Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Page 27
21.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
living withstyle
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 laugardaga 10-18, sunnudagur 12-18,
mánudaga - föstudaga. 11-18:30 - www.ILVA.is
TILBOÐ
25% af öllum
sumarvörum í júlí
G
arður Maríu B. Jónsdóttur og Baldurs Þórs
Sveinssonar verður griðastaður fjölskyld-
unnar á sumrin. „Garðurinn er og verður
ávallt stór hluti af okkar lífi. Við höfum allt-
af verið dugleg að nota garðinn, börn jafnt og full-
orðnir. Garðurinn okkar breytist í græna herbergið á
sumrin,“ segir María. Hún segir það ekki nauðsynlegt
að hafa brakandi sól til að geta notið þess að vera í
garðinum. „Stundum er bara þægilegt þegar sú gula er
ekki á lofti. Ef upplifun fólks er þannig í görðum sín-
um, þá má segja að skipulagning garðsins hafi heppn-
ast vel“.
Húsið keyptu þau hjón árið 1993 og var garðurinn
nánast sem óskrifað blað. „Það voru einungis nokkur
tré sem hentaði okkur vel því við vildum skipuleggja
garðinn sjálf,“ segir María. Á óskalistanum er gróður-
hús í garðinn en hún stefnir á að vera orðin sjálfbær
með grænmeti og ávexti á næstu tíu árum. „Kannski
fáum við okkur líka hænur aftur, en við vorum með ís-
lenskar hænur í mörg ár. Þetta verður náttúrlega
þannig að ég þarf ekki að fara í matvörubúð þegar ég
verð orðin eldri borgari.“
Til þess að halda garðinum fallegum segir María það
mikilvægt að slá blettinn reglulega og þá helst með
handsláttuvél. „Ég hef nú oft líka bara fært tré sem
hafa ekki notið sín nægilega vel á vissum stöðum í
garðinum og það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart
hversu auðvelt er að færa tré og runna, jafnvel risatré.“
Að lokum nefndi María gott ráð þegar kemur að því
að huga að garðinum. „Amma mín gaf mér gott ráð, en
það er að passa vel upp á vökvun á sumrin og gefa
plöntunum áburð af og til. Einnig að fjarlægja það sem
er visið sem fyrst þannig að kraftur plöntunnar fari í
vöxtinn.“
Steypti potturinn er mjög mikið not-
aður af fjölskyldumeðlimum.
Hjónin létu setja upp einstaklega notalegan gufubaðskofa, að hætti Finna, á
milli tveggja kletta í garðinum og fellur hann alveg inn í umhverfið.
Hjónin María Birna og Baldur Þór heilluðust af garðinum er þau keyptu þetta snotra hús í Hafnarfirði árið 1993 en þá
voru aðeins örfá tré í garðinum, sem bauð þó upp á marga möguleika að gera hann fallegan frá grunni.
Verður græna
herbergið á sumrin
FALLEGT BÁRUJÁRNSHÚS Í HAFNARFIRÐI HEFUR AÐ GEYMA GLÆSILEGAN GARÐ SEM
BÝÐUR UPP Á MEIRA EN MARGIR. MARÍA B. JÓNSDÓTTIR OG BALDUR ÞÓR SVEINSSON
OPNUÐU DYRNAR INN Í HÚS OG ÚT Í GARÐ FYRIR SUNNUDAGSBLAÐINU.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
ÆVINTÝRALEGUR GARÐUR
* „Stundum erbara þægilegtþegar sú gula er
ekki á lofti. Ef upp-
lifun fólks er þannig
í görðum sínum, þá
má segja að skipu-
lagning garðsins
hafi heppnast vel“