Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.7. 2013
Heilsa og hreyfing
ÍGarðabænum búa tvíburarnir Máni Austmann og Dagur Austmann Hilmarssynir. Þeir hafa verið með boltann á lofti frá fimm ára aldri, bæðihand- og fótbolta. Nýlega ákváðu þeir að leggja handboltaskóna á hilluna og snúa sér alfarið að fótboltanum. Líkt og hjá tvíburunum úr Hafn-arfirði, snýst lífið um bolta. Þeir spila nú í efstu deild hjá Stjörnunni og eru í unglingalandsliði U 16. Máni er sóknarmaður en Dagur varn-
arsinnaður miðjumaður. Í sumar flytja þeir með fjölskyldu sinni til Kaupmannahafnar þar sem þeir munu spila með FCK, einu besta fótboltafélagi
Danmerkur. Þeir fóru í prufu um daginn og flugu báðir strax inn í liðið. Seinna meir stefna þeir báðir í atvinnumennsku.
Af hverju tókuð þið fótbolta fram yfir handbolta?
Dagur: Við misstum bara áhugann á handbolta. Það er samt erfitt að
segja í hvoru við erum betri.
Máni: Við viljum einbeita okkur að fótboltanum. Það eru meiri mögu-
leikar í fótboltanum.
Dagur: Já, það er bara miklu skemmtilegra, meira að gerast. Í hand-
bolta er bara verið að berja hver annan!
Máni: Í fótboltanum lesum við alltaf hver annan.
Dagur: Já, og lesum leikinn. Manni dettur oft í hug hvað hinn er að fara
að gera.
Hvað ætliði að gera í Danmörku?
Dagur: Mamma okkar fékk fína vinnu þar hjá Marel.
Máni: Fótboltalega séð líst okkur mjög vel á það.
Dagur: Við fórum á þrjár æfingar hjá FCK. Þeim leist mjög vel á okkur
og þeir vildu fá okkur strax. Við þurftum ekki að koma á aðra æfingu.
Máni: Við megum bara koma um leið og við flytjum þangað.
Dagur: Þetta er stærsta liðið.
Máni: Við verðum alla vega þrjú ár í Danmörku. Sjáum til með framtíð-
ina.
Dagur: Ef okkur gengur vel verðum við kannski lengur. Eða förum eitt-
hvað annað kannski.
Máni og Dagur: England, Spánn, Holland, Frakkland, Danmörk, eru
allt draumalönd til að spila fótbolta í.
Hvað hefur staðið upp úr?
Dagur: Stærsta stundin hingað til
var þegar við vorum bikarmeistarar í fyrra.
Máni: Já og þegar við urðum Íslandsmeistarar í 4. flokki. Og komumst
svo í úrslit með 3. flokki, en töpuðum reyndar.
Dagur: Svo voru æfingarnar í Danmörku frábæar.
Máni: Markmiðið er líka að komast í íslenska landsliðið, að komast í 97
árganginn.
Hvernig kemur ykkur saman,
nú eruð þið eineggja tvíburar?
Dagur: Mamma segir að við séum eineggja, ég segi að við séum
tvíeggja!
Máni: Við keppum um allt.
Dagur: Þetta er svona upp og niður, stundum erum við vinir, og stund-
um ekki vinir.
Máni: Við rífumst alveg stundum. Við slógumst þegar við vorum
yngri, en ekki lengur.
Dagur: Nei, nú er það bara stórhættulegt!
Hvernig sjáið þið fyrir ykkur framtíðina?
Dagur og Máni: Stefnum bara á atvinnumennskuna!
Máni: Ef það klikkar, fer ég kannski að þjálfa. Hver veit.
Máni Austmann og Dagur
Austmann Hilmarssynir ætla
sér alla leið í fótboltanum.
Morgunblaðið/Eggert
Keppa um allt
Gaman verður að
fylgjast með þeim
bræðrum á næstu
árum, en þjálfari
þeirra, Björn Más-
son, hefur mikla trú
á Mána og Degi.
„Þetta eru tveir frá-
bærir leikmenn,
stórir og sterkir og
miklir íþóttamenn.
Líka mjög miklir
karakterar og leiðtogar,“ segir hann.
Björn telur að það sé sterkt fyrir þá að
fá að spila með FCK. „Það er gott fyrir
þá, flott áframhald á þeirra ferli. Ef þeir
leggja sig fram eins og þeir eru vanir, ná
þeir langt,“ segir Björn og bætir við,
„þeir eru alveg með þeim bestu í sínum
árgangi, alveg náttúrlega frábærir
íþróttamenn, þeir geta verið góðir í
hvaða íþrótt sem er, en völdu fótbolt-
ann.“ Björn telur þá hafa alla burði til að
komast langt í fótboltanum og telur að
á næstu árum verði tekið eftir þeim.
„Þeir hafa klárlega hæfileikana til að
komast í atvinnumennskuna seinna
meir, það er undir þeim komið, hvort
hausinn er á réttum stað og þeir leggja
sig fram,“ segir hann.
Björn Másson
HAFA KLÁRLEGA
HÆFILEIKANA
Efnilegir í öðru veldi
TVENNIR TVÍBURAR Í BOLTAÍÞRÓTTUM ÞYKJA SKARA FRAM ÚR, ANNARS VEGAR 17 ÁRA HANDBOLTASTRÁKAR OG HINS VEGAR 15 ÁRA
FÓTBOLTADRENGIR. ALLIR FJÓRIR HAFA MIKINN METNAÐ Í SINNI ÍÞRÓTT OG ÆFA STÍFT. STEFNAN ER TEKIN Á ATVINNUMENNSKUNA Í FRAMTÍÐINNI.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
FÓTBOLTATVÍBURAR Í GARÐABÆ