskriftum á netinu. Ég kynntist á sínum tíma ítalskri matargerð í starfi mínu á Horninu og því hefur hún ávallt heillað mig. Mér finnst gott að fá mér hrygg með fjölskyldunni en ætli ég sé ekki mest duglegur við að prófa nýjar uppskriftir þegar kemur að því að elda fisk. Fólk er oftast mjög opið fyrir því og því reynir maður helst að þróa eitthvað nýtt þeg- ar kemur að þeirri matargerð,“ segir Ögmundur og bæt- ir við að ekki sé mjög algengt að matreiðslumenn fari algjörlega eftir upprunalegum uppskriftum. „Ég tek oft- ast uppskriftir upp úr bókum og uppfæri þær svo sjálf- ur. Ég held að ég hafi aldrei hitt matreiðslumann sem breytir ekki uppskrift þegar hann eldar,“ segir hann. Leitast eftir að nota gott hráefni Ögmundur leggur mikið upp úr góðu hráefni og reynir eftir fremsta megni að fylgjast með nýjungum í mat- argerð. Á seinasta ári gaf hann út matreiðslubókina „Matur og meiri matur,“ en bókin hefur að geyma hundrað uppskriftir af fjölbreyttum mat eins og kafla- heitin bera með sér. Aðspurður hvernig það kom til að hann ákvað að skrifa bók segir Ögmundur: „Maður frænku konu minnar er með lítið forlag sem heitir Steinegg og hann bauð mér að taka þetta verkefni að sér. Ég ákvað að slá til en ég skrifaði bókina seinasta sumar. Þetta er bók sem gefin er út í litlu formi og ég hafði mjög gaman af því að fylgja þessu verkefni eftir,“ segir Ögmundur, en hann gæti vel hugsað sér að skrifa aðra matreiðslubók í framtíðinni. Ögmundur hóf feril sinn í eldamennsku fyrir tilviljun á sínum tíma en hann útskrifaðist sem matreiðslusveinn fyrir tuttugu árum síðan. Morgunblaðið/Styrmir Kári ÖGMUNDUR VARÐ KOKKUR VEGNA FORFALLA Ætlaði að verða bifvélavirki ÖGMUNDUR GUÐJÓN ALBERTSSON VARÐ MATREIÐSLUMAÐUR AF TILVILJUN OG HEFUR ÁVALLT HEILLAST AF ÍTALSKRI MATARGERÐ. HANN GAF ÚT MATREIÐSLUBÓK Á SÍÐASTA ÁRI OG GETUR VEL HUGSAÐ SÉR AÐ SKRIFA AÐRA BÓK. Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is UPPSKRIFT MIÐAST VIÐ FJÓRA 800 g kjúklingabringur (snyrtar) 4 msk. ólífuolía ½ dl sweet chillisósa ½ dl dijon-sinnep 2 tsk. basil mulinn pipar (eftir smekk) 1 tsk. agavesíróp herbamare salt (eftir smekk) 1 tsk. cajun krydd 4 stk. maukaðir hvítlauksgeirar Aðferð: Setjið olíu í skál og blandið sinnepi, sweet chilli, hvít- lauk, basil, pipar, sírópi, cajun-kryddi og salti saman við og hrær- ið saman. Takið bringur og veltið upp úr leginum og látið standa í 2 klst. í kæli. Grillið á miðlungshita í 7-9 mín. á hvorri hlið (fer eftir stærð). Passið að lögurinn brenni ekki utan á kjúklingnum. SÓSA 200 g grísk jógúrt ¼ stk. rauð paprika (skorin í fína teninga) 5-6 sneiðar agúrka (skorin fínt í strimla) ½ tsk. sítrónusafi 1 stk. maukaður hvítlauksgeiri ½ tsk. agavesíróp 1 tsk. herbamare salt ¼ dl vatn ½ tsk. basil Aðferð: Blandið jógúrt og vatni saman og bætið við því sem kemur fram í upptalningunni. MEÐLÆTI Ferskt salat með avókadó, kirsuberjatómötum, ristuðum möndlum og fetaosti. OFNBAKAÐAR KARTÖFLUR 6 stk. meðalstórar kartöflur 1 stk. sæt kartafla (meðalstór) maldon salt (eftir smekk) 3 msk. ólífuolía mulinn pipar (eftir smekk) Aðferð: Skerið kartöflur niður í báta. Blandið öllu saman og setjið á eldfast mót og bakið í ofni á 180° í um 40-50 mín. Grillaðar kjúklingabringur með sinnepi og sætu chilli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.