Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Síða 16
*Grísku eyjarnar Santorini og Mykonos urðu fyrir valinu í brúðkaupsferð Emils og Ásu »18Ferðalög og flakk
Nú er árið í Glasgow brátt á enda runnið og stefnan tekin út í lífið.
Síðastliðið ár hef ég dvalið í vesturenda Glasgow, ásamt tveimur góð-
um vinum sem ég kynntist í háskóla. Vesturendi Glasgow er flestum
Íslendingum ókunnur þó að borgin sjálf hafi verið vinsæll áfanga-
staður í mörg ár. Glasgow hefur upp á margt að bjóða, sérstaklega
fyrir ungt fólk, en þar má nefna fjölda veitingahúsa, skemmtistaða og
viðburða árið um kring.
Það sem hefur verið hvað eftirminnilegast við dvöl okkar hérna hef-
ur verið allt það yndislega fólk sem við höfum kynnst frá ýmsum
heimshornum, allt frá Ástralíu til Kanada. Einnig hafa margir vinir
okkar frá Íslandi sótt okkur heim og notið borgarinnar, jafnt að vetri
sem og sumri. Glasgow hefur fullkomlega staðið undir væntingum.
Axel Sigurður Óskarsson, framhaldsnemi í verkfræði. Axel (lengst til hægri) ásamt samnemendum sínum á góðri stundu. Háskólinn í Glasgow.
Lífið í Glasgow
Fyrir utan Gallery of Modern Art.
PÓSTKORT F
RÁ SKOTLAN
DI
HLUPU 96 KM Á 3 DÖGUM
Móar,
þúfur, hraun
og snjór
H
laupaferðafyrirtækið Arctic Running stóð fyrir þriggja daga hlaupaferð með
leiðsögn frá Mývatni norður í Ásbyrgi í byrjun mánaðarins. Sex hlauparar
lögðu af stað frá Reykjahlíð, upp í Leirhnjúk, í Gjástykki og að Eilífs-
vötnum þar sem var tjaldað fyrri nóttina. Meðal hlaupara var Bryndís
Ernstdóttir langhlaupari og móðir hins nýbakaða heimsmeistara Anitu Hinriksdóttur,
en Bryndís á sjálf að baki glæstan feril í langhlaupum. Hópurinn tók marga aukakróka
á þessari fallegu leið og voru hlaupnir 39 kílómetrar fyrsta daginn. „Leiðin upp í Leir-
hnjúk var mögnuð, við þurftum að forðast skafla en kíktum upp á Hlíðarfjall og rétt
náðum útsýninu áður en þokan kom. Það var algjörlega magnað en hafði áhrif á lær-
vöðvana daginn eftir,“ segir Inga Fanney Sigurðardóttir hjá Arctic Running og hlær.
„Við tókum hring um Leirhnjúk og skoðuðum sprungur og hella og leirhveri. Fórum
þaðan upp í Víti og fylgdum nýja hrauninu alveg norður í Gjástykki sem var töluverð
áskorun því það var svo mikið af snjó og landslagið krefjandi. Móar og þúfur og kjarr,
sandar. En við Hágöngur var svo fallegt útsýni að við hlupum niður að Eilífsvötnunum
og nutum stundarinnar. Það var kraftmikil stund. Í hugum útlendinganna var þetta
stund ferðarinnar.“
Lambalæri og bað í læk
Við Eilífsvötn beið þeirra tjöld, eldhústjald og farangurinn þeirra sem hafði verið
keyrður frá Reykjahlíð yfir daginn. Það viðraði vel til hlaupa þennan dag, þrátt fyrir
að kalt væri (hitinn var um 6°C).
Daginn eftir var hlaupið svokallað þingeyskt þúfuhlaup frá Eilífsvötnum yfir í
Vatnajökulsþjóðgarð að Dettifossi. Það þótti þægileg leið þar sem engir snjóskaflar
voru á þeim hluta. Sama dag var hlaupið frá Dettifossi eftir hádegismat, í Hafragils-
undirlendi og Jökulsárgljúfrum fylgt norður að Hólmatungum og tjaldað í Vesturdal.
Þar grillaði hópurinn læri og hlauparar böðuðu sig í læknum eftir 35 km hlaupadag.
Þriðja daginn var farið í Svínadal, svo Jökulsárgljúfrunum fylgt þar til komið var að
Ásbyrgi, hlaupið uppi á barmi byrgisins og svo niður í byrgið og endað við Botnstjörn.
Í heildina var leiðin 96 km með öllum aukakrókunum en stoppað var við skemmtilega
staði til að njóta þeirra. „Við ætlum aftur, ekki spurning. Förum í lok ágúst og fólki
finnst svolítið merkilegt að þetta er ekki nein keppni. Þarna er hlaupið til að njóta.“
SEX HLAUPARAR FÓRU Í ÞRIGGJA DAGA HLAUPAFERÐ UM NORÐ-
AUSTURLAND. BYRJAÐ VAR Í MÝVATNSSVEIT OG ENDAÐ Í ÁSBYRGI
MEÐ KRÓKUM Á LEIÐINNI. FERÐIN VAR ÆVINTÝRI LÍKUST
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Hópurinn við Jök
ulsárgljúfur.
Í þokunni er gott að stoppa og átta sighvar maður er staddur.
Við Hafragilsu
ndirlendi.
Birkir hleypur meðfram nýjaKröfluhrauni
Bryndís Ernstsdóttir, A
rnfríður Kjartansdóttir
,
Birkir Már Kristinsson,
Sasha Brown og Brian
McCurdy. Sjötti hlaupa
rinn, Örn Haraldsson,
tók myndina.
Hópurinn gisti við Eilífsvötn fyrstu nóttina.