Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Side 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Side 64
SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 2013 Poppstjarnan Björk Guðmundsdóttir tileinkaði uppklappslagið sitt Declare Independence Trayvon Martin á tónleikum í Kan- ada á þriðjudag. Hún fetar þar með í fótspor annarra stór- stjarna sem hafa sýnt vanþóknun sína á sýknudómi George Zimmerman en hann skaut Martin til bana. Bruce Springsteen, Beyonce og hennar bóndi Jay Z, hafa einnig sýnt stuðning og Stevie Wonder hefur sagt að hann muni aldrei spila aftur í Flór- ída fyrr en lögum um sjálfsvörn verði breytt. Þá hafa fjölmargar stórstjörnur klæðst hettupeysu til stuðnings málstað Martins eins og P. Diddy og Lebron James. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Björk notar lagið til að lýsa stuðningi sínum við einhvern málstað. Hún flutti það í Rússlandi og tileinkaði lagið til Pussy Riot og þá hefur hún tileinkað lagið mannréttindabaráttu í Kína þegar hún spilaði þar í landi. Declare Independence er upphaflega samið til stuðnings sjálfstæðisbaráttu Færeyinga og Grænlendinga. Morgunblaðið/ÞÖK BJÖRK OG STÓRSTJÖRNURNAR Styðja mál- stað Martin Bruce Springsteen er í sama liði og Björk. AFP Sirrý Hallgrímsdóttir, aðstoðar- maður mennta- og menningar- málaráðherra, eignaðist köttinn Þór fyrir átta árum. „Hann fæddist hjá nágrönnum mínum á hæðinni fyrir neðan og var eini kettlingurinn sem gekk ekki út,“ segir Sirrý. „Hann er fóbískur, ekki gefinn fyrir breytingar og ég má varla svo mikið sem færa til húsgögn því þá skelfist hann. Það tekur hann langan tíma að venjast húsgagninu á nýja staðn- um. Ný hljóð einsog þegar ég fékk mér nýjan og stærri sturtu- haus ollu því að í nokkrar vikur flúði hann undir rúm í hvert skipti sem var skrúfað frá sturt- unni á meðan hann var að venj- ast því. Hann er víðáttufælinn og sérlyndur um margt, verður t.d. að fá vatnið og matinn sinn á sama tíma, annars verður hann ómögulegur. Hann er hræddur við alla ókunnuga. Mín greining á honum er sú að hann sé með einhverja tegund af einhverfu. Sjálfsbjargarviðleitni hans er lít- il og hann getur ekki svo mikið sem veitt flugu. Hann var svo reffilegur kettlingur að ég var að velja á milli þess að nefna hann Herkúles eða Þór en sá síðar að ég hefði átt að nefna hann Woody Allen.“ EINHVERFI KÖTTURINN Þrumu- goðið Þór Sirrý Hallgrímsdóttir með sérlundaða og víðáttufælna kettinum sínum. Morgunblaðið/Styrmir Kári ÞRÍFARAR VIKUNNAR Bangsímon Kefer Sutherland leikari Friðrik Arngrímsson formaður LÍÚ Góð samskipti bæta lífið vodafone.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Ódýrari sími með nýjum farsímaleiðum Vodafone KLÁRAST HRINGIR ÞÚ FYRIR 0 KR. INNAN FJÖLSKYLDU ÖRYGGISNET FJÖLSKYLDUNNAR Foreldrar og börn innan 18 ára með sama lögheimili, í allt að 500 mínútur. Gildir ekki um SMS. KYNNTU ÞÉR FARSÍMALEIÐIR VODAFONE Á VODAFONE.IS/FARSIMI

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.