Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Side 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Side 49
Velferðarsjóður Suðurnesja sér um að borga skólamáltíðir fyrir 50 börn. Morgunblaðið/Sverrir „Árið 2009 voru 467 fjölskyldur á Suð- urnesjum sem þurftu aðstoð frá Hjálp- arstarfi kirkjunnar,“ segir Hjördís. „Það þýðir að það geta verið svona 1.500 manns á bak við þessa tölu sem er langt í frá að vera eðlileg staðreynd.“ Hún segir að enn í dag sjái Velferðarsjóður Suðurnesja um að borga skólamáltíðir fyrir 50 börn. Það sé þó aðeins brot af þeim sem þurfi á því að halda því alls ekki allir leiti eftir aðstoð. Sumir vita ekki af henni, aðrir telja sig ekki hafa rétt á henni og enn aðrir þori það ekki. Hjördís segir að stór hluti af þessu fólki hafi ekki getað farið með börnin sín til tannlæknis í mörg ár. „Það er ekki svigrúm fyrir neinn aukakostnað, t.d. ef barnið þitt þarf gleraugu eða þarf að fara til tann- læknis, þetta setur stórt strik í reikning- inn.“ Ásta segir að tannheilsu fari hrakandi hjá fötluðum í félagsstarfi Sjálfsbjargar. „Maður finnur það bara á lyktinni en enginn hefur efni á því að gera neitt, það hefur hreinlega ekki efni á því að fara til tannlæknis.“ Hafa ekki efni á tannlækni fyrir börnin ekki einstæðir foreldrar, það er fólk í sambúð sem er að svindla.“ Sæta stöðugri niðurlægingu Eftir bílslysin tvö hefur Íris verið með mikla verki í baki og öxlum og er með vefjagigt. Hún finnur fyrir kvíða að þurfa að fara til læknis og fá lyfin sem hún þarf á að halda vegna viðmótsins sem hún fær. Íris: „Ég finn fyrir mikilli fyrirlitningu þeg- ar ég fer til læknis, sérstaklega hjá læknum hér á Suðurnesjum. Ég er að biðja um verkjalyf sem bæklunarlæknar og gigt- arlæknar segja mér að taka inn en þeir hunsa mann hérna eins og um væri að ræða lyfja- fíkil. Ég lenti í leiðinlegri reynslu hér um daginn og var hvött í kjölfarið til að skrifa kvörtunarbréf. Það var sem betur fer tekið til greina en mér leið rosalega illa eftir þetta.“ Ásta: „Viðhorfið í samfélaginu er þess eðlis að ef fátækt er annars vegar eða hvers kyns neyð þá gerir fólk ráð fyrir að viðkomandi hafi kallað þetta yfir sig, með t.d. víni eða fíkniefnum. En það er alls ekki þannig, stund- um koma slæmir hlutir fyrir gott fólk og það vindur upp á sig.“ Íris: „Ég vildi að ég hefði bara efni á því að fara í ríkið og kaupa mér eina helvítis bokku!“ Þær hlæja allar og eru sammála um að vín- flaska yrði seint keypt inn á heimilið enda ekki peningar til að eyða í slíkt. Bæturnar duga skammt Samkvæmt frásögn kvennanna er hver einasti mánuður barátta við að ná endum saman. Oftar en ekki komi upp sú staða að ekki sé til peningur fyrir mat. Íris sagði örorkubætur sínar svo litlar að þegar hún væri búin að borga alla föstu reikningana ætti hún um 30 þúsund krónur eftir til þess að lifa út mán- uðinn með 3 börn og eitt barnabarn. Hún seg- ir að þegar 10. þess mánaðar er runninn upp sé peningurinn yfirleitt farinn. En hvert leitið þið þá þegar þið eigið ekki fyrir mat? Íris: „Öllum útrunnum mat úr búðunum er hent í gámana en nú er búið að læsa þeim því fólk var þarna mætt fyrir utan til að ná sér í útrunninn mat. Ég var í Bónus um daginn og átti gjafa- kort, það voru aðeins 400 krónur eftir inni á því. Mér varð litið til ungs manns sem hlóð kerru af kjúklingabringum úr hillunum. Ég spurði hvað hann væri að gera og hann sagði að þetta væri útrunnið og ætti að henda. Ég spurði hvort ég mætti ekki fá að eiga þetta eða fá þetta á afslætti og hann neitaði því. Þessu ætti að farga. Það er hræðilegt að þurfa að biðja um þetta. Mig langar stundum að gefast upp. Ég væri löngu búin að því ef ég hefði ekki börnin mín. En dæmið gengur bara ekki upp, að vera einstæður á örorkubótum að hugsa um lítil börn.“ Ásta: „Þú gætir komið þér í gegnum þriggja mánaða tímabil á þessum tekjum en að lifa að staðaldri á þessum tekjum og þurfa að ala upp börn, það er mannskemmandi og skaðar börnin til framtíðar.“ Laufey: „Aðalvandamálið er að dæmið gengur ekki upp. Ef þú ert á lágum launum, atvinnuleysisbótum eða framfærslu þá er þetta ekki nóg fyrir reikningum og að lifa af mánuðinn.“ Íris: „Ástandið er að versna, matarverð er að hækka, vöruverð er að hækka, leiga er að hækka en bæturnar hækka ekki í samræmi við það. Hér á ekkert eftir að batna nema eitthvað verði að gert.“ Ásta segir að með ráðstefnunni sé hægt að koma skilaboðum til embættismanna. 21.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 Vinur við veginn Fyrr á árinu kom út skýrsla um farsæld og baráttu gegn fátækt á Íslandi en hún var gefin út á vegum EAPN á Íslandi. Í skýrslunni er leitað að lausnum til að berjast gegn fátækt á Íslandi og einnig lögð áhersla á það að nálgast þurfi um- ræðu og aðgerðir gegn fátækt á annan hátt en gert hefur verið. Huga þurfi að mannlegri reisn og mannréttindum og leggja þá ölmusuhugsun til hliðar sem hefur verið viðvarandi í okkar samfélagi. Nú þurfi að ganga út frá styrkleikum fólks fremur en veikleikum og virkja fólk til að nýta styrkleika sinn. Hjördís segir þessa skýrslu vera góðan grundvöll til þess að taka á þessu vanda- máli. Í skýrslunni sé einnig skoðað hvað vinni á móti öðru í samfélaginu og hvað megi betur fara. „Sem sagt ef þú ert til dæmis á þess- um bótum og ert að vinna á þessum stað þá skerðir hér,“ segir Hjördís. „EAPN vill að það verði búinn til nokk- urskonar umboðsmaður fátækra. Það er mikilvægt að samtök á borð við EAPN reyni að taka á svona hlutum. Er það al- veg eðlilegt að ung fjölskylda með barn geti ekki keypt eina litla jólagjöf á jól- unum, eða eigi ekki fyrir jólamat? Þig langar kannski að leyfa þér eitthvað örlít- ið meira en að smyrja kjötfarsi á brauð- sneiðar á jólunum.“ Huga að mannlegri reisn Allir vilja geta haldið jólin hátíðleg. Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.