Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Síða 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.7. 2013 F jórar konur lögðu leið sína til Bruss- el á dögunum en tilgangur ferð- arinnar var að sækja ráðstefnu um fátækt á götum Evrópu sem var haldin af EAPN, European Anti Poverty Network í 12. sinn. Samtökin eru á vegum Evrópusambandsins og eru evrópsk samtök sem berjast gegn fátækt og fé- lagslegri einangrun. EAPN á Íslandi var stofnað árið 2011 og er þetta í annað sinn sem samtökin sækja ráðstefnu erlendis. EAPN samanstendur af hjálparsamtökum og hags- munasamtökum sem hafa það sem hluta af markmiðum sínum að vinna að málefnum fá- tækra. Þetta eru Bót, Félag einstæðra for- eldra, Geðhjálp, Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn, Kærleiksþjónusta kirkj- unnar, Samhjálp, Sjálfsbjörg, Velferðarsjóður Suðurnesja og Öryrkjabandalag Íslands. Konurnar fjórar hafa allar upplifað mikla fátækt hér á landi en þrjár þeirra eru enn illa staddar fjárhagslega í dag. Ester Ellen Nel- son, Íris Ægisdóttir og Sigfríð Sjöfn Magn- úsdóttir hafa ekki viljað segja sögu sína hing- að til en eftir að hafa sótt ráðstefnuna og fengið að hitta fjölda fólks í sömu stöðu víðs- vegar í Evrópu fylltust þær kjarki til að koma fram og deila reynslu sinni á því hvernig er að lifa á Íslandi með lítið sem ekkert á milli handanna. Ásta Dís Guðjónsdóttir, formaður Sjálfsbjargar, félags fatlaðra í Reykjavík, er sú fjórða í hópnum og jafnframt er hún al- þjóðlegur tengiliður EAPN á Íslandi. Fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins sér um að fjármagna ráðstefnuna og borga flug og hót- elgistingu fyrir gesti ráðstefnunnar sem koma alls staðar að úr Evrópu. Hópurinn sem fór til Brussel var valinn í samvinnu við Hjördísi Kristinsdóttur en hún hefur starfað sem umsjónarmaður Velferðar- sjóðs Suðurnesja fram til þessa. Hún starfar nú hjá Hjálpræðishernum og situr í stjórn EAPN á Íslandi fyrir hönd Hjálpræðishers- ins. Ákveðið var að fulltrúar Íslands yrðu allir frá Suðurnesjum, enda er þar mesta atvinnu- leysið á Íslandi og að mati Hjördísar er ástandið þar töluvert verra en annars staðar á landinu. Laufey Ólafsdóttir situr í Félagi einstæðra foreldra í Reykjavík og var áður formaður fé- lagsins í þrjú ár. Hún heimsótti ráðstefnuna í fyrra en hefur verið hluti af hópnum og tekið þátt í undirbúningsvinnu. Ef þið segið mér aðeins frá ráðstefnunni, hverjir eru gestir hennar og hvað fer fram á henni? Ásta: „Þarna var allskonar fólk, þar á með- al tannlaus manneskja sem var að koma úr skýli heimilislausra í Danmörku. Ef það hvarflar að þér eitt augnablik að horfa á þetta fólk og hugsa með þér að það sé lægra sett en þú þá þarftu að spyrja sjálfan þig: Hvers vegna er ég hérna? og þá sérðu þetta allt saman í nýju ljósi.“ Frá vinstri: Hjördís, Sigfríð, Laufey, Íris, Ásta og Ester. Skuggahlið samfélagsins FÁTÆKT HEFUR VERIÐ MIKIÐ FEIMNISMÁL Á ÍSLANDI AÐ MATI SEX KVENNA SEM HAFA REYNSLU AF FÁTÆKT. EFTIR AÐ HAFA SÓTT RÁÐSTEFNU Í BRUSSEL ERU ÞÆR TILBÚNAR AÐ STÍGA FRAM OG SEGJA SÍNA SÖGU. ÞÆR VILJA OPNA UMRÆÐUNA OG UPPLÝSA UM SKUGGAHLIÐAR SAMFÉLAGSINS. FÁTÆKIR MÆTI MIKLUM FORDÓMUM OG KERFIÐ VINNI GEGN ÞEIM. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Viðtal

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.